Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, telur að ef svar þjóðarinnar á laugardaginn er neikvætt veiki það stöðu ríkisstjórnarinnar. Eins og flestir vita fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla á laugardaginn þar sem þjóðin velur já eða nei við því hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.
„Það veikir ríkisstjórnina augljóslega. Ríkisstjórnin biður þjóðina að samþykkja að hefja aðildarsamninga við Evrópusambandið að nýju því það er það sem ríkisstjórnin vill gera. Hún hefur forystu um þetta mál og hafni þjóðin þeirri ósk ríkisstjórnarinnar þá situr stjórnin þeim mun veikari þar á eftir,“ segir Eiríkur. Rætt var við hann í Speglinum í kvöld.
Hann býst ekki við því að neikvætt svar komi til með að fella stjórnina.
„Það eina sem fellir ríkisstjórnir er ef hún missir þingmeirihluta og það er ekkert sem bendir til þess að nokkur þingmanna meirihlutans ætli sér að hlaupa úr stjórnarmeirihlutanum við það að þjóðin felli þessa ósk stjórnarinnar,“ segir hann.
Samkvæmt stjórnarskrá er niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar ekki bindandi heldur er um ráðgefandi niðurstöðu að ræða. Hún hafi þó afleiðingar.
„Þetta er pólitísk atkvæðagreiðsla, hún er pólitískt bindandi fyrir stjórnmálaöflin í landinu,“ segir Eiríkur „sem munu, lýðræðisins vegna, virða niðurstöðuna og það að hún sé ekki lagalega bindandi er ekkert aðalatriði í þessu máli, segir EIríkur.
Það er verið að biðja um svar við spurningu sem ríkisstjórnin getur í sjálfu sér svarað upp á eigin spýtur. Það þarf ekkert álit þjóðarinnar til að hefja aðildarviðræður en hún kýs að gera það.
Kristrún ítrekar að niðurstaðan verði virt
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði fundargesti á opnum fundi í Austurbæjarbíói. Í ræðu hennar voru skilaboð til þjóðarinnar eftir að hlustunarfundir um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu fóru fram víðs vegar um landið. Þar hét hún því að virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB á laugardag, hvort sem svarið verður nei eða já.
„Þetta hefur verið algjörlega skýr og afdráttarlaus afstaða ríkisstjórnarinnar. En ég hvet forystufólk stjórnarandstöðunnar á Alþingi til að gera slíkt hið sama og kveða skýrt að orði um að niðurstaða kosninganna verði virt og henni fylgt — af virðingu, fyrir lýðræðið og fólkið í landinu,“ sagði Kristrún í ræðu sinni.