Alvarlegur og ólöglegur leki innherjaupplýsinga varð úr Ráðhúsinu í lok apríl að mati regluvarðar Reykjavíkurborgar. Hún hefur tilkynnt atvikið til fjármálaeftirlits Seðlabankans.
Tilefnið er fréttaflutningur mbl.is um allar helstu upplýsingar úr ársreikningi Reykjavíkurborgar árið 2025 sem birtist á sama tíma og ársreikningurinn var birtur opinberlega. Ársreikningurinn og fylgigögn hans eru bundin lögmæltri trúnaðarskyldu og teljast til innherjaupplýsinga.
„Ólögmæt miðlun innherjaupplýsinga til þriðja aðila utan starfsskyldna, s.s. blaðamanns, er refsiverð,“ segir í bréfi regluvarðar dagsettu 5. maí.
Heimildin greindi fyrst frá málinu.
Leki fjárhagsgagna séu markaðssvik
Regluvörður segir að fyrir liggi að upplýsingamiðlun til Morgunblaðsins hafi verið ólögmæt „enda birtist frétt mbl.is, þar sem þegar var búið að vinna úr ársreikningnum, á sömu mínútu og ársreikningurinn var birtur í Kauphöll.“
„Leki á fjárhagsgögnum eru markaðssvik sem grafa undan trausti á fjármálakerfinu og eru alvarlegt brot á siðareglum,“ skrifar regluvörður.
Ársreikningurinn var tekinn fyrir á fundi borgarráðs 27. apríl. Brýnt var fyrir bæði borgarfulltrúum og áheyrnarfulltrúum fundarins að gögnin væru trúnaðarmál fram að opinberri birtingu. Regluvörður skrifar að aðeins hann sjálfur og þeir sem sátu fundinn hafi vitað um tímasetningu birtingar, klukkan 13.30 sama dag.
Tilbúin að veita aðgang að tölvupóstum
Bréf regluvarðar um upplýsingalekann var tekið fyrir á fundi borgarráðs síðasta fimmtudag. Í bókun meirihlutans segir að fulltrúar hans séu tilbúnir að gefa eftirlitsaðilum fullan aðgang að tölvupóstsamskiptum sínum í tengslum við rannsókn málsins. Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir í skeyti til fréttastofu að hann sé einnig tilbúinn að leyfa regluverði að skoða tölvupóst sinn.
Atvikið hefur verið tilkynnt til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands, innri endurskoðunar borgarinnar og endurskoðunarnefndar og er það lagt í þeirra hendur að bregðast við með viðeigandi hætti.
Fréttin var uppfærð eftir að borgarfulltrúi Framsóknarflokksins upplýsti fréttastofu að hann væri tilbúinn að leyfa regluverði að skoða tölvupóst sinn.