Kristján Berg, sem er jafnan kenndur við verslun sína Fiskikónginn á Sogavegi í Reykjavík, segir fyrirtækið hafa þurft að bíða í rúman áratug eftir leyfi til að stækka verslunina.
Kristján gagnrýnir hversu þungt í vöfum borgarkerfið sé orðið en það leiði til mikils kostnaðar og sé letjandi fyrir athafnafólk í borginni.
Hann lýsir þessari þrautagöngu í samtali við Morgunblaðið í dag og hvernig arkitekt hjá borginni ráðlagði honum að innrétta veitingastað á Sogaveginum.
Lagði umsókn fram að nýju
„Ég fór að ráðum hans, þótt ég hafi hvorki ætlað mér að vera með veitingastað né kunnað til slíks reksturs. Þannig að ég lagði fram umsóknina að nýju hjá byggingarfulltrúa og fékk jákvætt svar fyrir byggingarleyfi enda væri gert ráð fyrir veitingastað, sem var náttúrlega galið. Svo þegar ég var búinn að láta teikna veitingastaðinn fór ég með teikningarnar til samþykktar hjá byggingarfulltrúa. Þá fékk ég hins vegar það svar að ég fengi leyfi til að stækka húsnæðið en mætti ekki hafa veitingastaðinn,“ segir Kristján.
Þakklátur en langþreyttur
„Ég er að sjálfsögðu þakklátur að hafa fengið að byggja, en ferlið tekur of langan tíma. Tíu ár er algerlega galið,“ segir Kristján sem opnaði verslunina á Sogaveginum í janúar 2009.
Lesa má nánar um máið á bls.2 í Morgunblaðinu í dag
