Samherji hefur stofnað sjóð gegn fíknivanda og hyggst leggja til 20 milljónir á ári næstu fimm árin. Sjóðurinn ber heitið Samheldni og fyrirtækið skorar á atvinnulífið að leggja verkefninu lið.
„Þetta málefni snertir marga. Þau samtöl sem við höfum átt hingað til hafa verið jákvæð. Við göngum auðmjúk til þessa verkefnis. Það eru margir góðir málstaðir sem fyrirtæki eru að styrkja. Þessi málstaður snertir alla í þjóðfélaginu, óháð aldri, stétt og kyni. Ég vona að atvinnulífið leggist á eitt og menn geri það sem þeir geta og taki þátt í þessari söfnun,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja.
Markmiðið er að safna 300 milljónum til þess að úthluta.
Velja þrjú verkefni til að styrkja
Fjármununum verður úthlutað til þriggja verkefna: stuðnings við fjölskyldur og ungmenni hjá SÁÁ, uppbyggingar smáhýsa fyrir sjálfstæða búsetu hjá Hlaðgerðarkoti og byggingar nýrrar álmu við meðferðarheimilið í Krýsuvík.
Formaður stjórnar Samheldni er Valgeir Magnússon og biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, tekur að sér hlutverk verndara sjóðsins.
„Eftir að hafa kafað ofan í málið teljum við að þetta verði þau mál sem geri mest, að peningarnir nýtist best þarna. Það vantar fleiri meðferðarpláss, það vantar fleiri úrræði fyrir fjölskyldur ungs fólks sem lendir í fíkn,“ segir Baldvin.
Komið að atvinnulífinu
„Það er nauðsynlegt að byggja upp meiri getu í kerfinu til að veita fólki þá meðferð sem þarf. Það er hvatinn að þessu,“ segir Baldvin.
Atvinnulífið kom að stofnun SÁÁ á sínum tíma og telur Baldvin að nú þurfi það að láta til sín taka á nýjan leik. „Nú er þörfin orðin þannig að ég tel að atvinnulífið eigi að stíga upp og mæta þessari þörf sem er í kerfinu.“