Íslendingar greiða að meðaltali 55% meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í greiningu Samkeppniseftirlitsins sem birt var í dag. Aðeins í Sviss er matvara dýrari en á Íslandi eða 58% yfir meðaltali ESB-landa.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að þau ætli nú að taka samtöl við fólk á markaðnum og séu að afla mikilla upplýsinga. „Það er ljóst að samkeppnin á mjög á brattann að sækja í litlu hagkerfi sem er frekar lokað með lítinn sérstakan gjaldmiðil og talsverða tollvernd á dagvörumarkaði en það er ýmislegt fleira sem við þurfum að skoða, samkeppnishindranir og aðgangshindranir.“
Samkeppniseftirlitið aflar nú gagna til að kanna álagningu dagvöruverslana og birgja og koma auga á samkeppnishindranir sem hafa áhrif á matvöruverð. Eftirlitið kallar eftir sjónarmiðum um efni umræðuskjalsins og ábendingum um samkeppnishindranir fyrir 30. júní.
Gengið lengra í að undanþiggja afurðastöðvar í landbúnaði
Páll telur fleiri en eina skýringu vera á því að verð á matarkörfunni á Íslandi hafi hækkað á síðustu árum. Ein skýringanna sé að hér hafi verið gengið lengra í að undanþiggja afurðastöðvar í landbúnaði frá samkeppnislögum heldur en í nágrannalöndunum.
„Alls staðar í kringum okkur eru samkeppniseftirlit að stöðva samruna sem að skaða hagsmuni neytenda og bænda. Hér hefur samkeppnislögunum verið kippt úr sambandi að því leyti og kjöt og mjólk hafa hækkað mjög mikið.“ Þetta komi niður á neytendum á endanum.
Mjólkurvörur hér á landi eru þær dýrustu í Evrópu, eða rúmlega 90% yfir meðaltali ESB-landa. Kjötvörur eru um 75% yfir meðaltalinu og verð á kjöti hefur hækkað mest af öllum vöruflokkum á Íslandi frá árinu 2020.
Ekki tekið tillit til launakjara
Ekki er tekið tillit til launakjara í greiningu Samkeppniseftirlitsins, en laun eru almennt talin hærri á Íslandi og í Sviss en í mörgum af hinum löndunum í umræðuskjalinu. Páll segir þó aðrar greiningar sem hafa komið nýlega fram gefa til kynna að skýringarnar séu ekki að verulegu leyti að leita þangað.
Í spilaranum hér að neðan má horfa á umfjöllun sjónvarpsfrétta um samantekt Samkeppniseftirlitsins sem endar á viðtali við forstjóra Samkeppniseftirlitsins.