Sein­leg heim­för sakbitins Ódys­seifs - Vísir

Sein­leg heim­för sakbitins Ódys­seifs - Vísir

Sein­leg heim­för sakbitins Ódys­seifs - Vísir

The Odyssey er þrettánda kvikmynd breska leikstjórans Christophers Nolan sem skrifar jafnframt handritið sjálfur upp úr Ódysseifskviðu Hómers (og hluta Ilíonskviðu). Kvikmyndatökumaður er Hoyten van Hoytema, Jennifer Lame klippir myndina og Ludwig Göransson semur tónlistina en öll þrjú hafa áður unnið með Nolan.

Leikhópur myndarinnar er stjörnum prýddur. Matt Damon fer fremstur í flokki sem Ódysseifur en auk hans leika í myndinni Anne Hathaway, Tom Holland, Robert Pattinson, Zendaya, Lupita Nyong'o, Samantha Morton, John Leguizamo, Charlize Theron, Jon Bernthal, Elliot Page og Benny Safdie.

The Odyssey var frumsýnd hérlendis 16. júlí 2026 og er sýnd í Sambíóunum, Smárabíói og Laugarásbíói.

Ódysseifur alltaf móðins

„Seg mér, sönggyðja, frá hinum víðförla manni, er hraktist mjög víða, eftir það hann hafði lagt í eyði hina helgu Trójuborg, þeim er sá borgir og þekkti skaplyndi margra manna.“

Þannig hefst íslenska þýðingin á Ódysseifskviðu sem er, ásamt Ilíonskviðu, eignuð forngríska skáldinu Hómer sem er talinn hafa verið uppi á áttundu öld fyrir Krist. Ilíonskviða gerist yfir nokkrar vikur síðasta árið í umsátri Grikkja um Trójuborg og Ódysseifskviða segir frá áralangri heimför Ódysseifs eftir stríðið. Um er að ræða tvö sögufrægustu bókmenntaverk sögunnar.

Skáldið Hómer er talinn hafa verið upp á áttundu öld fyrir Krist.

Ódysseifskviða er ort í bundnu máli undir sexliðuhætti og skrifuð á torræðri blöndu af forngrískum mállýskum. Ótal þýðendur hafa spreytt sig á þýðingu verksins gegnum aldirnar en Íslendingar nutu góðs af dugnaði Sveinbjarnar Egilssonar. Hann þýddi Ódysseifskviðu í bæði bundnu og lausu máli yfir á íslensku meðan hann var rektor Lærða skólans. 

Ummerki kviðunnar er að finna víða í menningunni, frásagnarhugtakið ferðalag hetjunnar hefur verið rakið til kviðunnar og orðið Ódysseifsferð er jafnan notað um langar og viðburðaríkar ferðir. Áhrif hennar á bókmenntir og skáldskap eru sömuleiðis ómæld, bæði bein áhrif og óbein hennar. 

Einna helst má nefna móderníska meistaraverkið Ulysses (1922) eftir James Joyce sem ber latneskt heiti Ódysseifs og speglar persónur, atburði og þemu úr kviðunni. Þá hefur fjöldi rithöfunda nýtt kviðuna sem efnivið til að spinna nýjar sögur, þar má nefna Circe (2018) eftir Madeleine Miller um samnefnda seiðkerlingu og The Penelopiad (2005) eftir Margaret Atwood um drottninguna af Íþöku.

Ulysses, The Odyssey og The Return eru allt aðlaganir á Ódysseifskviðu.

Ódysseifskviða hefur sömuleiðis ratað þó nokkrum sinnum á stóra skjáinn. Þar ber hæst Ulysses (1954) með Kirk Douglas í aðalhlutverki, tveggja hluta framhaldsþáttaröðina The Odyssey (1997) með Armand Assante, Gretu Scacchi og Isabellu Rosselini í aðalhlutverkum og loks The Return (2024) þar sem Ralph Fiennes leikur aldinn Ódysseif.

Bestu aðlaganirnar hafa þó verið mun frjálslegri í aðlögun sinni á efniviðnum. Þar má annars vegar nefna O Brother, Where Art Thou (2000) eftir Coen-bræður þar sem strokufanginn Ulysses Everett McGill ferðast gegnum Suðurríkin á fjórða áratug síðustu aldar. Hins vegar má nefna Svamp Sveinsson-myndina (2004) þar sem svampurinn góði þarf að þreyta sambærilegar þrautir og Ódysseifur til að komast aftur á Bikiníbotna.

Ulysses Everett McGill og Svampur Sveinsson fara báðir í Ódysseifsferð.

Meistari sjónarspilsins tæklar yfirnáttúrulegt ævintýri

Christopher Nolan er einn stærsti leikstjóri samtímans. Nolan býr til stórar, langar og dýrar myndir þar sem heimurinn er lagður að veði og notar hann til þess stærstu græjurnar, stærstu leikarana og fullt af pening. Meðan stórmyndir Spielberg dómíneruðu níunda og tíunda áratuginn (og eiginlega þann fyrsta líka) hafa stórmyndir Nolan tröllriðið heiminum síðustu tuttugu ár.

Nolan er leikstjóri sem leggur áherslu á sjónarspil og þrúgandi hasar en gerir á sama tíma mikið úr því að jarðtengja kvikmyndir sínar til að gefa þeim raunsæisblæ. Þrátt fyrir að tækla fantasíulegt efni, teiknimyndaheim í Leðurblökumannsþríleiknum, geimflakk í Interstellar og tímaflakk í Tenet, reynir hann alltaf að framsetja heiminn á eins lógískan hátt og völ er á, sem jaðrar oft við rembing.

Nolan stýrir tökum á Reynisfjöru við Vík í Mýrdal þar sem mörg hundruð aukaleikarar komu við sögu.

Maður var því forvitinn að sjá hvernig Nolan myndi nálgast söguna og goðsagnakenndan heim hennar sem er krökkfullur af skrímslum, dísum og almáttugum grískum guðum. Nolan fer ákveðinn milliveg, dempar birtingarmyndir guðanna með því að hlutgera þá í náttúruöflunum eða sem draumsýnir en heldur skrímslunum með nólanískum breytingum. Hann sleppir síðan markvisst því skrítnasta úr sögunni og sameinar annað til einföldunar.

Nolan er snjall í því hvernig hann aðlagar söguna að skjánum. Frekar en að taka einungis fyrir heimferðina í Ódysseifskviðu þá tekur hann umsátrið um Trójuborg úr Ilíonskviðu og gerir Trójuhestinn að þematískum kjarna myndarinnar og nýtir gríska hermanninn Sínon úr Eneasarkviðu Virgils.

Hvar er maðurinn?

Ódysseifskviða Hómers hefst í miðju kafi þar sem sem lesendur læra um stöðu mála á Íþöku áður en sagan færist yfir til Ódysseifs sem dvelur á eyju dísarinnar Kalypsó og rekur ævintýri sín eftir lok stríðsins áður en hann snýr svo aftur til Íþöku. Nolan fer ekki ósvipaða leið, byrjar söguna í miðju kafi en segir hana síðan með ólínulegri framvindu, flakkar milli staða og í tíma.

Mæðginin Penelópa og Telemakkus ráða ráðum sínum.

Fyrsti maðurinn á skjáinn er Travis Scott, rappari og barnsfaðir Kylie Jenner. Hann stígur á stokk í konungshöllinni í Íþöku sem skáld og fer með nokrar línur um manninn sem sigraði Tróju. Þetta sjónarhorn af sigrinum ber með sér þjóðsagnakenndan blæ.

Höllin er undirlögð 108 vonbiðlum sem bíða allir eftir því að Penelópa (Hathaway) velji sér nýjan konung en hún neitar að trúa því að Ódysseifur sé dauður og seinkar ákvörðun sinni eins og hún getur.

Vonbiðlarnir hafa étið sig í gegnum matarforða hallarinnar, leikið öllum illum látum og þverbrotið lög Seifs. Fremstur í flokki fer Antínóus (Pattinson) sem ögrar prinsinum Telemakkusi (Holland) og niðurlægir dyggasta þjón Ódysseifs, blinda svínahirðinn Evmeus (Leguizamo).

Pattinson er frábær sem hinn óþolandi og huglausi Antonínus.

Þegar Ódysseifur birtist áhorfendum loks er hann staddur á eyju dísarinnar Kalypsó (Theron) sem hvetur hann til að rifja upp hvað hefur á daga hans drifið frá lokum Trójustríðsins. Ódysseifur segir frá byggingu Trójuhestsins, unga hermanninum Sínóni (Page) sem fórnaði sér og hvernig hesturinn tryggði Agamemnoni (Safdie) sigur í stríðinu og hjálpaði honum að endurheimta mágkonu sína, Helenu fögru (Nyong'o).

Sigurinn í Tróju er Ódysseifi dýrkeyptur því hann hefur ögrað guðunum og fær að kenna á reiði þeirra á heimleiðinni. Ódysseifur reynir að leiða menn sína gegnum alls konar ógöngur milli þess sem að hann er ásóttur af gyðjunni Aþenu (Zendaya) áður en hann ratar að lokum heim þar sem hans bíður sonur sem þekkir hann ekki og 108 vonbiðlar sem neita að yfirgefa heimili hans.

Sakbitinn og náttúrulaus Ódysseifur

Eitt lykilþema Ódysseifskviðu er gríska hugtakið Xenia sem gengur út á mikilvægi gestrisni í garð ókunnugra og virðingu gesta fyrir gestgjöfum sínum. Í sögu Hómers birtist mikilvægi Xeniu í yfirgengilegri framkomu vonbiðlanna í höllinni og svo brellna Ódysseifs í helli kýklópans Pólýfemosar. Hjá Nolan verður Xenia að lögum Seifs sem er meira í ætt við gullnu reglu kristinnar siðfræði. 

Nolan útvíkkar hugtakið með því að gera innrásina í Trójuborg að fyrsta skiptinu sem Ódysseifur brýtur lög Seifs og kjarnann að ógöngum hans. Grikkirnir brutu þar hefðirnar með því að blekkja Trójumenn með falskri gjöf. Ódysseifur gerir sér grein fyrir því að hann hefur gert nokkuð sem er ekki hægt að draga til baka og er plagaður af sektarkennd yfir því.

Ódysseifur þarf að þola ýmsar raunir vegna gjörða sinna.

Nolan heldur þannig áfram að fjalla um menn sem hafa brotið reglur heimsins og þurfa að ganga í gegnum þrekraun til að endurgjalda fyrir verknaðinn. Ódysseifur er forngrískur Oppenheimer (sem Nolan tæklaði í síðustu mynd sinni). Meðan Oppenheimer reyndi að draga úr skaða atómsprengjunnar sem hann skapaði og var dreginn í gegnum svaðið af Bandaríkjastjórn þarf Ódysseifur að þola tíu ára þrautagöngu fyrir að hafa skapað Trójuhestinn.

Ódysseifur Hómers er töluvert frábrugðinn þeim sem Nolan skapar. Upprunalega er hann marglaga, bæði snjall og rökvís en líka stoltur og grimmur, meðan sá sem Nolan skapar er ljós Hollywood-hetja, nánast laus við bresti. Í fórum Matts Damon, sem hefur áður leikið menn á heimleið í The Martian og Saving Private Ryan, er Ódysseifur heiðviðrur og brúnaþungur hermaður sem er þjakaður af fortíð sinni. Damon kemur sektarkendinni vel til skila en maður saknar sjarma, hroka og lævísi Ódysseifs. 

Þrátt fyrir áfallstreituröskunina er Ódysseifsferðin epísk í skala. Áhersla Nolan á að smíða leikmyndir og leikmuni frá grunni og taka myndina upp á raunverulegum stöðum (þar á meðal í Reynisfjöru og á Snæfellsnesi) gerir að verkum að heimurinn lifnar algjörlega við gegnum IMAX-vélarnar. Fjölbreytt tónlist Ludwigs Göranssonar ómar undir og hann flakkar milli rólegra blásturshljóðfæra og strengja yfir í þrumandi trumbuslátt og dúndrandi bassa.

IMAX-vélarnar nýtast vel til að fanga ringulreiðina og sjónarspilið.

Hrakfarirnar sem áhöfn Ódysseifs gengur í gegnum eru þó miskraftmiklar í myndinni og verða hvað bestar þegar Nolan leyfir sér að fara út í almennilegan hrylling. Kýklópinn Pólyfemos er óhugnanlegur með sitt afmyndaða nef, skakka auga og þurru fílshúð. Ótti og innilokunarkennd hermannanna í hellinum skilar sér rakleitt til áhorfenda. Sama má segja um dvöl áhafnarinnar á eyju seiðkerlingarinnar Kirku (Morton) þar sem hún umbreytir mönnum Ódysseifs í svín með kynngimögnuðum líkamshryllingi.

Aðrar áskoranir Ódysseifs á leiðinni ná ekki sömu hæðum. Söngur sírenanna heppnast þökk sé frábærri hljóðmynd en Nolan heldur samt svo mikilli fjarlægð við sírenurnar að sálfræðilegur hryllingurinn kemst verr til skila. Skrímslinu Skyllu bregður svo stuttlega fyrir að áhorfendur ná varla að melta það og í heimsókn áhafnarinnar á eyju mannæturisa fannst manni Nolan frekar vera að tikka í box en að vinna frumlega úr efninu.

Þó má sérstaklega nefna heimsókn áhafnarinnar til undirheima Hadesar þar sem Ódysseifur ræðir við fallna félaga og blinda spámanninn Tíresías. Senurnar eru teknar upp á svartri Reynisfjöru og eru býsna áhrifamiklar. Þá er sérstaklega gaman að sjá mörg hundruð íslenska aukaleikara spretta þar á eftir Ódysseifi.

Missterkur leikhópur og kvennavandræði

Nolan brýtur upp heimferð Ódysseifs og endurtekningu hremminganna með því að flakka reglulega aftur til Íþöku þar sem Telemakkus og Penelópa reyna að bregðast við umsátri vonbiðlanna. Leikararnir standa sig misvel þar.

Anne Hathaway fær ekki úr miklu að moða sem Penelópa en fangar vel bræði hennar og vonleysi. Þá stendur Tom Holland sig sæmilega sem Telemakkus sem leitar uppi fregnir af föður sínum hjá Menelási (Bernthal) frekar en að sitja aðgerðarlaus hjá. Holland fangar barnslega einlægnina vel en textinn verður ankannalegur í meðferð hans og maður á erfitt með að kaupa hann.

Yfirburðarbestur er Robert Pattinson sem lævísi og andstyggilegi vonbiðillinn Antínóus og skín í hvert skipti sem hann birtist á skjánum. John Leguizamo er nánast óþekkjanlegur í hlutverki blinda svínahirðsins Evmeusar og gerir sérlega vel sem dyggasti þjónn Ódysseifs. 

Undir forystu Elons Musk hefur íhaldssamasti armur internetsins kveinað síðustu mánuði yfir leikaravalinu á hinni hörundsdökku Lupitu Nyong'o og trans manninum Elliot Page. Auðvitað er um aumkunarvert kynjastríðsvæl að ræða en þar fyrir utan standa þau sig bæði vel. Nyong'o bregður stuttlega fyrir sem tvíburasysturnar Helena fagra og Klýtemnestra meðan Page er öflugur sem renglulegi hermaðurinn Sínon, lifandi og dauður.

Sínon birtist Ódysseifi í undirheimunum.

Nolan hefur gegnum tíðina verið gagnrýndur fyrir kvenhlutverkin í myndunum sínum sem eru yfirleitt tvívíð viðföng söguhetjanna. Hann er samur við sig hér og hefur dempað vægi flestallra kvenna sögunnar. 

Munurinn milli frumtexta og myndar er hvað mestur hjá gyðjunni Aþenu sem fer úr því að hafa mikil áhrif á framvinduna yfir að vera birtingarmynd fyrir áföll og eftirsjá Ódysseifs í myndinni. Charlize Theron fær enn minna að gera sem Kalypsó, frekar en að vera kraftmikil dís sem hneppir Ódysseif í margra ára ástarálög verður hún að einhvers konar sálfræðingi hans. Raunar strokar Nolan út allt kynlíf sögunnar þannig að Ódysseifur verður furðu náttúrulaus, væntanlega til að halda betur samúð áhorfenda.

Trójumenn draga hestinn á land.

Nolan hefur líka verið gagnrýndur fyrir vantraust á áhorfendum og kauðskan texta. Frekar en að leyfa áhorfendum að draga ályktanir þá hamrar Nolan á þeim með útlistunum og útskýringum. Hann gerir það hér en þó ekki í sama mæli og oft áður. Handritinu ber líka að hrósa því Nolan tekst að flakka hnökralaust fram og til baka, bæði í tíma og rúmi, án þess að áhorfendur finni fyrir því. 

Sterkasti hluti myndarinnar er Trójuhesturinn sem Nolan notar til að lýsa því hvað stutt er á milli hernaðar og villimennsku og hvernig stríð afmennskar þá sem taka þátt í því. Nolan klifar á Trójuhestinum gegnum myndina: Fyrst heyrum við af þjóðsagnakenndum sigrinum frá skáldinu, næst glæsta frásögn Menelásar af innrásinni og loks lýsir Ódysseifur fyrir okkur hryllingnum sem fyrir augu bar. Sagan snýst eftir allt saman bara um sjónarhorn þess sem segir frá hverju sinni.

Niðurstaða

Ódysseifskviða Christophers Nolan er ekki meistaraverkið sem hefur verið lofsungið svo. Hins vegar er um að ræða bíó af bestu gerð þar sem skrímsli, sjávarháski og blóðugt fall Tróju lifnar við á skjánum. Leikmynd, gervahönnun, kvikmyndataka, tónlist og leikstjórn skapa saman sterkan kvikmyndaheim.

Leikarar myndarinnar eru missterkir. Matt Damon skilar sínu sem brúnaþungur og sakbitinn Ódysseifur, Anne Hathaway er þrusuflott Penelópa en Tom Holland nær ekki að selja manni barnslega prinsinn Telemakkus. Öflugustu leikararnir eru Robert Pattinson, John Leguizamo og Samantha Morton sem nýta skjátíma sinn til hins ýtrasta.

Nolan þjáist enn af sömu vandamálunum, hann vantreystir áhorfendum sínum og skrifar oft kauðslegan texta. Hins vegar er hann klókur í að byggja upp sögur og tekst með klippara sínum að sauma saman flókinni og langri sögu á 172 mínútum sem líða hratt hjá. 

Það verður líka að gefa Nolan það að hann tekur ferskan snúning á efniviðinn og gerir hann að sínum. Nolan er dálítið ólúmskur í að boðskap sínum til skila en myndin talar samt sem áður sterkt inn í samtíma okkar þar sem stríð geisar víða um heim.

#heimför #sakbitins #seinleg #vísir #ódysseifs


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262911560d/seinleg-heimfor-sakbitins-odysseifs

📰 Aðrar fréttir

Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu Hlíðarfjalls. Þar segir að til að byrja með verði snjór framleiddur á neðra svæðinu en þar eru til dæmi...
Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum - Vísir
Annie Mist og Katrín Tanja hafa báðar unnið Crossfit-heimsleikana tvisvar og eiga sömuleiðis báðar börn, þannig að þær þekkja vel hvernig það er að æf...
Sanna og Stefán setja spurningamerki við breytingarnar: „Hvað í andskotanum á ég að gera við þær upplýsingar“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sanna og Stefán setja spurningamerki við breytingarnar: „Hvað í andskotanum á ég að gera við þær upplýsingar“
Sanna Magdalena Mörtudóttir og Stefán Pálsson, borgarfulltrúar Vinstrisins, gagnrýna breytingar sem á að gera í framsetningu leikskólagjalda fyrir for...
Russia ready to resume talks with Ukraine and US to end war
📅 21.10.2026 👁️ 1
Russia ready to resume talks with Ukraine and US to end war
The announcement came after Russian President Vladimir Putin met US President Donald Trump's special envoy Steve Witkoff in St Petersburg.
Glee snýr aftur - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Glee snýr aftur - Vísir
Streymisveiturnar Disney+ og Hulu greina frá endurræsingunni (e. reboot) í tilkynningu. Tónlistardramaþættirnir Glee eru hugarsmíði hins afkastamikla ...
Með kannabis, ketamín, LSD, hníf og riffilskot í bílnum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Með kannabis, ketamín, LSD, hníf og riffilskot í bílnum
Lögreglan á Norðurlandi vestra lagði hald á tæp 30 grömm af kannabis, 140 grömm af ketamíni, 36 MDMA töflur, MDMA kristalla og 84 pappastykki er innih...
Sakar Mosfellsbæ um áhugaleysi, hroka og fálæti í málefnum ræstingarfólks
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sakar Mosfellsbæ um áhugaleysi, hroka og fálæti í málefnum ræstingarfólks
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir ástæðu fyrir útsvarsgreiðendur og þjónustuþega Mosfellsbæjar að hafa áhyggjur af meðferð bæjarins á ...
Loka vef­síðum tíma­bundið í var­úðar­skyni - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Loka vef­síðum tíma­bundið í var­úðar­skyni - Vísir
Öryggisgallinn er í forritunarmálinu PHP sem umtalsverður hluti vefsíðna í heiminum reiðir sig á. Tvær neyðaruppfærslur voru gefnar út vegna gallans s...
Google experiences resignation backlash over AI military contracts
📅 21.10.2026 👁️ 1
Google experiences resignation backlash over AI military contracts
The BBC speaks to several current and former Google DeepMind employees about their concerns with AI use on the battlefield.
Margar íslenskar vefsíður sem nota PHP útsettar fyrir veikleikum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Margar íslenskar vefsíður sem nota PHP útsettar fyrir veikleikum
Talsverður fjöldi íslenskra vefsíðna notast við PHP-forritunarmálið.„Svo það er ekkert óeðlilegt að vefsíður detti núna niður í ákveðinn tíma meðan þa...
Passenger arrested after drugs found in luggage at Gran Canaria Airport
📅 21.10.2026 👁️ 1
Passenger arrested after drugs found in luggage at Gran Canaria Airport
A passenger arriving at Gran Canaria Airport from mainland Spain has been remanded in custody after Guardia Civil officers found 460 grams of the synt...
Samhjálp á hrakhólum í heilt ár
📅 21.10.2026 👁️ 1
Samhjálp á hrakhólum í heilt ár
Kaffistofa Samhjálpar hefur verið mjög til umfjöllunar síðastliðið ár. Flytja þurfti hana úr Borgartúni í október fyrir ári og húsnæði hafði fundist v...
Aberfan disaster: Royal Family pay respects to 'most tragic of days imaginable'
📅 21.10.2026 👁️ 1
Aberfan disaster: Royal Family pay respects to 'most tragic of days imaginable'
In total 116 children and 28 adults were killed when a colliery spoil tip collapsed on 21 October 1966.
Bára beauty greinir frá kyni tvíburanna
📅 21.10.2026 👁️ 1
Bára beauty greinir frá kyni tvíburanna
Bára Jónsdóttir, fasteignasali, förðunarfræðingur og fitness-ræktarkona, þekkt sem Bára Beauty, á von á tvíburum með kærasta sínum, Tryggva Jarli Svei...
Ölvuðu Ís­lendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Ölvuðu Ís­lendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr - Vísir
Rokkhljómsveitin Spacestation hefur verið starfandi síðan 2023, gáfu út fyrstu plötu sína í fyrra og fylgdu henni eftir með Who Killed Spacestation? s...
Fá mál á þingi: Vel­gengni eða innanflokksátök? - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fá mál á þingi: Vel­gengni eða innanflokksátök? - Vísir
Rúmlega þrjátíu af tæplega 160 málum á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar hafa komið til umfjöllunar það sem af er þingvetri. Stuttir þingfundir og fá má...
Fá mál á þingi: „Fórnar­lömb vel­gengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fá mál á þingi: „Fórnar­lömb vel­gengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá - Vísir
Rúmlega þrjátíu af tæplega 160 málum á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar hafa komið til umfjöllunar það sem af er þingvetri. Stuttir þingfundir og fá má...
Veitingamaður kannast ekki við þá mynd sem var dregin upp í Kveik - „Metnaður sölumanna er ekki glæpur“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Veitingamaður kannast ekki við þá mynd sem var dregin upp í Kveik - „Metnaður sölumanna er ekki glæpur“
Umfjöllun Kveiks um viðskiptahætti Ölgerðarinnar vakti mikla athygli í síðustu viku, en þar var þeirri spurningu varpað fram hvort Ölgerðin væri að ha...
Svæsin magapest dreifði sér hratt í flugvél – Þrír enduðu á sjúkrahúsi
📅 21.10.2026 👁️ 1
Svæsin magapest dreifði sér hratt í flugvél – Þrír enduðu á sjúkrahúsi
Kalla þurfti til heilbrigðisstarfsfólk í hlífðarfatnaði til þess að sinna farþegum um borð í flugvél þar sem skæð nóróveira braust út. Flytja þurfti þ...
Öryggisgalli ógnar vefsíðum um heim allan
📅 21.10.2026 👁️ 1
Öryggisgalli ógnar vefsíðum um heim allan
Loka þurfti vef Reykjavíkurborgar tímabundið á meðan unnið var að uppfærslum í tengslum við öryggisgallann. Þetta staðfestir Hulda Gunnarsdóttir, verk...
Femíníska tímaritið Emma færist alfarið á netið
📅 21.10.2026 👁️ 1
Femíníska tímaritið Emma færist alfarið á netið
Síðasta tölublað þýska femíníska tímaritsins Emma verður gefið út í desember. Tímaritið, sem hóf göngu sína árið 1977, var áhrifaríkt og mótaði femíní...
„Nei, Pútín er harð­svíraður morðingi“ - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
„Nei, Pútín er harð­svíraður morðingi“ - Vísir
Júrí Úsjakóv sagði við blaðamenn í dag að Pútín hefði tilkynnt Steve Witkoff, sérstökum erindreka Donalds Trump, á fundi þeirra í Pétursborg í dag að ...
Rannsókn lokið í máli manns sem grunaður er um að bana föður sínum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Rannsókn lokið í máli manns sem grunaður er um að bana föður sínum
Rannsókn er lokið í máli manns á fimmtugsaldri sem situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát föður síns. Maðurinn lést í heimahúsi í Kópavogi í júl...
Holocaust school lessons to be improved after 'shocking' antisemitism review
📅 21.10.2026 👁️ 1
Holocaust school lessons to be improved after 'shocking' antisemitism review
Education Secretary Lucy Powell has stressed the importance of reminding new generations of the horrors of the Holocaust.
Glee reboot: The US high school musical comedy-drama is to return on Hulu and Disney+
📅 21.10.2026 👁️ 1
Glee reboot: The US high school musical comedy-drama is to return on Hulu and Disney+
Ryan Murphy's popular musical comedy-drama is set to return after more than a decade.
Skorar á land­lækni að leið­rétta rang­færslur - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Skorar á land­lækni að leið­rétta rang­færslur - Vísir
Bjarni ritar grein sem hann birtir á Vísi um þetta efni. Hann viðurkennir fúslega, í samtali við Vísi, að hann sé ekki hlutlaus, hann er framkvæmdastj...
Ekki á dagskrá að skipta landinu frekar upp í veðurviðvörunum
📅 21.10.2026 👁️ 1
Ekki á dagskrá að skipta landinu frekar upp í veðurviðvörunum
Djúp haustlægð gekk yfir landið í síðustu viku. Hvellurinn á Siglufirði reyndist meiri en búist var við og töluvert tjón varð á húsum, bílum og lausam...
Al­var­legur veik­leiki hjá fjölda vef­síðna - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Al­var­legur veik­leiki hjá fjölda vef­síðna - Vísir
„Það fundust tveir mjög alvarlegir veikveillar í PHP-forritunarmálinu,“ segir Magni R. Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, í samtali við fréttastofu. „...
Burnham defends Jackdaw decision as Badenoch urges PM to overturn ban on new oil and gas licences
📅 21.10.2026 👁️ 1
Burnham defends Jackdaw decision as Badenoch urges PM to overturn ban on new oil and gas licences
The UK government says the field, which is opposed by environmental campaigners, could be producing gas by the end of this month.
Jeffrey Donaldson to be interviewed over alleged rape inside Houses of Parliament
📅 21.10.2026 👁️ 1
Jeffrey Donaldson to be interviewed over alleged rape inside Houses of Parliament
While not naming the disgraced former MP, the Metropolitan Police has issued a statement confirming a 63-year-old man is being investigated.
Eiríkur Björn tekur við varaformennsku af Jóni Gnarr
📅 21.10.2026 👁️ 1
Eiríkur Björn tekur við varaformennsku af Jóni Gnarr
Hrókeringar í nefndastörfum á vegum Viðreisnar héldu áfram í morgun þegar skipt var um fyrsta varaformann í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis...
Vilja fá umdeilda kvikmynd til Íslands – „Hvers vegna fáum við ekki að sjá hana?“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Vilja fá umdeilda kvikmynd til Íslands – „Hvers vegna fáum við ekki að sjá hana?“
Anna Laufey Stefánsdóttir og Kristín Ólöf Grétarsdóttir eru mæður og sérfræðingar á sviði stafrænnar velferðar. Þær vilja sjá kvikmyndina The Social R...
Ása Steinars átti hrikalegan morgun – Greip í vitlaust í sturtunni
📅 21.10.2026 👁️ 1
Ása Steinars átti hrikalegan morgun – Greip í vitlaust í sturtunni
Ferðaljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ása Steinarsdóttir átti erfiðan morgun í byrjun vikunnar. Hún sagði frá því í myndbandi á TikTok.„Ég átti...
Sláandi hversu margir telji of­beldi hluta af kyn­lífi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sláandi hversu margir telji of­beldi hluta af kyn­lífi - Vísir
Þúsundir krefjast þess að óháð útekt verði gerð á meðferð kynferðisofbeldismála eftir umdeildan dóm Landsréttar þar sem karlmaður var sýknaður af nauð...
Sagður hafa dulið arðgreiðslur - Trúðu því ekki að hann væri að greiða út vinninga
📅 21.10.2026 👁️ 1
Sagður hafa dulið arðgreiðslur - Trúðu því ekki að hann væri að greiða út vinninga
Yfirskattanefnd hefur staðfest úrskurð ríkisskattstjóra um að greiðslur fyrirtækis til eiganda þess skuli færðar honum til tekna en ekki skilgreinast ...
Nýtt félag ætlar að hasla sér völl á íslenskum flugfraktmarkaði
📅 21.10.2026 👁️ 1
Nýtt félag ætlar að hasla sér völl á íslenskum flugfraktmarkaði
TVG-Zimsen, dótturfélag Eimskips, og alþjóðlega fyrirtækið Kales Group hafa stofnað nýtt félag, Kales Iceland, sem mun starfa á íslenskum flugfraktmar...
Björguðu særðum her­manni með dróna - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Björguðu særðum her­manni með dróna - Vísir
Þetta ku vera í fyrsta sinn sem þetta er gert en áður hafa Úkraínumenn notað fjarstýrða róbóta til að flytja særða menn. Það þótti hins vegar ekki hæg...
Jón Gnarr lætur af vara­for­mennsku og tveimur varasætum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Jón Gnarr lætur af vara­for­mennsku og tveimur varasætum - Vísir
Forseti Alþingis tilkynnti við upphaf þingfundar í dag að Eiríkur Björn hefði verið kosinn á fundi nefndarinnar í morgun. Breytingin kemur í kjölfar ú...
„Stjórnmál samtímans ganga mikið út á að ná frásögninni“
📅 21.10.2026 👁️ 1
„Stjórnmál samtímans ganga mikið út á að ná frásögninni“
Frönsk stjórnvöld reyna að kenna vinstri flokkum um hatrömm mótmæli í landinu upp á síðkastið, segir Torfi Tulinius, prófessor í frönsku og sérfræðing...
Mynda­syrpa: Nýr skáli fluttur í Þórs­mörk - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Mynda­syrpa: Nýr skáli fluttur í Þórs­mörk - Vísir
Búið er að flytja fyrsta og stærsta hlutann upp í Þórsmörk en um er að ræða heljarinnar verk. Stærsti hlutinn er um 22 tonn að þyngd en ekki var hægt ...
Varað við alvarlegum veikleikum í fjölda vefsíðna
📅 21.10.2026 👁️ 1
Varað við alvarlegum veikleikum í fjölda vefsíðna
Netöryggissveitin CERT-IS varar við því að tveir mjög alvarlegir veikleikar í PHP-forritunarmálinu gætu gert óprúttnum aðilum kleift að ná stjórn á vi...
Er George Soros á bakvið fjölda samtaka sem koma að óeirðunum?
📅 21.10.2026 👁️ 1
Er George Soros á bakvið fjölda samtaka sem koma að óeirðunum?
Milljarðamæringurinn George Soros hefur veitt fjárhagslegan stuðning til samtaka sem hafa hvatt til mótmæla í Frakklandi, stutt kröfur nemenda eða gag...
Klæmdist ó­vart við fjór­tán ára og var sýknaður - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Klæmdist ó­vart við fjór­tán ára og var sýknaður - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 14. október og birtur í dag. Í dóminum segir að ekki hafi verið ágreiningur um að maður...
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss
Fréttin.is óskar eftir svörum frá tveimur prestum Þjóðkirkjunnar vegna ummæla um bæjarstjóra Ölfuss Fréttin21. október 2026Innlent, Stjórnmál, TrúmálL...
Fékk áfall þegar hún sá myndirnar og hefur þyngst um tæp 14 kíló
📅 21.10.2026 👁️ 1
Fékk áfall þegar hún sá myndirnar og hefur þyngst um tæp 14 kíló
Sjónvarpsstjarnan Kelly Osbourne greinir frá því að hún sé búin að þyngjast um tæp 14 kíló og henni líði betur, en margir hafa haft miklar áhyggjur af...
Halla afhjúpar sönnu söguna á bak við leyndarmálið: „Mér var brugðið við þessa uppljóstrun“
📅 21.10.2026 👁️ 1
Halla afhjúpar sönnu söguna á bak við leyndarmálið: „Mér var brugðið við þessa uppljóstrun“
Hulunni var svipt af leyndarmáli Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, í morgun. Bætti hún um betur og afhjúpaði sönnu söguna þar að baki.
Tólf barna móðir selur sveitadraum á Sel­fossi - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Tólf barna móðir selur sveitadraum á Sel­fossi - Vísir
Húsið er í eigu þróunarfræðingsins Guðrúnar Helgu Diop Jóhannsdóttur og eiginmanns hennar Yakhya Diop. Á Instagram lýsir Guðrún sér sem ferðasjúkri tó...
Tólf barna móðir selur sveitadraum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Tólf barna móðir selur sveitadraum - Vísir
Húsið er í eigu þróunarfræðingsins Guðrúnar Helgu Diop Jóhannsdóttur og eiginmanns hennar Yakhya Ragnars Ibrahimasonar Diop. Á Instagram lýsir Guðrún ...
Stærsti dagurinn í dekkja­skiptum - Vísir
📅 21.10.2026 👁️ 1
Stærsti dagurinn í dekkja­skiptum - Vísir
Hálka tók á móti íbúum höfuðborgarsvæðisins eftir næturfrost á suðvesturhorninu í nótt. Þurftu margir að grípa til sköfunnar áður en haldið var af sta...
Úrskurðir varpa nánara ljósi á stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar - Google Maps og dularfullur þúsundkall
📅 21.10.2026 👁️ 1
Úrskurðir varpa nánara ljósi á stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar - Google Maps og dularfullur þúsundkall
Landsréttur hefur birt gæsluvarðhaldsúrskurði tveggja sakborninga í Straumsvíkurmálinu svokallaða, en í sumar var 106 kílóum af kókaíni smyglað til la...