Ráðuneytisstjóri menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins sendi í morgun tilmæli á forstöðumenn sem heyra undir ráðuneytið um að stofnanir þeirra kaupi auglýsingar af fjölmiðlum frekar en samfélagsmiðlum.
Ráðuneytið hvetur stofnanirnar líka til að kaupa áskriftir að fjölmiðlum „til að tryggja aðgang starfsmanna að fréttum og samfélagsumræðu og stuðla að sjálfbærum rekstri fjölmiðla“.
Tilmælin sem Sigrún Brynja Einarsdóttir ráðuneytisstjóri sendi út í morgun byggja á vinnu innan ráðuneytisins um hvernig verja eigi auglýsingafé hins opinbera.
Logi Einarsson ráðherra tilkynnti í fyrra að ráðuneytið hygðist í framtíðinni beina auglýsingakaupum sínum til íslenskra fjölmiðla í stað erlendra samfélagsmiðla og leitarvéla.
„Faglegir og sjálfstæðir fréttamiðlar veita stjórnvöldum og atvinnulífi aðhald, greina flókin mál og setja þau í samhengi við sögu og samtíma,“ segir Sigrún Brynja í bréfi sínu til forstöðumanna stofnana sem heyra undir ráðuneytið. Hún segir að fjölmiðlar gegni því mikilvægu lýðræðislegu hlutverki. „Þess vegna hvílir rík ábyrgð á stjórnvöldum – og þeim stofnunum sem undir þau heyra – að stuðla að því að þeir fái þrifist.“
Tilmæli ráðuneytisins eru þau að stofnanir auglýsi í fjölmiðlum. Ef forsvarsmenn þeirra telja nauðsynlegt að kaupa auglýsingar annars staðar er æskilegt að fyrir því sé skýr rökstuðningur. Ráðuneytið áskilur sér rétt til að kalla eftir rökstuðningi stofnana og upplýsingum um hvernig þær ráðstafa auglýsingafé sínu.
„Til að lágmarka hættu á því að opinberum fjármunum verði ráðstafað í þágu pólitískra hagsmuna er einnig mælst til þess að kaup á auglýsingum og áskriftum taki mið af sjónarmiðum um gagnsæi, fjölbreytni og jafnræði,“ segir í tilmælunum.