Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, tekur undir með nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur þar sem bæjarstjórn segir afstöðu stjórnvalda gagnvart skjótri enduruppbyggingu bæjarins neikvæða og fjandsamlega.
Þetta kemur fram í áskorun sem Járngerður hefur sent á alla þingmenn. Erla Hjördís Ólafsdóttir og Valgerður Ágústsdóttir frá Járngerði voru gestir í Morgunútvarpinu í morgun. Þær segja stöðu íbúðamála í Grindavík setja þeim sem vilji búa þar verulegar skorður.
„Það er staðreynd að flestir Grindvíkingar seldu fasteignir sínar til fasteignafélagsins Þórkötlu sem var bjargræði fyrir okkur til að koma okkur fyrir á nýjum stað í erfiðu ástandi og það má ekki gleyma því að okkur var meinaður aðgangur að sveitarfélaginu svo vikum og mánuðum skipti þannig að við þurftum að fara annað.“
Fyrir skömmu tilkynntu fulltrúar Þórkötlu að frá og með 1. september yrði gisting í húsnæði í Grindavík takmörkuð og miðast þá við 13 nætur í mánuði.
Erla og Valgerður segja fyrirætlanir Þórkötlu setja margt í uppnám fyrir þá Grindvíkinga sem vilji flytja heim, meðal annars í ljósi þess að ákveðið hefur verið að hefja skólahald í bænum að nýju í haust. Íbúar upplifi það að hafa lítið um eigið líf að segja sem hafi alvarlegar afleiðingar í för með sér.
„Við finnum að það er verið að draga úr okkur þróttinn, það er verið að þreyta okkur og fólk er að detta vagninum. Ég þekki einnig margt fólk sem er bara mjög hart í því og bara dreymir um ekkert annað en að flytja núna því þarna líði því að börnunum þeirra líði best. En það er bara að við getum þetta ekki lengur, nú erum við bara að hætta að pæla í þessu í svona eitt, tvö ár og við ætlum bara að búa annars staðar.“
Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.