Donald Trump forseti Bandaríkjanna, JD Vance varaforseti og Mohammad Bagher Ghalibaf forseti íranska þingsins hafa þegar undirritað samkomulagið um að ljúka stríðinu í Miðausturlöndum rafrænt. Þetta hafa fjölmiðlar eftir ónafngreindum embættismanni. Formleg undirritun er þó áfram fyrirhuguð á föstudag.
Trump sagði fyrir fund með Emmanuel Macron forseta Frakklands í dag að skip væru þegar farin að sigla um Hormússund og að sundið yrði opið að fullu á föstudaginn. Gögn benda til þess að umferð um Hormússund sé enn takmörkuð.