„Svona á ekki að geta gerst, hvað þá í svona stóru sveitarfélagi með svona stórt verkefni sem skiptir alla sem koma að málinu gríðarlega miklu máli,“ segir Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, um misheppnuð lóðarkaup Hafnafjarðarbæjar undir Tækniskólann.
Í byrjun vikunnar lá fyrir að nýr Tækniskóli myndi ekki rísa í Hafnarfirði. Áformin runnu út í sandinn eftir að bærinn gat ekki útvegað lóð fyrir skólann eins og heitið hafði verið.
Þetta kemur upp fimm árum eftir að áform um að reisa nýjan Tækniskóla við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði voru fyrst kynnt. Formleg ákvörðun var innsigluð fyrir tveimur árum og deiliskipulag vegna skólans var svo samþykkt í sumar.
Eva Marín segir erfitt að draga sterkar ályktanir aðeins út frá því sem hún hefur heyrt og lesið í fjölmiðlum.
„En það er augljóst að stjórnsýslan bregst þarna, hvar og hvers vegna veit ég ekki. Fólk hefur greinilega kosið að líta fram hjá mörgum rauðum ljósum. Svona gerist ekki bara allt í einu. Það bendir allt til þess að fólk hafi ekki horfst í augu við vandann og vonast til að þetta myndi reddast.“
Bærinn var ekki búinn að tryggja eignarhald yfir lóðinni sem skólinn átti að rísa á. Fjallað var um málið í Speglinum í gær þar sem kom fram að einungis hluti lóðanna sem lá fyrir að bærinn þyrfti að kaupa hafði verið keyptur. Þær tvær stærstu og verðmætustu hafði enn ekki samist um í lok síðasta árs og það hafi legið fyrir nokkuð lengi að erfitt yrði að semja um kaup á þeim. Spegillinn var með undir höndum minnisblað sem lagt var fyrir bæjarstjórnina fyrir tveimur árum. Samkvæmt því var strax orðið ljóst að viðræður gengju illa eða alls ekki við nokkra aðila; þá sérstaklega þá tvo sem aldrei náðust samningar við.
„Það er auðvitað alveg grundvallarmál að það sé búið að ganga frá kaupum á lóðum sem búið er að lofa snemma í ferlinu, þannig þetta hefur varla komið fólki á óvart. En þá spyr maður sig af hverju var ekki hætt við verkefnið strax þegar þetta lá fyrir?“
Eva Marín segir jafnframt alvarlegt ef bæjarstjórinn og bæjarstjórnin í Hafnarfirði hafi ekki haft yfirsýn með verkefni af þessari stærðargráðu.
Frá því að áformin voru kynnt og síðar hætt við þau hafa þrír bæjarstjórar verið í Hafnarfirði. Rósa Guðbjartsdóttir (D), Valdimar Víðisson (B) og Þórður Þórarinsson sem var ráðinn eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.
Eva Marín segir málið vera dæmi um ákveðinn ábyrgðarflótta.
„Það vill enginn vera sá sem segir frá því hvað er að gerast og hvernig málin standa enda er það auðvitað mjög óþægileg staða að vera í. “
Hún segir að álíka mál komi reglulega upp í löndunum í kringum okkur.
„Stjórnsýslan er hvergi fullkomin. Við höfum séð marga stóra skandala á sveitarstjórnarstiginu sem varða til dæmis spillingu og annað. Ef kerfið bregst ekki við á rauðu ljósi og enginn stoppar það þá geta svona mál gerst eins og við sjáum núna.“