Næstu skref ríkisstjórnarinnar varðandi umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu liggja enn ekki fyrir. Við ræðum við utanríkisráðherra og forsætisráðherra um málið. Formaður Sjálfstæðisflokksins mætir síðan í myndver og fer yfir kröfur stjórnarandstöðunnar.
Þá verður rætt við forstjóra Sýnar á tímamótum í íslenskri fjölmiðlasögu og litið yfir stór augnablik í sögu kvöldfrétta.
Fulltrúar VR og fagfélaga þess funda nú um mögulegar aðgerðir þar sem forsendur kjarasamninga eru brostnar. Formaður VR stígur út af fundinum og ræðir við okkur í beinni. Þá verðum við einnig í beinni með formanni Neytendasamtakanna en bensínverð hækkar aftur á miðnætti þegar tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rennur út.
Kristján Már Unnarsson mætir einnig í myndver og segir okkur frá mikilli samgöngubót á Norðausturlandi. Þá kíkjum við á Akureyri þar sem skipagrunnur fauk á fjölda bíla og við hittum Pólverja á þrítugsaldri sem hlaut flest atkvæði í persónukjöri í sveitarstjórnarkosningunum í Langanesbyggð í vor.
Í Sportfréttum verður meðal annars fjallað um svokallaða bókhaldsbrellutíð í enska boltanum og í Íslandi í dag kynnir Lilja Katrín Gunnarsdóttir sér námskeið þar sem foreldrar læra að vera leiðinlegir.
Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30.