Haukur Már Sigurðsson, eigandi verslunarinnar Fjölvals á Patreksfirði, segist afgreiða um hundrað færri viðskiptavini á dag eftir að ferjan Baldur hætti að sigla yfir Breiðafjörð.
Hann segir verslunina þjónusta samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum á ársgrundvelli en að ferðamannastraumurinn sem fylgi sumrinu bæti iðulega upp tapið í rekstrinum sem verði á hinum tímum ársins. Þannig bjargi ferðamannatíminn rekstrinum.
„Þetta er búið að hafa þau áhrif á okkur að samdrátturinn virðist vera einhvers staðar í kringum 20 til 25 prósent — beinn samdráttur,“ segir Haukur í viðtali á Hljóðvegi 1.
Vestfirski miðillinn BB.is vakti fyrst athygli á málinu.
Nýbúin að ráða fleira starfsfólk
Haukur Már segir brotthvarf Baldurs hafa áhrif á allt samfélagið á sunnanverðum Vestfjörðum. Ákvörðunin hafi í ofanálag verið kynnt með litlum fyrirvara sem geri atvinnurekendum erfiðara fyrir að bregðast við.
„Í öllum svona rekstri þá getur þú ekkert brugðist við í einhverju snarhasti — með tveggja sólarhringa fyrirvara eins og ráðherrann leyfði sér. Við erum nýbúin að ráða inn fyrir sumarið, bæði viðbótarstarfsfólk en líka til að hleypa í sumarfrí, sem þýðir bara aukinn launakostnaður á móti verulegum samdrætti,“ segir Haukur Már.
„Það þýðir væntanlega það að þetta ár verður mjög erfitt í rekstrinum.“
Hlustaðu á allt viðtalið við Hauk Má í spilaranum hér fyrir neðan.