Rússneska herskipið Yuri Ivanov, sem sigldi innan íslenskrar efnahagslögsögu en utan íslenskrar landhelgi fyrr í sumar, er aftur komið á svipaðar slóðir.
Fram kemur í tilkynningu Stjórnarráðsins að skipið hafi verið norður og vestur af landinu undanfarna daga. Það hafi verið utan 12 sjómílna landhelgi Íslands en innan efnahagslögsögunnar.
Í tilkynningunni segir að skipið sé með takmarkaðan vopnabúnað og að hlutverk þess sé fyrst og fremst að sinna njósnum og upplýsingaöflun. Þá séu engin merki þess að neðansjávarinnviðum eða sjófarendum stafi ógn af skipinu.
Landhelgisgæsla Íslands fylgist grannt með ferðum skipsins, í samráði við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, herstjórnir Atlantshafsbandalagsins og stjórnstöð bandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.