Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, sér ekki fram á að ræða myndun meirihluta með öðrum flokkum en Miðflokki, Viðreisn og Framsóknarflokki. Hún stefnir að því að mynda meirihluta innan tveggja vikna.
„Þetta eru allra fyrstu kostir og ég tel mjög líklegt að einhverjir þessara flokka nái saman,“ segir Hildur.
Sjálfstæðisflokkurinn gæti einnig myndað fjórtán fulltrúa meirihluta með Samfylkingunni, eða jafnvel sextán fulltrúa ef Viðreisn, sem er í ríkisstjórn með Samfylkingunni, yrði með.
Hildur segir það hins vegar ólíklegt.
„Ég sé ekki fram á að það fari fram meirihlutaviðræður við aðra flokka,“ segir Hildur. „Það hafa ýmis samtöl átt sér stað og ég er búin að funda með öllum oddvitum sem náðu kjöri í borgarstjórn og það viðrar auðvitað vel fyrir nýja og bjartari tíma í Reykjavík.“
Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, útilokar ekkert en telur langt í að Hildur banki upp á hjá sér. Allir séu að ræða kjörtímabilið fram undan og hvernig megi stíga upp úr skotgröfunum til að þjóna borgarbúum betur.