Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni - Vísir
22.04.2026 18:05:47👁️ 0 lesið
Efnt var til íbúafundar í Grindavík síðdegis í dag. Við verðum á staðnum og ræðum við fólk í beinni. Auk þess hittum við skósmið sem segir stéttina vera að deyja út og skoðum öryggisleitina á Keflavíkurflugvelli. Þá verðum við í beinni útsendingu frá Ungfrú Ísland keppninni sem fer fram í kvöld, hitum upp fyrir úrslitaeinvígið í Olís deildinni og í Íslandi í dag kynnir Tómas Arnar sér nýjasta æðið - sem nefnist Hyrox.Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Bylgjunnar, Sýnar og Vísis klukkan 18:30.