Segja Rússa stunda „drónaveiðar“ á fólki
„Svona veiða Rússar almenna borgara,“ segir umboðsmaður mannréttinda í Úkraínu. Myndband sýnir grænmetissala eltan af fjarstýrðum árásardróna.
Úkraínumenn lýsa yfir hneykslan vegna myndbands sem sýnir mann eltan af dróna í borginni Kherson. Atvikið er fordæmt sem vísvitandi „veiðar“ og „safarí“ sem beinist að almennum borgurum.
Í myndbandinu, sem fréttastofa AFP gat ekki sannreynt strax, leitar maður skjóls á bak við bifreið fyrir fjarstýrðum FPV-dróna (first-person view) sem eltir hann áður en sprengihleðsla hans springur.
Maðurinn, sem var að selja grænmeti á götumarkaði í suðurhluta borgarinnar, „hlaut áverka en lifði af“, sagði Yaroslav Shanko, yfirmaður herstjórnar Kherson-borgar, á Telegram.
„Ég var nýbúinn að setja upp regnhlífarnar og byrjaður að taka kassana út ... Konan mín var þar líka. Við heyrðum suð,“ sagði fórnarlambið, 52 ára maður að nafni Yuriy, í myndbandi sem yfirvöld á staðnum birtu.
Hann hlaut sprengjuáverka, sár af völdum sprengjubrota og heilahristing en líf hans er ekki í hættu, skrifaði Oleksandr Prokudin, héraðsstjóri Kherson, á Telegram.
„Í dag voru margir slegnir yfir enn einu myndbandinu af dróna-„safaríi“ sem Rússar stunda gegn almennum borgurum í Kherson,“ sagði Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, á X og endurbirti myndbandið.
„Heimurinn verður að sjá þetta. Hann verður að sjá öll sönnunargögn um að Rússland sé orðið sturlað og að hermenn þess hafi ánægju af því að drepa og misþyrma almennum borgurum,“ bætti hann við.
Atvikið „krefst alþjóðlegrar fordæmingar og réttlætis“, sagði Andriy Sybiga utanríkisráðherra á X og kallaði það „barbarískan rússneskan stríðsglæp“.
„Þetta er vísvitandi og kerfisbundin rússnesk herkænska ... Sadistinn sem stýrir þessum dróna veit mætavel að hann er að beina spjótum sínum að almennum borgara,“ bætti hann við.
Dmytro Lubinets, umboðsmaður mannréttinda í Úkraínu, sagði að „myndbandið sýni raunverulega aðferð Rússlands – að elta og drepa saklaust fólk“.
„Heimurinn verður að horfa á án þess að líta undan. Svona veiða Rússar almenna borgara,“ sagði Lubinets.
Borgin Kherson, þar sem bjuggu um 280.000 manns fyrir stríðið, var undir stjórn Rússa frá mars til nóvember 2022.
Rússneskar hersveitir, sem nú eru staðsettar á gagnstæðum bakka Dnjepr-fljóts – sem rennur fram hjá borginni – gera reglulega árásir á hana, sérstaklega með drónum.
Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum hefur dauðsföllum meðal almennra borgara fjölgað í átökunum á árinu 2026, á meðan fjögurra og hálfs árs stríðið heldur áfram án þess að nokkur merki séu um friðarsamkomulag.
Rússnesk yfirvöld saka stjórnvöld í Kyiv einnig reglulega um að beina drónaárásum vísvitandi að almennum borgurum, sérstaklega á rússneskum svæðum sem liggja að Úkraínu.
Í vikunni létust almennir borgarar á strönd á Krímskaga þegar úkraínskur dróni lenti þar og sprakk, en að sögn Úkraínumanna hafði dróninn verið skotinn niður á leið sinni að hernaðarlegu skotmarki.