Ótrúlegt sjónarspil feðgina hefur vakið athygli eftir að myndskeið frá tveimur torfærukeppnum, sem teknar voru með 29 ára millibili, voru borin saman.
Það var Jakob Cecil Hafsteinsson sem setti myndböndin saman og birti inni í Facebook hópnum Torfæruáhugamenn en Jakob hefur verið manna öflugastur við að búa til myndbönd og efni frá torfærukeppnum.
Á eldra myndskeiðinu má sjá Árna Pálsson velta torfærubíl sínum í keppni á Akranesi árið 1997. Á hinu myndskeiðinu má sjá dóttur hans, Thelmu Lind, lenda í nánast nákvæmlega eins veltu í torfærukeppni á Egilsstöðum árið 2026.
„Þetta er alveg dálítið eins,“ segir Jakob í færslunni með myndskeiðunum, þar sem atvikin eru sýnd hlið við hlið.
Ekki liggur fyrir hversu miklar líkurnar eru á því að feðgin velti torfærubílum sínum með svo líkum hætti, með tæplega þriggja áratuga millibili. Þær hljóta þó að teljast ansi litlar.