Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar en lögreglan á stöð tvö í Hafnarfirði og Garðabæ handtók einn vegna rannsóknarinnar á sölu fíkniefna og peningaþvætti. Auk hans voru tveir kærðir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og voru þeir sviptir ökuréttindum.
Lögregla á stöð 1 í Austurbæ, Vesturbæ, Miðbæ og á Seltjarnarnesi hafði afskipti af einstaklingi vegna líkamsárásar og lögregla í Kópavogi og Breiðholti fékk tilkynningu um rúðubrot í bifreið en á dögunum var einstaklingur handtekinn fyrir að brjóta rúður í þrjátíu bifreiðum þann 2. nóvember síðastliðinn.
Þá var einn vistaður vegna rannsóknar á heimilisofbeldi og einnig fékk lögreglan á stöð fjögur, sem sinnir Grafarvogi, Árbæ og Mosfellsbæ, tilkynningu um þjófnað á byggingarefni.