Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25% fylgi og jafnframt stærsti stjórnmálaflokkur landsins í nýrri könnun Maskínu. Könnunin var framkvæmd í þessum mánuði.
Vísir greinir frá.
Þetta er í fyrsta sinn frá Alþingiskosningum sem Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur í könnun Maskínu. Næststærstur er Samfylkingin sem mælist með 24,4% fylgi. Munurinn á flokkunum er því aðeins 0,6% og innan vikmarka könnunarinnar, sem eru 2,7 prósentustig hjá báðum flokkum.
Ríkisstjórnarflokkarnir, Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins, mælast ekki með meirihluta fylgis, 43%. Það er að vísu 1,3% meira en í júní.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins heldur áfram að aukast
Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt töluverðu fylgi við sig á árinu. Flokkurinn mældist með 13,5% fylgi í janúar og hefur því bætt við sig 11,5% síðan. Í júní mældist flokkurinn með 22,7%.
Samfylkingin mældist með 27% í janúar og 25,2% í júní.
Fylgi Miðflokksins hefur farið dalandi síðan í janúar. Þá mældist flokkurinn með 22,2% fylgi en það hefur farið minnkandi með hverri könnun. Flokkurinn mælist með 13,4% í nýrri könnun Maskínu. Framsókn missir fylgi í könnuninni og fer úr 8,5% í júní niður í 6,6% í júlí.
Flokkur fólksins bætir við sig fylgi í könnuninni og fer úr 4,1% í 5,9%. Fylgi annarra flokka breytist aðeins lítillega á milli mánaða.
Könnun Maskínu var framkvæmd 26. júní til 8. júlí og alls tóku 963 svarendur afstöðu til flokka.