Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í Hafnarfirði.
Fram kemur í tilkynningu að til standi að flokkarnir kynni meirihlutasáttmála á félagsfundum klukkan 17:00 á morgun, þriðjudaginn 26. maí.
Að fundi loknum verður blaðamannafundur í Hamranesi þar sem sáttmáli flokkanna þriggja verður undirritaður og kynntur.
Sökuðu Framsóknarmenn um trúnaðarbrest
Í síðustu viku sögðust oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar ekki geta unnið með Framsóknarflokknum í bæjarstjórn, eftir að í ljós kom að Framsóknarflokkur átti í viðræðum við báða flokka án vitneskju hins.
Í kjölfarið ákváðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins að slíta viðræðum um áframhald á meirihlutasamstarfi í bænum með vísan til „alvarlegs trúnaðarbrests“.
Þá sagði oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði að flokknum hugnaðist ekki samstarf við Framsóknarflokkinn þar sem brögð hefðu verið í tafli. Traust og heiðarleiki í samskiptum væru grundvallarforsenda farsæls stjórnarsamstarfs.
Fulltrúar Framsóknarflokksins í Hafnarfirði höfnuðu alfarið fullyrðingum þess efnis og sögðu að þær ættu ekki við rök að styðjast. Þvert á móti væri það alvarlegt þegar slíkar fullyrðingar væru settar fram í pólitískum tilgangi án þess að standast skoðun.