Hluti þingmanna Verkamannaflokksins vill fá að kjósa sér nýjan leiðtoga. Til að fá slíka kosningu í gegn þarf samþykki 81 þingmanns flokksins. Þegar hafa 70 þingmenn hvatt Starmer ýmist til að fara frá strax eða fara að leggja drög að því.
Catherine West, þingmaður Verkamannaflokksins, tilkynnti í gær að hún ætli að safna undirskriftum þingmanna til að hvetja Starmer til að boða til leiðtogakjörs í september. Þessu lýsti hún yfir eftir ræðu Starmers til flokksmanna í gærmorgun.
Hún sagði að ýmsar góðar hugmyndir hefðu komið fram í ræðunni en að þær hefðu komið fram of seint og væru ekki nóg. Hún hvatti hann til að segja strax af sér embætti forsætisráðherra.
Hart hefur verið sótt að Keir Starmer, leiðtoga Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands, síðustu daga eftir slakt gengi í sveitarstjórnarkosningum í síðustu viku. Fundur ríkisstjórnar hans er að byrja.
Einn ráðherra í ríkisstjórn Starmers, Miatta Fahnbulleh, sagði af sér í morgun. Hún hvetur Starmer til að gefa út tímaáætlun um brottför sína úr embætti. Þá hafa 70 þingmenn Verkamannaflokksins ýmist hvatt Starmer til að segja af sér eða fara að leggja drög að brottför sinni úr embætti.
Ég heiti Dagný Hulda Erlendsdóttir og ætla hér að greina frá helstu tíðindum úr Downingstræti 10 þennan morguninn.