Kolbrún og Hrannar kynntust fyrst árið 2021 þegar þau voru bæði að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni. Síðan þá hafa þau unnið náið saman, komið mikið fram á sviði saman og ferðast saman erlendis til að spila á tónlistarhátíðum.
Parið hefur síðan verið að slá sér upp síðustu mánuði samkvæmt heimildum fréttastofu. Þannig hefur samband þeirra þróast úr vinasambandi í samstarfssamband og svo í ástarsamband. Parið er á svipuðu reki, Kolbrún fædd árið 2003 en Hrannar árið 2004.
Eftir að hafa unnið mikið saman stofnuðu þau formlega til tvíeykisins KUSK & Óviti en tónlist þeirra má lýsa sem blöndu af svefnherbergispoppi og drum-n-bass. Tvíeykið gaf síðan út fyrstu breiðskífu sína saman, átta laga plötuna Rífast, í september á síðasta ári og héldu glæsilega útgáfutónleika á Prikinu.
Nýjasta lag þeirra er smáskífan „Árið mitt?“ sem kom út í síðasta mánuði. „Á þetta að vera árið mitt?“ syngja þau á viðlaginu þar og kannski er það raunin.