Sendinefnd Úkraínu fundar með fulltrúum Bandaríkjastjórnar og evrópskum embættismönnum í Miami á Flórída í Bandaríkjunum í dag. Tilefni fundarins er að ræða nýjar hugmyndir og reyna að setja fram sameiginlega tillögu um að binda enda á stríðið við Rússland.
Fréttaveitan AFP hefur þetta eftir ónafngreindum bandarískum heimildarmönnum.
Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti segir að úkraínska samninganefndin hitti Jared Kushner og Steve Witkoff fulltrúa Bandaríkjanna. Ráðgert er að fundirnir standi í tvo daga. Bandaríska samninganefndin bauð einnig öryggisráðgjöfum frá Bretlandi, Frakklandi og Þýskalandi auk embættismanna frá Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu til fundarins.
Þríhliða samningaviðræður gætu haldið áfram í lok mánaðarins
Þríhliða samningaviðræður Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna hafa að mestu legið niðri síðan stríðið í Mið-Austurlöndum hófst í febrúar. Bandarískir embættismenn segja þó að reynt hafi verið að blása til þeirra að nýju eftir heimsókn Witkoff og Kushners til Moskvu og Kyiv í síðasta mánuði.
Zelensky sagði í síðustu viku að Bandaríkin vildu endurlífga samningaviðræðurnar og reyna að koma á nýrri samningalotu með Úkraínu og Rússlandi og halda viðræður í lok október. Rússlandsstjórn sagði í síðasta mánuði að þríhliða viðræður til að binda enda á stríðið gætu farið fram í október.
Pútín bauð Schröder í heimsókn á afmæli sínu
Vladimír Pútín forseti Rússlands lagði til í maí að Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslari Þýskalands, yrði samningamaður milli Úkraínu og Rússlands en Evrópuþjóðir hafa hafnað því.
Rússlandsstjórn greindi frá því á Telegram í gær að Pútín Rússlandsforseti hefði boðið Schröder á heimili sitt á 74 ára afmæli sínu á miðvikudag. Í færslunni sagði að Pútín hefði frétt að Schröder væri í Moskvu í viðskiptaerindum og hefði því boðið sínum gamla vini í heimsókn.
Schröder hefur verið gagnrýndur og er undir viðskiptaþvingunum fyrir náin tengsl sín við Pútín sem hafa valdið áhyggjum í Þýskalandi. Schröder hefur verið sviptur forréttindum sem fylgja því að hafa verið kanslari.