Hátt í þúsund farþegar eru í skemmtiferðaskipinu Seven Seas Grandeur sem kom til Grundarfjarðar í morgun. Bærinn hefur tekið á móti tugum skemmtiferðaskipa í sumar og von er á fleiri skipum á næstu vikum.
Pálmi Jóhannsson, forstöðumaður menningar- og markaðsmála í Grundarfirði, segir að almennt hafi gengið vel að taka á móti skemmtiferðaskipum í sumar þó að veðrið hafi ekki hjálpað síðustu vikur.
„Það eru nokkur sem hafa þurft frá að hverfa vegna veðurs. Það hefur verið töluvert hvasst. Það eru nokkur sem hafa ekki komist að bryggju.“
Pálmi telur að um sex skip hafi ekki náð að leggjast að bryggju á Grundarfirði vegna veðurs. Hann segir komu hvers skips skipta máli en að fjarvera skipanna hafi þó ekki stórvægileg áhrif.
Skipakomurnar skipti máli fyrir atvinnulíf bæjarins
Skipakomurnar skipta töluvert miklu máli fyrir atvinnulífið í bænum, þá sérstaklega fyrir verslun og þjónustu, veitingahúsin og kaffihúsin og þá sem byggja afkomu sína á ferðaþjónustu.
Íbúar taka almennt vel í komur skemmtiferðaskipa segir Pálmi, þó eru ákveðnar fjöldatakmarkanir í gildi.
„Við tökum ekki fleiri farþega en 4.000. Það er í rauninni bara hugsað sem þolmörk íbúa og samfélagsins, þannig að við tökum ekki fleiri en 4.000 í einu.