Sér mest eftir full­yrðingum sínum um ein­hverfu - Vísir

Sér mest eftir full­yrðingum sínum um ein­hverfu - Vísir

Sér mest eftir full­yrðingum sínum um ein­hverfu - Vísir

Árið 2022 komu út tveir þættir af fréttaskýringaþættinum Kompási um trúarlegt ofbeldi og ofbeldi í andlega heiminum. Í fyrri þættinum var rætt við fólk sem hafði sloppið úr sértrúarsöfnuðum og í þeim seinni var rætt við fólk sem hafði orðið fyrir ofbeldi, svikum og misbeitingu í andlega heiminum við að reyna að leita sér aðstoðar. 

Stjörnukortalestur Gísla Bachman stjörnuspekings var meðal umfjöllunarefna seinni þáttarins og var þar rætt við konu sem hafði farið til hans og greitt fyrir hans þjónustu. Hún sagði hann hafa gengið fram af sér og vinkonum sínum með ofstopafullu tali og særandi framkomu. 

Meðal þess sem kom fram í þættinum og vakti athygli voru orð Gísla um að skilja Hitler, ásakanir hans í garð vinkvennanna um að hafa skaðað börn sín svo mikið að þau væru orðin einhverf og svo grætti hann eina konuna með ásökunum um að hún væri narsissisti. 

Gísli vildi sjálfur ekki veita Kompási viðtal þegar eftir því var leitað á sínum tíma. Hann og eiginkona hans, Elín Kristjánsdóttir, eru hins vegar nýjustu gestir í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar og ræddu þau þar umfjöllun Kompáss og áhrifin sem þátturinn hefur haft á mannorð Gísla og líf þeirra síðustu fjögur árin.

Sjokkerandi að vera flokkaður með grófum ofbeldismönnum

Þáttur Kompáss um Gísla kom út 10. maí 2022 og stikla fyrir þáttinn fimm dögum fyrr, á afmælisdegi hans, en þau segja líf sitt hafa hrunið í kjölfarið. Gísli segir að það hafi komið sérstaklega illa við hann að vera settur í hóp með öðrum sem höfðu verið sakaðir um alvarlegt ofbeldi í þættinum á meðan ásakanir í hans garð byggðu á særandi framkomu í einum stjörnulestri. 

„Við sitjum þarna á mánudagskvöldi þegar þátturinn kemur út og horfum á þetta og erum gjörsamlega slegin bæði tvö,“ segir Gísli um sýningu þáttarins á sínum tíma.

Margir í kringum hjónin höfðu sömuleiðis misskilið umfjöllunina og virtust telja að hann væri einn til umfjöllunar í þættinum. Fyrir Gísla hafi verið áfall hvað margir töldu hann vera grófan ofbeldismann og settu samasemmerki milli hans og hinna í þættinum.

„Það sem var sjokkerandi við umfjöllunina var að fólk héldi raunverulega að ég væri þessi ofbeldiskarl í einhverju kynferðislegu dæmi og kakóseremóníum að tæla einhverjar stelpur til mín,“ segir Gísli.

Ásakanirnar á hendur Gísla snerust um særandi orð og óviðeigandi framkomu í garð kvennanna sem sóttu þennan stjörnukortalesturstíma hjá honum.

„Þetta voru bara orð. Síðan hef ég lent í alls konar hlutum þar sem orðin sitja með mér til langs tíma,“ segir Gísli um gjörðir sínar.

„Þú þarft að bera ábyrgð á því sem þú segir, orð eru álög í raun og veru. Maður þarf að vanda sig og taka ábyrgð á því sem maður segir,“ bætir Elín þá við.

Sér mest eftir tali um einhverfu

Gísli segist fyrstur allra gangast við því að hann hafi gert hluti sem hafi ekki verið í lagi, en veltir því upp hvort afleiðingarnar séu ekki komnar úr öllu sem eðlilegt gæti talist. 

„Þetta var tæplega þriggja tíma hittingur og ég er að fara inn í kenningar Carls Jung um skuggann. Við þurfum að horfast í augu við alla þessa parta, ekkert endilega með það í huga að við séum bókstaflega á slíka vegu,“ segir hann um það sem hafi meðal annars sjokkerað.

Hann hafi í tímanum talað um að horfast í augu við síkópatann og narsissistann innra með sér til að kanna hvort gjörðir eða hegðun samsvöruðu sér í slíku. Mest sjái hann eftir orðum sínum um einhverfu sem lituðust af vanþekkingu og fáfræði.

Gísli ræddi glímu sína við geðhvörf í þættinum.

„Það sem ég sé hvað mest eftir var að ég talaði um einhverfu og það ristir dýpst að hafa sagt það. Ég hélt á þeim tíma að ég væri einhverfur,“ segir Gísli en í þættinum sakaði hann konurnar um að bera ábyrgð á einhverfu barna sinna.

„Gísli var líka mjög staðhæfingaglaður á tímabili sem fór mjög mikið í taugarnar á mér,“ segir Elín.

„Þar tók ég inn að ég ætti ekki að vera að tala með rassgatinu og ekki vera að segja eitthvað sem ég veit ekkert um. Fyrir þá sem horfðu á þetta og móðguðust þá bara innilega afsakið það sem ég sagði. Ég var að tala um að foreldrar myndu eyðileggja börnin sín og þar af leiðandi væru þau einhverf,“ segir Gísli.

„Það er það sem ég sé hvað mest eftir,“ segir Gísli en telur annað hafa verið tekið úr samhengi. Nefnir hann meðal annars orð sín um Adolf Hitler sem tengdust því hvernig fólk mótast af umhverfi sínu.

Ákveðin gjöf að vera hent ofan í pyttinn

„Gjöfin í kjölfarið af þessum blessaða sjónvarpsþætti var sú að mér var eiginlega hent í pytt af erfiðum tilfinningum sem ég hafði í raun ekkert getað tekist á við. Ég hafði oft talað um að það væri einhver hleri þarna niðri sem ég vildi komast í, ég vissi að það væru tilfinningar þarna sem mig langaði að fá að kljást við en gat ekki,“ segir Gísli.

„Svo kemur þátturinn og þá er hlerinn opnaður, mér hent niður og honum læst. Ég enda á að fá taugaáfall og ég veit ekki hvað og hvað. Það sem var fallegt í þessu var að ég fékk tækifæri til að skoða parta af mér, alls konar minningar og fyrst og fremst rosalega brotna sjálfsímynd.“

Gísli segist hafa þjáðst af hetjukomplexi vegna brotinnar sjálfsmyndar.

„Ég var lagður í rosalega hart einelti og stjúppabbi minn á heimilinu gat verið mjög harður sem mótaði sjálfsmyndina mína, mér leið eins og ég væri einskis virði. Þannig sagði innri röddin að ég þyrfti að vera svo stórfenglegur til að vera einhvers virði,“ segir Gísli.

„Hægt og rólega steig þetta mér til höfuðs og 2014 fæ ég mína fyrstu maníu. Ég er úti í Kína í hálft ár að læra kungfu og tai chi og kem heim í maníunni og bókaði stærsta salinn í Háskólabíói til að halda fyrirlestur. Þetta var ógeðslega fyndið, það mættu 170 manns en þetta er þúsund manna salur,“ segir hann.

„Fyrir þetta atvik er ég búinn að fara í sjö maníur,“ segir Gísli

„Þú varst ekki búinn að segja mér frá þeim,“ svarar Elín þá.

„Var ég ekki búinn að telja þær upp?“ segir Gísli og bætir við: „Við tökum gott spjall í bílnum.“

Gísli byrjaði í stjörnuspeki árið 2016 eftir að hafa verið týndur lengi.

Gísli hafi síðan fundið stjörnuspekina árið 2016, farið að lesa í stjörnukort hjá fólki og það hafi fóðrað egóið hans. Hann hafi þá öðlast meiri næmni og tól til að fá upplýsingar um fólk sem það vildi ekki deila. Hann hafi verið stoltur af því að komast inn um þessar dyr en um leið gengið fram af fólki.

„Ég vil taka ábyrgð á umfjölluninni og ekki segja að hún hafi verið kjaftæði. Ef þau höfðu á réttu að standa þá bara frábært, ég skal taka ábyrgð á þessu og hreinsa út þessa hegðun sem fylgdi út frá þessu. Þarna fannst mér geðveikt töff að triggera fólk og þá fann ég að það lifnaði tilfinning hjá þeim,“ segir hann.

„Þá var ég að reyna að gera góða hluti en endaði oft á að vera mjög óþægilegur.“

Fór í maníu átta dögum fyrir stjörnukortalesturinn

„Það sem var svo gott við þáttinn líka var að ég hafði ekki tekið ábyrgð á geðhvörfunum. Mér fannst þetta eiginlega skemmtilegt eins og flestum bi-polar, þeim finnst gaman í maníunni og maður vill ekki hætta því,“ segir Gísli.

„Það sem var áhugavert þegar þátturinn kemur út þá fer ég að skoða: „Ókei, shit. Þetta var ekki eitthvað léttvægilegt.“ Ég fer þarna í maníu átta dögum fyrir hittinginn með þessum stelpum.“

Hann hafi farið að skoða eigin veikindi og ranghugmyndir eftir að þátturinn kom út.

„Fólk hefur oft spurt mig: „Ertu tilbúinn að opna þig sem bi-polar? Er það ekki að fara að loka dyrum í lífinu?“ En ég er einhvern veginn þannig að mér finnst ég ekki hafa neitt að fela. Fyrir þáttinn hafði ég í þrjú og hálft ár verið með þær hugmyndir að ég væri spámaður vatnsberaaldarinnar,“ segir Gísli.

Elín segist hafa fengið kjánahroll í hvert skipti sem hann talaði um það á sínum tíma.

„Maðurinn minn er frábær en hann er líka stórskrýtinn,“ segir hún og hlær.

Gísli segist framan af hafa verið hræddur við að opinbera trú sína um að hann væri spámaður vatnsberaaldarinnar en hafi opinberað það í afmæli sínu árið 2022 við mikla furðu gesta. Svo hrundi allt nokkrum dögum síðar.

„Þátturinn neyðir mig til að skoða þetta og hvaðan einstaklingur fær ranghugmynd um að vera næsti Jesú. Þá fer ég í þennan djúpa pytt og átta mig á því að þarna er brjálæðislega brothætt sjálfsmynd og virðisleysi,“ segir hann.

Þeir sem séu reiðastir traðki um leið á öðrum

Sölvi nefndi í þættinum að það væri ákveðin gjöf að ganga í gegnum hremmingar eins og Gísli gekk í gegnum. Fólk verði að betri manneskjum og þroskist. Um leið spyr hann hvenær megi setja strik í sandinn og halda áfram með lífið.

„Og hvenær hættir samfélagið að vera geðveikt meðvirkt með einni umfjöllun út frá einu sjónarhorni? Sem gerir það að verkum að fólk þorir ekki að ráða hann í vinnu þar sem hann er í samskiptum við annað fólk. Að geta ekki myndað sína eigin skoðun eða staðið með sinni skoðun. Af hverju erum við svona ógeðslega hrædd?“ segir Elín.

Elín spyr hvenær nóg sé nóg.

„Svo finnst mér þetta líka vera upp til hópa réttlætisriddarar sem eru mjög aggressívir. Þau eru brjáluð yfir því að það sé verið að vaða yfir einhvern ákveðinn hóp af fólki en gera sér ekki grein fyrir því að þau séu að traðka á fólki sjálf. Þetta er auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. Rosalega mikil hefnigirni og hatur, hvar er ástin, mildin og kærleikurinn fyrir náunganum? Kannski getum við líka lært að fyrirgefa,“ bætir hún við.

Þau hjónin segja ógnvekjandi hvað margir sneru við þeim baki eftir umfjöllunina. Fólk sem hafi þekkt Gísla úr grunnskóla og menntaskóla, vann með honum og var í íþróttum með honum hafi snúið við þeim baki þrátt fyrir að hafa þekkt hann vel.

„Það sýnir manni hverjir eru raunverulegir vinir,“ segir Gísli og bætir við: „Það voru tveir sem ég kallaði mjög góða vini mína sem tóku mjög leiðinlegan pól. Ég hitti annan þeirra um daginn og hann ætlaði að vera eitthvað kammó. En ég var ekki til í að taka upp vinaþráðinn eftir það hvernig hann talaði við mig eftir að þátturinn kom út.“

Fékk taugaáfall og hefur ítrekað verið sagt upp störfum

Gísli segir að sér hafi sex sinnum verið sagt upp störfum eingöngu út af umfjölluninni fyrir fjórum árum.

„Ég fékk taugaáfall, fékk inn hjá Virk og fékk rosalega góða aðstoð þar. Svo þegar ég er orðinn góður fæ ég starf í grunnskóla sem afleysingakennari, er settur sem umsjónarkennari þremur vikum seinna og allir rosalega ánægðir með mig í vinnu,“ segir Gísli.

„Svo kemst einhver kennarinn að þessum sjónvarpsþætti og þá er mér sagt upp med det samme. Þá fæ ég símtal, önnin var búin og ég fæ símtal frá deildarstjóra um að þau muni ekki bjóða mér áframhaldandi samning.“

Hjónin segjast enn finna fyrir afleiðingum umfjöllunarinnar.

Eftir að Gísla var sagt upp hjá skólanum hafi hann farið að vinna í bæjarvinnunni en ekki fundist sú vinna nægilega örugg fjárhagslega. Hann fór þá að þjálfa unglinga í frjálsum íþróttum.

„Ég fór að þjálfa frjálsar og þar kom önnur sprengja þegar foreldrar fréttu af þessu og það varð allt vitlaust,“ segir hann og fólk hafi sagt: „Hvað eruð þið að hafa þennan gæja að þjálfa börnin okkar.“

Sagt upp á leikskóla eftir sex daga í vinnu

Í kjölfarið fór Gísli að vinna í bókhaldinu hjá fyrirtæki föður síns. Það starf hafi ekki átt við hann þannig eftir tvö ár í bókhaldinu fór hann að vinna sem nuddari á sjúkraþjálfarastöð.

„Þá eru þrjú ár liðin frá þættinum, ég hafði verið í tvö ár í bókhaldinu og með hlaðvarpið mitt með stjörnuspekina í eitt og hálft ár og ekkert komið meira um málið á netið,“ segir Gísli. 

Gísli hafi þá verið viss um að málinu væri endanlega lokið og hann gæti haldið áfram með líf sitt.

„Maður er ennþá að díla við þennan ótta um það hvað fólki finnst. Þannig ég átti ógeðslega erfitt með að auglýsa og segja frá því hvað ég var að gera,“ segir Gísli og sá ótti hafi leitt til þess að nuddið hafi ekki gengið upp.

„Þannig ég þvinga mig í að þora að sækja um á leikskóla - Elín orðaði það svo vel, leikskólar eru alltaf að leita að starfsfólki, hvað þá karlmönnum. Þannig ég fæ starf á frábærum leikskóla og byrja að vinna. Sex starfsdögum seinna er ég kallaður inn á fund skólastjóra og sagt upp störfum,“ segir hann.

Gísla hafi þá verið sagt upp af þeim forsendum að hann hafi ekki greint þeim frá málinu þegar hann var ráðinn. Það hafi verið í sjötta skiptið sem honum var sagt upp störfum frá því að þátturinn kom út.

„Þetta gerist um miðjan nóvember og svo krössuðum við bæði alveg harkalega í desember,“ segir Gísli.

„Þetta var dropinn sem fyllti mælinn og þá fann ég hvað þetta var búið að hafa mikil áhrif á mig án þess að horfast í augu við það. Og líka orkan sem fer í að halda þessu leyndu, að tala ekki um þetta við neinn nema sína nánustu og fela þetta fyrir vinnufélögum. Mér finnst ég vera að fela part af sjálfri mér,“ segir Elín.

#eftir #fullyrðingum #mest #sér #sínum


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262889190d/ser-mest-eftir-full-yrdingum-sinum-um-ein-hverfu

📰 Aðrar fréttir

12 fórust í skógareldum í Alsír
📅 27.08.2026 👁️ 0
12 fórust í skógareldum í Alsír
12 fórust og 54 eru slasaðir, þar af sex alvarlega, eftir mikla skógarelda í norðausturhluta Alsír í gær.France 24 greinir frá því að rúmlega 150 skóg...
Susan Sarandon leads tributes to Rocky Horror Picture Show co-star Tim Curry
📅 27.08.2026 👁️ 0
Susan Sarandon leads tributes to Rocky Horror Picture Show co-star Tim Curry
Stars of stage and screen grieve the cult British actor, who has died aged 80.
Saka yfirvöld um sein viðbrögð eftir dauða 14 nýfæddra barna
📅 27.08.2026 👁️ 1
Saka yfirvöld um sein viðbrögð eftir dauða 14 nýfæddra barna
Fjórtán nýfædd börn létust í eldsvoða á fæðingardeild í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í nótt. Aðeins einu barni tókst að bjarga.Yfirvöld segja slökk...
Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins - Vísir
Viðræður milli ríkjanna strönduðu fyrir síðustu helgi og ætla Bandaríkjamenn því að beita Kanada umfangsmiklum tollum. Ráðamenn í Kanada lýstu því yfi...
At least one dead after car crashes into crowd in northern France
📅 26.08.2026 👁️ 1
At least one dead after car crashes into crowd in northern France
One suspect was arrested after the incident in Caen, police said, following a reported fight at a nearby bar.
Mikil­vægt að fatlaðir geti tekið þátt í um­ræðunni - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Mikil­vægt að fatlaðir geti tekið þátt í um­ræðunni - Vísir
Félagið Átak bauð fulltrúum já- og nei-hreyfinga að mæta á fund þar sem þau voru spurð spjörunum úr en í brennidepli voru málefni fólks með þroskahaml...
Scottish Highlands benefiting from 'coolcation' trend
📅 26.08.2026 👁️ 1
Scottish Highlands benefiting from 'coolcation' trend
Scotland and other northern European nations are seeing more tourists as people avoid the heat.
Treatment involving patient's family cuts mental health hospital admissions, study finds
📅 26.08.2026 👁️ 1
Treatment involving patient's family cuts mental health hospital admissions, study finds
The approach focuses on the patient priorities, seeing the same clinicians, and involving people close to them.
First patient to have brain surgery with real-time AI assistance
📅 26.08.2026 👁️ 1
First patient to have brain surgery with real-time AI assistance
Without brain surgery guided by live AI assistance, Rhys Hibbert could have lost his sight to a tumour.
Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ - Vísir
Tónlistarmaðurinn og áhrifavaldurinn Aron Kristinn, sem var áður meðlimur hljómsveitarinnar ClubDub en rekur nú fataverslun og kemur að öðrum tónlista...
Segir neikvætt svar á laugardaginn veikja stöðu ríkisstjórnarinnar
📅 26.08.2026 👁️ 1
Segir neikvætt svar á laugardaginn veikja stöðu ríkisstjórnarinnar
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, telur að ef svar þjóðarinnar á laugardaginn er neikvætt veiki það stöðu ríkisstjórnarinnar. Eins og fle...
Haft sam­band við þá bændur sem búa næst gilinu - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Haft sam­band við þá bændur sem búa næst gilinu - Vísir
Greint var frá því á mánudag, þann 24. ágúst, að manns væri leitað sem hefði fallið út í Jöklu við Stuðlagil en hann fannst látinn á áttunda tímanum u...
Kristrún: „Sækjum góðan samning fyrir Ísland og sjáum svo til — við getum það vel — og við höfum gert þetta áður“
📅 26.08.2026 👁️ 1
Kristrún: „Sækjum góðan samning fyrir Ísland og sjáum svo til — við getum það vel — og við höfum gert þetta áður“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði samkomuna Þjóðin ræður í Austurbæjarbíói í kvöld. Sagði Kristrún að Íslendingar væru vitur þjóð sem bæ...
Eiginkonan setti upp myndavélar og þá kom í ljós hvað eiginmaðurinn hafði gert við heimilishundinn
📅 26.08.2026 👁️ 1
Eiginkonan setti upp myndavélar og þá kom í ljós hvað eiginmaðurinn hafði gert við heimilishundinn
Bandarískur lögmaður á sextugsaldri gæti átt yfir sér þungan dóm eftir að hann var gómaður við að hafa mök við heimilishundinn. Eiginkona hans hafði s...
Já-hliðin: Bóndi vill losna við krónuna og telur íslenskan landbúnað ráða við aðild
📅 26.08.2026 👁️ 1
Já-hliðin: Bóndi vill losna við krónuna og telur íslenskan landbúnað ráða við aðild
Logi Sigurðsson, sauðfjárbóndi og umhverfisfulltrúi í Borgarbyggð, ætlar að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag. Hann segir að Íslendingar...
Frost, hiti, þurrkur og reykur breyta víni ársins
📅 26.08.2026 👁️ 1
Frost, hiti, þurrkur og reykur breyta víni ársins
Haustverk franskra vínbænda eru að tína vínber. Þannig hefur það verið lengi, en ekki í ár. Vínberjatínsla hófst óvenju snemma víða í Frakklandi í sum...
Burnham calls summit of first ministers of Wales, Scotland and Northern Ireland
📅 26.08.2026 👁️ 1
Burnham calls summit of first ministers of Wales, Scotland and Northern Ireland
The announcement comes as Burnham holds his first official visit to Wales since becoming prime minster.
Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu - Vísir
Fjöldi erlendra miðla hefur fjallað um andlátin en í umfjöllun norska miðilsins NRK segir að heilbrigðisyfirvöld í Frankfurt hafi greint frá því að tv...
BBC visits hospital in Kathmandu as families wait for news
📅 26.08.2026 👁️ 1
BBC visits hospital in Kathmandu as families wait for news
More than 150 people have been killed after a massive flash flood on the Nepal-Tibet border, as hundreds still missing.
5.200 fermetra nýbygging við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
📅 26.08.2026 👁️ 1
5.200 fermetra nýbygging við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi
Húsnæði stofnunarinnar á Selfossi er löngu orðið sprungið og miklir erfiðleikar eru við að finna eitthvað laust pláss fyrir aukna starfsemi.Forstjóri ...
Aunt who died in Middlesbrough house fire was 'beautiful soul'
📅 26.08.2026 👁️ 1
Aunt who died in Middlesbrough house fire was 'beautiful soul'
Two men have been arrested on suspicion of murder over the fire in Middlesborough, police say.
Regnbogafánum stolið frá Orkuveitunni - „Við hörmum þetta atvik“
📅 26.08.2026 👁️ 1
Regnbogafánum stolið frá Orkuveitunni - „Við hörmum þetta atvik“
Orkuveitan greinir frá því að regnbogafánum hafi verið stolið við höfuðstöðvarnar. Þegar hafa verið keyptir nýjir fánar og dregnir að húni.Þetta kemur...
Svona var á­varp Krist­rúnar vegna at­kvæða­greiðslunnar - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Svona var á­varp Krist­rúnar vegna at­kvæða­greiðslunnar - Vísir
Viðburðurinn, sem kallast „Þjóðin ræður“, rúllaði af stað klukkan 17:30 en í tilkynningu sem var send út fyrir fögnuðinn sagði að Kristrún myndi þar f...
Lítilsvirðandi að segja að upp­sagnirnar muni ekki bitna á þjónustu - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Lítilsvirðandi að segja að upp­sagnirnar muni ekki bitna á þjónustu - Vísir
Í gær var tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar sagt upp störfum í hópuppsögn sem nær til velferðar-, frístunda-, og skólasviða. Breytingarnar leiða til...
Vand­ræða­legt þegar stjórn­mála­menn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Vand­ræða­legt þegar stjórn­mála­menn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu - Vísir
Í gær var tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar sagt upp störfum í hópuppsögn sem nær til velferðar-, frístunda-, og skólasviða. Breytingarnar leiða til...
„Þekkingarleysið á þessum málaflokkum skín í gegn í tali þeirra“
📅 26.08.2026 👁️ 1
„Þekkingarleysið á þessum málaflokkum skín í gegn í tali þeirra“
Formaður Sameykis segir umfangsmiklar skipulagsbreytingar á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar einkennast af þekkingar- og s...
Moment Peter Kay interrupts live weather forecast
📅 26.08.2026 👁️ 1
Moment Peter Kay interrupts live weather forecast
Comedian Peter Kay interrupted North West Tonight weather presenter live on-air
Canal killer John Sweeney, who dismembered victims, dies in jail
📅 26.08.2026 👁️ 1
Canal killer John Sweeney, who dismembered victims, dies in jail
John Sweeney was serving a whole-life sentence after being convicted in 2011 of the two murders.
Bill Gates spáir fyrir um hættur gervigreindar
📅 26.08.2026 👁️ 1
Bill Gates spáir fyrir um hættur gervigreindar
Bill Gates spáir fyrir um hættur gervigreindar Heim­ur­inn er hættu­lega óvið­bú­inn áhrif­um gervi­greind­ar, seg­ir Bill Gates, sem tel­ur hana munu...
Opinbera hvað brúðkaupsferðin til Íslands kostaði - „Veðrið var grunsamlega gott“
📅 26.08.2026 👁️ 1
Opinbera hvað brúðkaupsferðin til Íslands kostaði - „Veðrið var grunsamlega gott“
Kanadamaður greinir frá því í nýrri færslu á Reddit hvað brúðkaupsferð hans og nýbakaðrar eiginkonu hans til Íslands kostaði síðasta vor. Ferðin stóð ...
Orðið á götunni: „Áfram Ísland“ bindur allar vonir sínar við Katrínu Jakobsdóttur, stjórnarmann í fasteignafélagi
📅 26.08.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: „Áfram Ísland“ bindur allar vonir sínar við Katrínu Jakobsdóttur, stjórnarmann í fasteignafélagi
Katrín Jakobsdóttir var eitt sinn vonarstjarna félagshyggjufólks á Íslandi. Sú sem átti að sameina þau öfl og mynda framfarasinnaða stjórn sem myndi a...
Sema neitar sök í fjársöfnunarmálinu og sendir pillu á Einar S. Hálfdánarson
📅 26.08.2026 👁️ 1
Sema neitar sök í fjársöfnunarmálinu og sendir pillu á Einar S. Hálfdánarson
Sema Erla Serdaroglu, hjá samtökunum Solaris, mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í dag til að svara til saka vegna ákæru um brot á lögum um opinberar fjárs...
„Ég held að það vilji enginn enda þannig að vera inni í skáp í líkhúsi“
📅 26.08.2026 👁️ 1
„Ég held að það vilji enginn enda þannig að vera inni í skáp í líkhúsi“
Framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkur segir ekki skýrt í lögum hver beri ábyrgð á líki frá útgáfu dánarvottorðs þar til útför fer fram. Um þrjú hun...
Camilla Rut og Val­geir hafa slitið trú­lofuninni - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Camilla Rut og Val­geir hafa slitið trú­lofuninni - Vísir
Það er mbl.is sem greinir frá en þar er haft eftir Camillu að þau séu enn bestu mátar en hún hefur nú flutt búferlum að Hellishólum ásamt sonum sínum....
Moment Peter Kay gatecrashes North West Tonight weather
📅 26.08.2026 👁️ 1
Moment Peter Kay gatecrashes North West Tonight weather
The comedian interrupted North West Tonight weather presenter Molly Brewer as she gave her report.
Leik­skóli spratt upp eins og gor­kúla - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Leik­skóli spratt upp eins og gor­kúla - Vísir
Nánast fullbúin bygging er risin við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal sem mun hýsa sjö deilda leikskóla fyrir 120 börn. Á tæpum mánuði hefur svæðið umturna...
Virðisaukaskattur á baðlón umdeildur
📅 26.08.2026 👁️ 1
Virðisaukaskattur á baðlón umdeildur
Forsvarsmenn baðlóna hér á landi hafa gagnrýnt harkalega þá hugmynd að hækka virðisaukaskatt úr 11% í 24% á þeirra starfsemi. Slíkt er inni í áformum ...
UK weather: New thunderstorm warnings as rain set to continue
📅 26.08.2026 👁️ 1
UK weather: New thunderstorm warnings as rain set to continue
The Met Office has issued fresh thunderstorm warnings for Thursday with the potential for England and Wales to see flash flooding as the unsettled wea...
Nýtt áhættumat sýnir veikleika í snjóflóðavörnum Siglufjarðar
📅 26.08.2026 👁️ 1
Nýtt áhættumat sýnir veikleika í snjóflóðavörnum Siglufjarðar
Nýtt mat á hættu vegna ofanflóða fyrir Siglufjörð sýnir að bærinn er ekki eins vel varinn fyrir snjóflóðum og áður var talið. Lagt var fram endurskoða...
Láti eins og þjóðin geti ekki skilið um hvað málið snúist - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 2
Láti eins og þjóðin geti ekki skilið um hvað málið snúist - Vísir
Nú þegar aðeins eru þrír dagar til stefnu og kosningabaráttur beggja hliða að ná hámarki hafa verið haldnir ýmsir fundir, pallborð og kappræður en Kri...
Af­hjúpi ekkert nema þeirra eigin við­horf til fólksins í landinu - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Af­hjúpi ekkert nema þeirra eigin við­horf til fólksins í landinu - Vísir
Nú þegar aðeins eru þrír dagar til stefnu og kosningabaráttur beggja hliða að ná hámarki hafa verið haldnir ýmsir fundir, pallborð og kappræður en Kri...
Illa lagður pallbíll upp­hafið að nágrannaerjum - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 2
Illa lagður pallbíll upp­hafið að nágrannaerjum - Vísir
Á sömu stöð bárust tilkynningar um aðila í mjög svo slæmu ástandi vegna ölvunar í hverfi 108 en honum var ekið heim af lögreglu. Þá var tilkynnt um þj...
Pall­bíll sem var illa lagt upp­hafið að nágranna­erjum - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Pall­bíll sem var illa lagt upp­hafið að nágranna­erjum - Vísir
Á sömu stöð bárust tilkynningar um aðila í mjög svo slæmu ástandi vegna ölvunar í hverfi 108 en honum var ekið heim af lögreglu. Þá var tilkynnt um þj...
Svip­leg starfs­lok, í beinni frá fjölda­fundi og söng­kona sem syrgir - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 1
Svip­leg starfs­lok, í beinni frá fjölda­fundi og söng­kona sem syrgir - Vísir
Við verðum í beinni frá fjöldafundi í Austurbæjarbíó þar sem Kristrún Frostadóttir ávarpaði gesti vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar – og í beinni frá fu...
Velta fyrir sér hvort aukin notkun Ozempic sé að hafa óvæntar afleiðingar í för með sér
📅 26.08.2026 👁️ 2
Velta fyrir sér hvort aukin notkun Ozempic sé að hafa óvæntar afleiðingar í för með sér
Töluvert hefur dregið úr ofbeldisfullum glæpum í Bandaríkjunum og rannsakendur eru eðlilega nokkuð spenntir að finna út hvað hefur valdið þessari ánæg...
Garpurinn sem synti í kringum Ísland sleppti þessari rútínu aldrei - „Ég veit að ég varð að ná tökum á þessu“
📅 26.08.2026 👁️ 1
Garpurinn sem synti í kringum Ísland sleppti þessari rútínu aldrei - „Ég veit að ég varð að ná tökum á þessu“
Breski sundgarpurinn Ross Edgley sem synti í kringum Ísland sumarið 2025 greinir frá því að hann hafi aldrei sleppt einni rútínu. Að sinna hármeðferði...
Tekjur Sýnar jukust á öðrum ársfjórðungi
📅 26.08.2026 👁️ 2
Tekjur Sýnar jukust á öðrum ársfjórðungi
Heildartekjur Sýnar á öðrum ársfjórðungi jukust um 2,8% milli ára. Leiðrétt fyrir áhrifum af Sendafélaginu var vöxturinn 5,5%. Þetta kemur fram í tilk...
Stuðningur Íslands er „Úkraínumönnum lífsspursmál“
📅 26.08.2026 👁️ 2
Stuðningur Íslands er „Úkraínumönnum lífsspursmál“
Stuðningur Íslendinga í hernaðarmálum, á stjórnmálasviði, í orkumálum og við mannúðaraðstoð er Úkraínumönnum lífsspursmál. Þetta segir í yfirlýsingu R...
Harry og Meghan eru komin til Bretlands
📅 26.08.2026 👁️ 2
Harry og Meghan eru komin til Bretlands
Harry Bretaprins og Meghan hertogynja af Sussex eru snúin aftur til Bretlands eftir sex ára búsetu vestanhafs. Samkvæmt BBC komu þau með einkaflugvél ...
Flaggað í hálfa stöng í banda­ríska sendi­ráðinu - Vísir
📅 26.08.2026 👁️ 2
Flaggað í hálfa stöng í banda­ríska sendi­ráðinu - Vísir
Kántrísöngkonan lést í gær á heimili sínu, 80 ára að aldri, eftir skammvinna baráttu við krabbamein. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því í ...