„Landsleikarnir hefja göngu sína í lok september, spurningaþáttur í beinni útsendingu á laugardagskvöldum á RÚV þar sem bæjarfélög etja kappi og við Guðmundur Pálsson stjórnum. Samsuða af spurningum, þrautum, heilabrotum og harðri keppni,“ greinir Sigrún frá á samfélagsmiðlum.
Sigrún Ósk gerði garðinn frægan og sópaði til sín verðlaunum fyrir þætti á borð við Leitina að upprunanum á Stöð 2 og síðar Sýn.
„Merkilegt nokk þá eru í dag nákvæmlega 25 ár síðan ég fór í mínar fyrstu sjónvarpstökur, þá fyrir unglingaþátt á RÚV. Skemmtileg hringrás og tala sem við hljótum að vera sammála um að sé einhver villa í kerfinu,“ segir hin síunga Skagamær.
Sigrún Ósk mun stýra þættinum ásamt Guðmundi Pálssyni, söngvara og verkefna- og þróunarstjóra hjá Blaðamannafélagi Íslands.