Skora á yfir­völd að taka SÁÁ til skoðunar - Vísir

Skora á yfir­völd að taka SÁÁ til skoðunar - Vísir

Skora á yfir­völd að taka SÁÁ til skoðunar - Vísir

Þetta kemur fram í ályktun frá Rótinni sem er undirrituð af Kristínu I. Pálsdóttur, framkvæmdastjóra og talskonu samtakanna. Þar segir að félagði vilji leggja áherslu á þann kerfislæga vanda sem birtist í átökum innan SÁÁ.

Samtökin skora á heilbrigðisyfirvöld að taka stjórnskipan heilbrigðisþjónustu SÁÁ til sérstakrar skoðunar. Að þeirra mati þurfi að tryggja sjálfstæði faglegrar yfirstjórnar og réttindi sjúklinga. Þau hafi sent heilbrigðisráðherra erindi þar að lútandi.

„Annars er hætt við að við verðum aftur komin á sama stað eftir nokkur ár, með nýtt fólk en sama kerfisvandann,“ segir í ályktuninni.

Yfirmenn segja upp störfum

Þóra Björk Ingólfsdóttir, fráfarandi fagstjóri á Vík, meðferðarstöð SÁÁ, steig fram á dögunum og fordæmdi vinnubrögð stjórnar SÁÁ. Hún sagði það fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka og lýsti miklum áhyggjum af framtíð meðferðarstarfsins.

Þóra sakaði jafnframt Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formann SÁÁ, um að hafa logið þegar hún sagðist ekki hafa fengið fregnir af því að Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, hafi sagt upp störfum.

Anna hefur hafnað því alfarið að hafa logið og segir starfsemina standa styrkum fótum. Miklar breytingar hafi orðið á skipulagi hjá SÁÁ á síðustu árum.

Valgerður sagði upp í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fráfarandi forstjóra SÁÁ. Fráfarandi fagstjóri á Vík sakar SÁÁ um að hafa óeðlileg afskipti af faglegu meðferðarstarfi og að starfslokasamningurinn hafi verið gerður í óþökk allra. Anna segir að Hulda hafi sjálf óskað eftir starfslokum og tekur fram að SÁÁ hafi ekki getað sett sig upp á móti því.

Mörkin séu of óskýr

Í ályktun Rótarinnar er rakið hvernig SÁÁ náði sterkri stöðu á Íslandi og varð stór þjónustuveitandi ríkisins og hafði þar með áhrif á faglega og pólitíska stefnu í vímuefnamálum. Erfitt sé að breyta um stefnu sem hafði verið byggð á tólf sporunum. 

„Félagasamtökum er frjálst að hafa hugmyndafræði, gildi og ákveðna sýn á bata. Fólk má sækja 12 spora starf og hafa gagn af því. En sjúkrahús sem veitir heilbrigðisþjónustu sem er á fjárlögum ríkisins þarf að lúta öðrum kröfum: faglegri ábyrgð, þjónustu sem byggir á bestu fáanlegu þekkingu og einstaklingsmiðuðu mati, gæðastarfi, sjúklingaöryggi og réttindum þeirra sem þjónustuna nota.“

Þau segja mörkin á milli valds framkvæmdastjórnar og faglegrar yfirstjórnar vera of óskýr. Á meðan sú sé raunin muni átök halda áfram að skjóta upp kollinum innan samtakanna. 

„Athygli vekur einnig, eftir því sem Rótin fær best séð, er enginn í núverandi framkvæmdastjórn SÁÁ sé með háskólamenntun í heilbrigðisgreinum. Tveir stjórnarmenn eru löggiltir áfengis- og vímuefnaráðgjafar en sú menntun er ekki enn komin á háskólastig,“ segir í ályktuninni þar sem það er áréttað að ekki væri um áhyggjuefni að ræða ef hlutverk stjórnarinnar gagnvart faglegu starfi heilbrigðisþjónustunnar væri skýrt afmarkað. Það sé raunin að mati Rótarinnar.

„Þetta er ekki fyrst og fremst spurning um hvaða einstaklingar sitja í stjórn eða gegna faglegum stjórnunarstöðum hverju sinni. Heilbrigðiskerfi á ekki að vera svo háð einstaklingum að grundvallarágreiningur um vald og faglega ábyrgð geti sett mikilvæga þjónustu í uppnám.“

Hugmyndafræði eigi ekki að stjórna förinni

Rótin ítrekar að fólk sem þurfi á aðstoð að halda vegna vímuefnanotkunar eigi rétt því að þjónustan ráðist af þörfum þess. Hugmyndafræði í stjórn félagasamtaka eigi ekki að stjórna förinni.

„Heilbrigðiskerfið þarf jafnframt að tryggja raunverulegt val um ólíkar meðferðarleiðir. Kerfislægar aðstæður þar sem ein tiltekin sýn á vímuefnavanda, bata eða bindindi verður í reynd ráðandi vegna sögulegrar stöðu eins þjónustuveitanda er ekki boðleg staða.“

Þá er tekið fram að mikilvægt sé að auka fjölda fagfólks í starfinu. Ríkið beri þá ábyrgð að sjá til þess að rétt sé staðið að heilbrigðisþjónustu þótt að hún sé útvistuð til þriðja aðila.

„Ríkið þarf að tryggja að stjórnskipan þjónustunnar verndi faglegt sjálfstæði, gæði, samfellu og réttindi sjúklinga. Það þarf jafnframt að tryggja að kerfið sé ekki svo háð einum þjónustuveitanda eða örfáum einstaklingum að innri átök geti sett mikilvæga heilbrigðisþjónustu í uppnám. SÁÁ bera einnig skýra ábyrgð, bæði sem rekstraraðili heilbrigðisþjónustu og sem almannaheillasamtök sem eiga að lúta kröfum um góða stjórnarhætti, ábyrgð og gagnsæi.“

Hér fyrir neðan má lesa ályktun Rótarinnar í heild sinni:

Ályktun Rótarinnar

Átökin sem nú standa yfir innan SÁÁ eru enn ein birtingarmynd langvarandi veikleika í stjórnskipulagi þeirrar heilbrigðisþjónustu sem samtökin reka. Vandinn verður ekki leystur með því að skipta um stjórnendur. Ríkið ber ábyrgð á að tryggja að skýr mörk séu milli framkvæmdastjórnar SÁÁ og faglegrar yfirstjórnar sjúkrahússins Vogs og annarrar heilbrigðisþjónustu samtakanna.

Félagasamtökin SÁÁ eru sprottin úr íslensku 12 spora hreyfingunni og byggðu meðferð sína upp á Minnesota-líkaninu. Hildigunnur Ólafsdóttir, afbrotafræðingur, hefur lýst því hvernig þessi hreyfing náði einstaklega sterkri stöðu á Íslandi, varð stór þjónustuveitandi ríkisins og hafði víðtæk áhrif á faglega og pólitíska stefnu í vímuefnamálum. Hún lýsir jafnframt miklu leiðarhæði í þróun kerfisins þ.e. þegar ákvarðanir sem teknar voru fyrir áratugum hafa mótað það og gert erfitt um vik að breyta um stefnu.

Félagasamtökum er frjálst að hafa hugmyndafræði, gildi og ákveðna sýn á bata. Fólk má sækja 12 spora starf og hafa gagn af því. En sjúkrahús sem veitir heilbrigðisþjónustu sem er á fjárlögum ríkisins þarf að lúta öðrum kröfum: faglegri ábyrgð, þjónustu sem byggir á bestu fáanlegu þekkingu og einstaklingsmiðuðu mati, gæðastarfi, sjúklingaöryggi og réttindum þeirra sem þjónustuna nota.

Hildigunnur bendir á að upphaflega hafi SÁÁ verið leitt af fólki í bata sem kynnti eigin reynslu af bandarískri meðferð sem sérfræðiþekkingu og að hreyfingin hafi síðar öðlast mjög sterka valdastöðu gagnvart þeim fagstéttum sem áður báru ábyrgð á meðferð fólks með vímuefnavanda.

Á meðan framkvæmdastjórn SÁÁ hefur raunverulegt vald yfir rekstri sjúkrahúss og heilbrigðisþjónustu án þess að mjög skýr og formleg mörk séu milli valds framkvæmdastjórnar og faglegrar yfirstjórnar munu átök eins og þau sem nú hafa komið upp á yfirborðið halda áfram að skjóta upp kollinum.

Athygli vekur einnig. eftir því sem Rótin fær best séð, er enginn í núverandi aðili í framkvæmdastjórn SÁÁ með háskólamenntun í heilbrigðisgreinum. Tveir stjórnarmenn eru löggiltir áfengis- og vímuefnaráðgjafar, en sú menntun er ekki enn komin á háskólastig.

Þetta væri ekki endilega sérstakt áhyggjuefni ef hlutverk félagsstjórnarinnar gagnvart faglegu starfi heilbrigðisþjónustunnar væri skýrt afmarkað. En einmitt þar virðist vandinn liggja. Í umræðunni nú lýsir fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga ágreiningnum sem óljósum mörkum milli stjórnar félagasamtaka og faglegrar stjórnunar, á meðan formaður SÁÁ segir framkvæmdastjórnina sinna eðlilegu eftirliti með framkvæmd samninga og hafnar því að stjórnin hafi farið inn á faglegt svið.

Þetta er ekki fyrst og fremst spurning um hvaða einstaklingar sitja í stjórn eða gegna faglegum stjórnunarstöðum hverju sinni. Heilbrigðiskerfi á ekki að vera svo háð einstaklingum að grundvallarágreiningur um vald og faglega ábyrgð geti sett mikilvæga þjónustu í uppnám.

Fólk sem leitar sér þjónustu vegna vímuefnanotkunar á rétt á því að þjónustan ráðist af þörfum þess, bestu fáanlegu þekkingu og faglegu mati – ekki af því hvaða hugmyndafræði hefur yfirhöndina í stjórn félagasamtaka.

Heilbrigðiskerfið þarf jafnframt að tryggja raunverulegt val um ólíkar meðferðarleiðir. Kerfislægar aðstæður þar sem ein tiltekin sýn á vímuefnavanda, bata eða bindindi verður í reynd ráðandi vegna sögulegrar stöðu eins þjónustuveitanda er ekki boðleg staða.

Þetta gerist jafnframt í heilbrigðisþjónustu sem býr þegar við takmarkaða faglega burði. Í úttekt Thomasar Kattau fyrir heilbrigðisráðuneytið árið 2024 er bent á takmarkaða þjónustugetu, undirmönnun og skort á sérhæfðu starfsfólki og sérstaklega lagt til að efla menntun og hæfni fagfólks á þessu sviði (https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2024-11-01-Afengis-og-vimuefnamedferd-a-Islandi-stodumat/). Þegar reynslumikið fagfólk hverfur úr kerfinu, hvort sem það er vegna uppsagna eða þess að aðstæður leiða til brotthvarfs eins og nú hefur gerst þá er brýnt að spyrja hvar á að finna nýtt fagfólk.

Vogur er sjúkrahús.

Ríkið hefur falið SÁÁ að reka mjög mikilvægan hluta heilbrigðisþjónustu við fólk með vímuefnavanda og ábyrgð ríkisins hverfur ekki þegar þjónustunni er útvistað samkvæmt samningi til félagasamtaka.

Ríkið þarf að tryggja að stjórnskipan þjónustunnar verndi faglegt sjálfstæði, gæði, samfellu og réttindi sjúklinga. Það þarf jafnframt að tryggja að kerfið sé ekki svo háð einum þjónustuveitanda eða örfáum einstaklingum að innri átök geti sett mikilvæga heilbrigðisþjónustu í uppnám.

SÁÁ bera einnig skýra ábyrgð, bæði sem rekstraraðili heilbrigðisþjónustu og sem almannaheillasamtök sem eiga að lúta kröfum um góða stjórnarhætti, ábyrgð og gagnsæi.

Rótin telur tímabært að heilbrigðisyfirvöld taki stjórnskipan heilbrigðisþjónustu SÁÁ til sérstakrar skoðunar og tryggi með formlegum hætti sjálfstæði faglegrar yfirstjórnar, skýra ábyrgð, gæði þjónustunnar og réttindi sjúklinga og hefur sent heilbrigðisráðherra erindi þar um (https://rotin.is/ahyggjur-af-stodu-medferdarstarfs-saa-eftirliti-med-thjonustusamningi-og-skipan-styrihops-um-afengis-og-vimuefnamedferd/).

Annars er hætt við að við verðum aftur komin á sama stað eftir nokkur ár – með nýtt fólk en sama kerfisvandann.

#skora #sáá #taka #til #yfirvöld

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262932674d/skora-a-yfirvold-ad-taka-saa-til-skodunar

📰 Aðrar fréttir

Orðið á götunni: Forseti ASÍ gerir þá sjálfsögðu kröfu að bankar velti ekki bankaskatti út í verðlagið – Jóhannes útskýrari vælir áfram
📅 09.09.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: Forseti ASÍ gerir þá sjálfsögðu kröfu að bankar velti ekki bankaskatti út í verðlagið – Jóhannes útskýrari vælir áfram
Sérstakur bankaskattur er hækkaður núna samkvæmt fjárlagafrumvarpinu um sex milljarða króna. Þetta er sjálfsögð og eðlileg tillaga í ljósi ofboðslegs ...
MMA kappi berst við simpansa – „Líkamleg áhætta fyrir þátttakandann er mjög raunveruleg“
📅 09.09.2026 👁️ 0
MMA kappi berst við simpansa – „Líkamleg áhætta fyrir þátttakandann er mjög raunveruleg“
MMA bardagamaður að nafni Cole Johnson ætlar að berjast við simpansa. Hann hefur hins vegar verið varaður við því að simpansi gæti hæglega drepið hann...
Watch: Norway bids farewell to King Harald
📅 09.09.2026 👁️ 1
Watch: Norway bids farewell to King Harald
Tens of thousands of people lined the streets to pay their respects after 13 days of national mourning.
Telur tíu prósenta líkur á að gervigreind tortími mannkyni innan áratugar
📅 09.09.2026 👁️ 0
Telur tíu prósenta líkur á að gervigreind tortími mannkyni innan áratugar
Jacob Coxon sagði upp vinnunni sinni í gær. Hann sagði frá því á samfélagsmiðlun að hann gæti ekki með góðri samvisku haldið áfram störfum. Þau störf ...
„Viljið þið gjöra svo vel að fyrir­gefa mér af öllu hjarta“ - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 0
„Viljið þið gjöra svo vel að fyrir­gefa mér af öllu hjarta“ - Vísir
Orðin féllu í þættinum Reykjavík síðdegis í gær í umræðu um að fjölga þyrfti í hópi nema í leikskólafræðum og vöktu óánægju í hópi leikskólakennara. Í...
Mother demands answers, weeks after black woman found hanging from Mississippi tree
📅 09.09.2026 👁️ 0
Mother demands answers, weeks after black woman found hanging from Mississippi tree
Her demands for information about what happened to Tasia Fortune have been echoed by shocked locals.
Rangt að handvalinn hópur nemenda taki PISA í útlöndum
📅 09.09.2026 👁️ 0
Rangt að handvalinn hópur nemenda taki PISA í útlöndum
Ólíkt hlutfall barna sem þreyta PISA-könnunina milli landa hefur verið nokkuð á milli tannanna á fólki. Tæplega 4 þúsund, eða 78,2% gjaldgengra nemend...
Nokkrum olíuflutningaskipum sökkt nærri Hormússundi
📅 09.09.2026 👁️ 0
Nokkrum olíuflutningaskipum sökkt nærri Hormússundi
Stjórnvöld í Íran segja her landsins hafa gert árásir á tíu skip nærri Hormússundi í dag, þar á meðal tvö bandarísk skip og átta olíuflutningaskip. Ár...
Man arrested after woman stabbed in Gran Canaria
📅 09.09.2026 👁️ 0
Man arrested after woman stabbed in Gran Canaria
 The Guardia Civil has arrested a man following a serious stabbing involving his partner at their home in the municipality of Santa Lucía de Tirajana ...
Tímabundnar breytingar á flugi til Akureyrar og Egilsstaða
📅 09.09.2026 👁️ 1
Tímabundnar breytingar á flugi til Akureyrar og Egilsstaða
Icelandair þarf að gera breytingar á flugáætlun til Akureyrar og Egilsstaða næstu vikur. Þetta er vegna nauðsynlegs viðhalds á einni af DHC 8 Q400 flu...
„Sáralítið gerst“ og engar formlegar viðræður um kjarasamninga
📅 09.09.2026 👁️ 0
„Sáralítið gerst“ og engar formlegar viðræður um kjarasamninga
Verkalýðshreyfingin hefur ekki fengið næg svör frá stjórnvöldum til að ákveða hvort tilefni sé til að rjúfa kjarasamninga, segir forseti Alþýðusamband...
Öldrunarlæknir og verk­fræðingur selja miðbæjarperlu - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Öldrunarlæknir og verk­fræðingur selja miðbæjarperlu - Vísir
Húsið er á þremur hæðum með nýtanlegu risi sem er óskráð og sér bílastæði fylgja. Húsið var upphaflega byggt árið 1894 og stóð til ársins 1991 við Lin...
Segir launafólk vinna fyrir sköttum til kl. 11.41 - „Ríkisstjórnin talar eins og peningar ríkisins komi úr sérstakri uppsprettu“
📅 09.09.2026 👁️ 1
Segir launafólk vinna fyrir sköttum til kl. 11.41 - „Ríkisstjórnin talar eins og peningar ríkisins komi úr sérstakri uppsprettu“
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, birti í dag grein kl. 10 og benti launafólki sem vinnur dagvinnu að ef það hóf störf kl. 8 og ynni til kl. 17 þá...
„Við fyrir­gefum ráð­herra þessa yfir­sjón“ - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
„Við fyrir­gefum ráð­herra þessa yfir­sjón“ - Vísir
Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra ræddi niðurstöður PISA-kannananna í Reykjavík síðdegis í gær. Þar bar leikskólamálin meðal annars á góma og s...
Hálfs árs fangelsi fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum
📅 09.09.2026 👁️ 1
Hálfs árs fangelsi fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum
Tveir menn hafa verið dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum 2021. Annar þeirra hlaut 6 mánaða dóm og hinn 5 mánaða, báðir komast u...
Leitar til lögreglu eftir að hafa greitt Sólarmegin  400 þúsund fyrir íbúð sem annað fyrirtæki leigir út
📅 09.09.2026 👁️ 1
Leitar til lögreglu eftir að hafa greitt Sólarmegin 400 þúsund fyrir íbúð sem annað fyrirtæki leigir út
Maður sem taldi sig vera að leigja íbúð á Alicante á Spáni í gegnum fyrirtækið Sólarmegin en var svikinn hefur haft samband við lögregluna á höfuðborg...
Fleiri en einn yfir­heyrður en enginn í haldi - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Fleiri en einn yfir­heyrður en enginn í haldi - Vísir
„Það eina sem við gefum upp er að það er búið að yfirheyra einstaklinga. Við erum ekkert að gefa frekar upp um það.“ Um er að ræða fjögur innbrot í þr...
Sex ráð til að efla lesskilning barna
📅 09.09.2026 👁️ 1
Sex ráð til að efla lesskilning barna
Auður Soffíu Björgvinsdóttir, lektor við menntavísindasvið HÍ og formaður Félags læsisfræðinga á Íslandi, segir að til að stuðla að lesskilningi þurfi...
Breyta nafninu á South Park í South America
📅 09.09.2026 👁️ 2
Breyta nafninu á South Park í South America
Höfundar teiknimyndaþáttanna vinsælu South Park, þeir Matt Stone og Trey Parker, hafa breytt nafni þeirra í South America. Virðist uppátækið vera skot...
Uganda pulling out of Prince Harry's Invictus Games
📅 09.09.2026 👁️ 2
Uganda pulling out of Prince Harry's Invictus Games
The decision, announced by the chief of defence, comes just two months after Uganda said it would participate.
Sigvaldi Einarsson skrifar: Veturinn gæti orðið hræðilegur fyrir mannkynið
📅 09.09.2026 👁️ 1
Sigvaldi Einarsson skrifar: Veturinn gæti orðið hræðilegur fyrir mannkynið
Það væri varasamt að ganga út frá því að Úkraína sé að vinna stríðið. Fjórði stríðsveturinn er að ganga í garð og margt bendir til þess að hann gæti o...
Ung­frú Austur­ríki látin að­eins 22 ára - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Ung­frú Austur­ríki látin að­eins 22 ára - Vísir
Samtökin Mission Austria, sem standa að Ungfrú Austurríki, greindu frá andláti Sisic í vikunni en dánarorsök hennar liggur ekki fyrir að svo stöddu. A...
Segir af­nám vaxta­bóta bitna á tekjulágum heimilum - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Segir af­nám vaxta­bóta bitna á tekjulágum heimilum - Vísir
Jana Eir Víglundsdóttir, hagfræðingur BSRB, segir gjaldskrárhækkanir í fjárlagafrumvarpinu jafnframt auka útgjöld heimilanna og geta haft áhrif á verð...
Earthquake felt by residents in Gran Canaria this morning
📅 09.09.2026 👁️ 2
Earthquake felt by residents in Gran Canaria this morning
An earthquake was detected near Agaete in the north-west of Gran Canaria this morning (Wednesday), according to seismic monitoring information from Sp...
Blása á gagn­rýni og opna daga­talið - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Blása á gagn­rýni og opna daga­talið - Vísir
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að hann kannaðist ekkert við að hafa átt í virku samtali v...
Canary Islands Stargazing: Finding quiet places under clear skies
📅 09.09.2026 👁️ 1
Canary Islands Stargazing: Finding quiet places under clear skies
Evening arrives slowly on the coast. Restaurant terraces remain crowded, music drifts along the promenades, and the last swimmers leave the water. Hig...
MAST svipti bóndann á Brimnesi vörslu búfjár:  „Ég er ekki búinn að segja mitt síðasta”
📅 09.09.2026 👁️ 2
MAST svipti bóndann á Brimnesi vörslu búfjár: „Ég er ekki búinn að segja mitt síðasta”
Matvælastofnun fjarlægði tugi dýra af bænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna meintrar vanhirðu og slælegrar meðferðar, bæði kindur, hross og hrúta s...
Gullgröftur hafinn í námunda við höfuðborgarsvæðið – Stór bor fluttur inn frá Finnlandi
📅 09.09.2026 👁️ 2
Gullgröftur hafinn í námunda við höfuðborgarsvæðið – Stór bor fluttur inn frá Finnlandi
Gullgröftur er hafinn í Þormóðsdal, rétt austan við höfuðborgarsvæðið. Stór bor hefur verið fluttur inn frá Finnlandi til leitarinnar.Hópur vinnumanna...
Jimmy Kimmel segir komið gott
📅 09.09.2026 👁️ 1
Jimmy Kimmel segir komið gott
Næsta þáttaröð af kvöldþættinum Jimmy Kimmel Live! á ABC verður sú síðasta. „Samningur hans verður ekki framlengdur,“ útskýrði heimildarmaður sem þekk...
Hvað ef við höfðum rangt fyrir okkur?
📅 09.09.2026 👁️ 2
Hvað ef við höfðum rangt fyrir okkur?
Hvað ef við höfðum rangt fyrir okkur? Finnsk­ur geð­lækn­ir syrg­ir þátt sinn í þró­un sem leiddi til stór­auk­inn­ar notk­un­ar þung­lynd­is­lyfja. Á...
Höfðatorgsmálið: Þvertaka fyrir að málið tengist fíkniefnaviðskiptum
📅 09.09.2026 👁️ 2
Höfðatorgsmálið: Þvertaka fyrir að málið tengist fíkniefnaviðskiptum
Sakborningar og brotaþoli í Höfðatorgsmálinu þvertaka fyrir að málið tengist viðskiptum með fíkniefni.
Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernis­hreinsanir - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernis­hreinsanir - Vísir
Leiðtogar Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) hafa á undanförnum misserum tekið heilshugar undir ákall um svokallaða „endurflutninga“ (þ. remigration) sem ...
Leiðir skilja hjá leikhúspari - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Leiðir skilja hjá leikhúspari - Vísir
Kolfinna hefur verið einn eftirtektarverðasti leikstjóri landsins síðustu ár og Sigurbjartur vakið athygli fyrir leik sinn og tónlist. Leiðir þeirra l...
Police launch criminal investigation into Reform UK donations
📅 09.09.2026 👁️ 1
Police launch criminal investigation into Reform UK donations
The investigation, which follows a broadcast by Channel 4 News, is being folded into the inquiry that has been underway into other donations.
Merz slaufaði símtali við Donald Trump
📅 09.09.2026 👁️ 2
Merz slaufaði símtali við Donald Trump
Friedrich Merz Þýskalandskanslari aflýsti í dag símtali sem búið var að skipuleggja milli hans og Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Þetta gerðist í kjö...
Búa sig undir að hleypa heita vatninu á
📅 09.09.2026 👁️ 2
Búa sig undir að hleypa heita vatninu á
Íbúar og atvinnurekendur í Innri-Njarðvík og Vogum geta vænst þess að heita vatnið komist aftur á innan skamms. HS Veitur hafa staðið í framkvæmdum á ...
Biðjast afsökunar á texta um Norður Kóreu í útför konungs
📅 09.09.2026 👁️ 1
Biðjast afsökunar á texta um Norður Kóreu í útför konungs
Norska ríkissjónvarpið baðst afsökunar á mistökum sem áttu sér stað við textun á ræðu biskupsins Olav Fykse Tveit við útför Haraldar Noregskonungs fyr...
'We were raped and exploited by a drug gang as teenagers'
📅 09.09.2026 👁️ 2
'We were raped and exploited by a drug gang as teenagers'
Four women have chosen to waive their anonymity and speak publicly to the BBC documentary, Britain's Forgotten Girls, about how they were targeted by ...
Hátt í 100 milljarðar í tölvur fyrir gagnaver á hálfu ári
📅 09.09.2026 👁️ 2
Hátt í 100 milljarðar í tölvur fyrir gagnaver á hálfu ári
Krónan styrktist fyrri hluta árs þvert á það sem hefði mátt búast við vegna mikils viðskiptahalla við útlönd. Hluti ástæðunnar er sá að vöruinnflutnin...
Stærðarinnar hola gleypti inn­keyrslu Cage - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Stærðarinnar hola gleypti inn­keyrslu Cage - Vísir
Holan, sem er rúmir níu metrar á dýpt, er sögð hafa myndast vegna mikillar rigningar í Suður-Kaliforníu að undanförnu. Enginn virðist þó hafa slasast ...
„Fólk er bara slegið“ - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 2
„Fólk er bara slegið“ - Vísir
Niðurstöður nýjustu PISA-könnunarinnar voru birtar í gær og hefur árangur íslenskra nemenda aldrei verið í jafn slæmur. Inga Sæland mennta- og barnamá...
Gusumeistarinn á Ægisíðu í stríði við heilbrigðiseftirlitið
📅 09.09.2026 👁️ 2
Gusumeistarinn á Ægisíðu í stríði við heilbrigðiseftirlitið
Fyrirtæki sem annast rekstur gufubaðs í litlum skúr á Ægisíðu, í vesturbæ Reykjavíkur, sem áður var notaður vegna grásleppuveiða hefur kært ákvörðun H...
Fangi kvartaði eftir að Reykjavíkurborg sagðist ætla að vísa honum á dyr
📅 09.09.2026 👁️ 2
Fangi kvartaði eftir að Reykjavíkurborg sagðist ætla að vísa honum á dyr
Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun sinni á kvörtun fanga sem fékk þær upplýsingar frá Reykjavíkurborg að leigusamningi fangans vegna félagslegs ...
Tímabundin lausn í sjónmáli – hundruð barna enn á biðlista
📅 09.09.2026 👁️ 1
Tímabundin lausn í sjónmáli – hundruð barna enn á biðlista
Bið eftir þjónustu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar lengist eftir að loka þurfti húsnæðinu við Dalshraun í Hafnarfirði vegna myglu. Leitað er að tímabu...
Þúsundir kalla eftir af­sögn Þor­gerðar: „Vand­ræða­leg til­raun“ - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 2
Þúsundir kalla eftir af­sögn Þor­gerðar: „Vand­ræða­leg til­raun“ - Vísir
Alls höfðu 6.867 manns skrifað undir áskorunina á Ísland.is þegar fréttin var unnin rétt fyrir klukkan hálf eitt í dag. Ábyrgðarmaður söfnunarinnar er...
UK flight chaos continues affecting Canary Islands passengers
📅 09.09.2026 👁️ 1
UK flight chaos continues affecting Canary Islands passengers
Flights across the UK have resumed today, Wednesday, following the major technical failure that brought severe disruption to British airports on Tuesd...
Actor Noel Clarke charged with sexual offences
📅 09.09.2026 👁️ 2
Actor Noel Clarke charged with sexual offences
He has been charged with sexual offences including sexual assault, voyeurism and exposure.
Andy Burnham: National security can't come at expense of social security
📅 09.09.2026 👁️ 1
Andy Burnham: National security can't come at expense of social security
The prime minister says he will fund defence and get the welfare bill down in "the Labour way".
Trump-kortið og tvöföld girðing nýrrar ESB-atlögu
📅 09.09.2026 👁️ 2
Trump-kortið og tvöföld girðing nýrrar ESB-atlögu
Trump-kortið og tvöföld girðing nýrrar ESB-atlögu Fréttin9. september 2026Erlent, Evrópusambandið, Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Commen...
Volkswagen-bílaverksmiðju breytt í ísraelska vopnaframleiðslu
📅 09.09.2026 👁️ 2
Volkswagen-bílaverksmiðju breytt í ísraelska vopnaframleiðslu
Volkswagen-bílaverksmiðju breytt í ísraelska vopnaframleiðslu Fréttin9. september 2026ErlentLeave a Comment Þýski bílarisinn Volkswagen hefur samþykkt...