Um þúsund skátar víðs vegar að úr heiminum taka þátt í Landsmóti skáta sem hófst á Hömrum við Akureyri í gær og stendur fram á sunnudag. Þemað í ár er norðurslóðir en Hamrar er nyrsta skátamiðstöð í heimi. Margir þátttakendur koma langt að, til að mynda frá Hong Kong og Katar.
Það var ekki annað að sjá en að skátarnir hafi skemmt sér vel í blíðunni þar sem þeir leystu þrautir og voru í hinum ýmsu leikjum.
Vinkonur frá Ástralíu, Jo Alice Burgess, Elin Adams og Hannah Gardiner voru hæstánægðar með dvölina hingað til en þær komu fyrr til landsins með sínu skátafélagi og höfðu farið víða. Þær voru þegar búnar að eignast vini, vonandi til lífstíðar eins og þær sögðu.