Byggðarráð Múlaþings krefst þess að innviðaráðuneytið, Fjarskiptastofa og fjarskiptafyrirtækin geri sameiginlegt áhættumat á áhrifum skertrar fjarþjónustu á öryggi íbúa, ferðamanna og viðbragðsaðila og að ráðist verði í tafarlausar úrbætur þar sem þjónustan standist ekki kröfur um örugg fjarskipti.
Þetta var samþykkt á fundi ráðsins sem haldinn var í gær.
Í bókun lýsir ráðið þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G- og 3G-fjarskiptasendum fyrr á árinu.
Íbúar á landsbyggðinni hafa lýst slæmu símasambandi eftir að slökkt var á sendunum þar sem samband er annaðhvort verra eða dettur alfarið út. Ljóst er að illa getur farið ef fólk nær ekki símasambandi á neyðarstundu.
Furða sig á Fjarskiptastofu
„Múlaþing er víðfeðmt þar sem fjallvegir, firðir, hálendi og fjölsóttir ferðamannastaðir setja mark á samgöngur og búsetu og eru örugg fjarskipti þar grundvallarþáttur almannaöryggis,“ segir í bókuninni.
Í bókun byggðarráðs furða fulltrúar ráðsins sig á því að Fjarskiptastofa hafi heimilað að loka 2G og 3G við þessar aðstæður.
„Með þeirri ákvörðun varð Ísland fyrsta ríkið í Evrópu til að slökkva á þessum kerfum áður en tryggt hafði verið að nýrri kerfi tækju við. Þær aðstæður skapa samhliða óviðunandi hættuástand fyrir íbúa og ferðamenn,“ segir í bókuninni.
Hafa misst samband
- 2G-farsímakerfinu var lokað um áramót.
- 3G-farsímakerfinu var lokað í júnímánuði.
- Tæki sem reiða sig á 3G-kerfið eða eldri kerfi hafa misst farsímasamband.
- Úr 1% símtækja á landsvísu næst ekki samband við Neyðarlínuna eftir lokunina.
- Segja óviðunandi hættuástand hafa skapast fyrir íbúa og ferðamenn.