Maður á Suðurlandi hefur verið ákærður fyrir nauðgun, kynferðisbrot og stórfellt brot í nánu sambandi. Meint brot voru framin í janúar árið 2022 á þáverandi heimili ákærða og brotaþola. Í ákæru er maðurinn sagður hafa haft samræði við konuna án hennar samþykkis þar sem hún lá meðvitundarlaus og þannig notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga. Hann hafi síðan á sama tíma, án vitneskju brotaþola, tekið upp nauðgunina og útbúið myndskeið af henni. Segir að hann hafi með þessari háttsemi ógnað lífi, heilsu og velferð konunnar.
Sagður hafa nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonu sinni og útbúið myndskeið af verknaðinum