Hernaðarbandalag Sádi-Araba gerði árásir á yfirráðasvæði Húta í Jemen í kvöld.
Bandalagið segir árásirnar svar við árásum Húta á skip í Rauðahafi.
Hútar segja tvo hafa særst í árásunum. Þær hafi hæft fjarskiptastöðvar í hafnarborginni Hodeidah.
Fyrr í vikunni lýstu Hútar yfir hafnbanni á sádi-arabískar hafnir.
Sádiarabískt flutningaskip sem var á siglingu um Rauðahaf skemmdist lítillega í dag eftir árás. Það hélt för sinni þó áfram eftir að í ljós kom að það væri vel sjófært og áhöfnin óhult.
Þá gerðu Hútar árásir á í það minnsta tvö olíuflutningaskip á rauðahafi í vikunni.