Sigmar Ó. Maríusson er fallinn frá

Sigmar Ó. Maríusson gullsmiður er látinn, 91 árs að aldri. Aðstandendur hans greina frá andláti hans.
Sigmar fæddist 8. mars árið 1935 í Hammi í Þistilfirði. Foreldrar hans voru Maríus Jósafatsson og Sigrún Aðalsteinsdóttir.
Þegar Sigmar var 21 árs gamall missti hann báða fætur sína í bílslysi. Hann lá á sjúkrahúsi í tæpt ár áður en hann fékk gervifætur á sjúkrahúsi í Danmörku.
Hann rak verslunina Módelskartgripi í miðbæ Reykjavíkur í meira en þrjátíu ár og hlaut fálkaorðuna fyrir störf sín.
Sigmar var kvæntur Þórdísi Jóhannsdóttur og eignuðust þau fimm börn. Eftir andlát Þórdísar var sambýliskona hans Ragnheiður Ríkharðsdóttir og eignuðust þau eitt barn saman.