Forsætisráðherra segir skammbyssuna sem hún fékk frá Tyrklandsforseta á leiðtogafundi NATO í vikunni óvanalega gjöf en áhugaverða. Hún vakti mikla athygli tyrknesks almennings á fundinum og fylgjendafjöldi hennar á Instagram hefur þrefaldast.
Nafn Kristrúnar Frostadóttur er greypt á byssuna sem hún fékk frá Recep Tayyip Erdogan. Allir þjóðarleiðtogar sem sóttu fundinn fengu sambærilega gjöf. Kristrún segir byssuna hafa verið senda til sendiráðs Íslands í Noregi þar sem hún verður gerð óvirk.
„Ég mun ekkert vera með þessa byssu í mínum fórum,“ segir Kristrún.
„Þetta er áhugaverð gjöf en hún er líka kannski táknræn fyrir það sem Tyrkland vill skilja eftir sig þegar kemur að þessari ferð og þessum fundi. Þetta er auðvitað stór og mikill vopnaframleiðandi og þau hafa álitið þetta sem ákveðinn heiður gagnvart leiðtogunum. Þetta er óvanalegt en svona er þetta.“
Forsætisráðherra kom ekki bara byssu ríkari frá fundinum heldur bætti hún einnig við sig tugþúsundum nýrra fylgjenda á Instagram.
Fyrir fundinn var Kristrún með um 40 þúsund fylgjendur en þegar þetta er skrifað eru þeir rúmlega 121 þúsund. Hún segir nýju aðdáendurna óvænta viðbót við ferðina.
„Auðvitað er það ánægjulegt þegar maður á góð samskipti við aðrar þjóðir og ég vona að það sé nú bara jákvætt fyrir ímynd Íslands að þau upplifa að það sé hlýtt á milli landanna tveggja. Þannig að við komum jákvæð út úr þessari ferð,“ segir Kristrún.
Hún segist ekki finna fyrir þrýstingi um að vera virkari á samfélagsmiðlum þrátt fyrir ört stækkandi fylgjendahóp.
„Ég er fyrst og fremst að einbeita mér að innlendum hópi. Ég starfa fyrir Íslendinga og íslensku þjóðina en auðvitað skiptir það máli að við séum með jákvæða ímynd á heimsvísu og vonandi er þetta framlag í það líka.“