Strandgæsla Taívans sendi í dag út nokkur skip til að bregðast „með viðeigandi hætti“ við löggæsluaðgerðum Kínverja sem hún segir brjóta alþjóðalög. Vel hafi verið fylgst með skipum kínverskra yfirvalda.
Í gær skipulagði kínverska samgönguráðuneytið sérstaka löggæsluaðferð á hafi úti austan við Taívan. Yfirlýsing ráðuneytisins greindi ekki nánar frá því hvers eðlis hún væri. Þar sagði að hún væri nauðsynlegt viðbragð við tvíhliða tilkynningu Japana og Filippseyja um samningaviðræður um ákvörðun landamerkja milli ríkjanna á hafi úti austur af Taívan.
Í síðasta mánuði greindu stjórnvöld í Tókýó og Maníla frá því að þau hygðust hefja viðræður um ákvörðun efnahagslögsögu og landgrunns ríkjanna í hafinu.
Það hefur ekki fallið vel í kramið í Kína. Þarlend stjórnvöld gera enn tilkall til Taívans og hafsvæðisins umhverfis eyjuna. Það á því einnig við um hafsvæðið þar sem Japanar og Filippseyingar hyggjast draga upp landamerki milli ríkjanna.
Japan og Filippseyjar hafa á undanförnum árum eflt samstarf sitt, ekki síst vegna vaxandi áhyggja af auknum umsvifum Kínverja á hafinu.