Siðferðilegur hugleysingi

Jón Magnússon skrifar:
Því miður kom það í hlut hins vanhæfa utanríkisráðherra, sem hefði átt að vera búin að axla ábyrgð og segja af sér fyrir löngu, að flytja ræðu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Fyrir utan almennar klisjur, þá var ræða utanríkisráðherra samfelld árás á þau ríki, sem við höfum hingað til verið í sem bestu samstarfi við og á sama tíma og hún samsamaði sig með fulltrúum Arabaríkjanna og annarra vinstri sinnuðustu ríkja Sameinuðu þjóðana með dulbúinni árás á magnþrungna og frábæra ræðu Benjaminn Netanyahu forsætisráðherra Ísrael þar sem hann rakti hvílíkir siðferðilegir hugleysingjar stjórnmálamenn eins og Þorgerður Katrín eru.
Siðferðilegi hugleysingin Þorgerður Katrín ákvað að Ísland skyldi standa að kæru með siðlausa ríkinu Suður Afríku á þjóðarmorði Ísrael á Gasa, þrátt fyrir að henni væri ljóst, að það er ekki verið að fremja þjóðarmorð á Gasa. En það var þægilegra og í samræmi við siðferðilegt hugleysi ráðherrans að fara þessa leið og því miður var engin í ríkisstjórn Íslands til að stoppa þessa dellu.
Að öðru leyti hefði ræða Þorgerðar eins vel getað verið samin af Ursulu von der Leyen því öll áhersluatriðin voru þau sömu og ESB þ.á.m. atriði varðandi loftslagsmál sem gæti gengið af íslenskum flugfélögum og skipafélögum dauðum, stríðið í Úkraínu auk annars sem möppudýrunum í Brussel er umhugað um.
Hafi það verið markmið ríkisstjórnarinnar að troða illsakir við góð bandalagsríki og vinaríki okkar eins og Bandaríkin og Ísrael þá tókst utanríkisráðherra heldur betur að þjóna því markmiði með ræðu sinni.
Já og það einmitt á þeim tíma, sem miklu skiptir að rækta vel samskiptin við Bandaríkin, sem aldrei hafa krafist þess að við breyttum íslenskum lögum þeim í vil eða sóst eftir að ráða hér einu eða neinu þrátt fyrir að ábyrgjst hernaðarlegt öryggi Íslands til tryggingar sjálfstæði þjóðarinnar.
Ein setning kom mér í hug þegar ég las ræðu Þorgerðar. Það var "þvílík skömm." Því miður þá ber ríkisstjórnin öll ábyrgð á þessari ræðu. Hvernig datt velviljuðum forsætisráðherra sem virðist miðað við ýmislegt sem hún segir hafa toppstykkið í utanríkismálum í lagi í hug að láta Þorgerði flytja stefnuræðu íslensku ríkisstjórnarinnar á þessum vettvangi. Algjör glópska.
Dapurlegt að íslenska ríkisstjórnin skuli hafa með ræðu Þorgerðar ákveðið að taka sér stöðu með öfga vinstri ríkisstjórn Pedro Sanches forsætisráðherra Spánar í alþjóðamálum. Það er þjóðinni síst til framdráttar.