Rusl liggur á víð og dreif í grennd við móttöku- og flokkunarstöð Sorpu í Gufunesi. Sviðsstjóri hjá Sorpu segir rusl á víðavangi vera algengt á þessum tíma árs.
„Við lendum auðvitað í því og þá sérstaklega yfir veturinn, að það fýkur eitthvað til okkar þarna inn í stöðina. Þetta kemur síðan í ljós þegar fer að vora, þegar snjóa leysir, fólk fer að fara meira um þessi svæði og þá tökum við bara á þessu,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs hjá Sorpu.
Staða eins og þessi kemur upp á hverju ári.
„Það fýkur þegar ruslabílar koma og tæma. Það eru kannski fleiri metrar á sekúndu heldur en að við myndum kæra okkur um og þá geta hlutir fokið þangað sem þeir eiga ekki að vera. Það er vðvarandi hjá okkur að koma í veg fyrir það líka.“
Plokkarar mikið hugsjónafólk
Í dag er stóri plokkdagurinn og að sögn Gunnars Dofra er því tilvalið tækifæri fyrir plokkara til nýta daginn, taka til hendinni á svæðum líkt og í Gufunesi og hreinsa til í nærumhverfi sínu.
„Þessi dagur er náttúrulega mjög góður. Plokkarar almennt, þetta er mikið hugsjónafólk sem að gengur um götur og tínir rusl sem að verður á vegi þeirra. Og sérstaklega í dag þá er þetta auðvitað frábært,“ segir Gunnar Dofri.
„Við tökum plokkurum mjög opnum örmum í Sorpu, þannig að fólk getur komið með plokk í glærum pokum til okkar og við tökum á móti því og komum því í réttan farveg.“