Kærunefnd húsamála hefur úrskurðað að leigusali verði að endurgreiða fyrrverandi leigjanda tryggingarfé að fjárhæð 567 þúsund krónur ásamt vöxtum.Ástæðan er sú að leigusalinn lét undir höfuð leggjast að gera skriflega kröfu í tryggingarféð innan lögbundins frests, en leigusalinn hélt því fram að íbúðinni hefði verið skilað í mjög slæmu ástandi.Leigjandinn hafði greitt 567 þúsund krónur í tryggingarfé við upphaf leigusamnings sem tók gildi í desember 2024. Samkomulag náðist síðar um að leigutíma lyki 30. september 2025 og var íbúðinni skilað sama dag.
Sagði íbúðina hafa verið í skelfilegu ástandi – ein einföld mistök urðu honum hins vegar dýrkeypt