Samkeppniseftirlitið telur að Síminn hafi stundað skaðlega undirverðlagningu þegar fyrirtækið var með tilboð á Heimilispakkanum á árunum 2019–2021. Þetta er niðurstaða frummats stofnunarinnar. Síminn fær nú færi á að andmæla þeirri niðurstöðu áður en Samkeppniseftirlitið kemst að endanlegri niðurstöðu.
Ásar, móðurfélag Símans, greindi frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar í gær. Frummatið er hluti af rannsókn Samkeppniseftirlitsins á fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu í gegnum Heimilispakkann. Þar er boðið upp á síma- og netþjónustu auk annars.
Ásar taka fram í tilkynningu sinni til Kauphallar að endanleg niðurstaða sé ekki fengin. Fyrirtækið ætlar að nýta andmælarétt sinn og taka til fullra varna.