„Góðar líkur eru á að margir sjái eitthvað til sólar undir kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Í dag fer loks að létta til og draga úr vindi þó að dálítil væta verði framan af. Yfirleitt þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum, en dálítil súld í öðrum landshlutum. Hiti 10 til 17 stig nema austast á landinu þar sem hiti gæti skriðið yfir 20 stig.
Suðvestan og vestan 5 til 15 m/s, hvassast norðvestantil og á Suðausturlandi undir kvöld.
Sums staðar þurfa vegfarendur að vara sig á vindstrengjum við fjöll, þá sérstaklega þeir sem eru á ökutækjum sem viðkvæm eru fyrir vindi. Veðurstofan varar við allhvassri sunnanátt á norðanverðu Snæfellsnesi og á Suðausturlandi í kvöld með hviðum að 25 m/s.
Norðlæg átt 3 til 10 m/s, gola eða jafnvel kaldi blæs yfir á morgun. Þá verður skýjað og dálítil væta norðaustantil en annars léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, svalast á Norðausturlandi og líklega hlýjast á suðurlandsundirlendinu.
Um helgina er útlit fyrir að verði bjart með köflum og fremur hæga breytilega átt. Líklega verður skýjaðra á sunnudag. Á stöku stað gæti orðið vart við skúrir, einkum síðdegis. Heldur svalara, en áfram mildast sunnan- og vestanlands.