Rauða hverfi Reykjavíkur

Rauða hverfi Reykjavíkur

Rauða hverfi Reykjavíkur

Það er þriðjudagur. Við erum stödd miðsvæðis í Reykjavík. Kveikur hefur fengið ábendingu um að á þessum slóðum sé vændisstarfsemi, töluvert af henni reyndar. Við stöldrum við og þurfum ekki að bíða lengi. Þarna er maður í leit að einhverju. Á endanum gengur hann að herbergi 214. Dyrnar opnast. Hann staldrar stutt við.

Við fylgjumst með næstu daga og sjáum ákveðið mynstur. Fleiri menn fara inn í sama herbergi, herbergi 214, öllum stundum dags.

Hið sama á sér stað á fleiri stöðum á svipuðum slóðum, í Rauða hverfinu í Reykjavík, hverfi sem er sérstaklega auglýst sem slíkt á vinsælli vændissíðu.

„Þetta er svolítið mikið til allt í kringum okkur hérna,“ segir Gunnar Axel Davíðsson rannsóknarlögreglumaður þegar hann keyrir með okkur um hverfið: Miðbæinn, Holtin og Túnin.

„Vændisstarfsemi í dag er orðin umtalsverð,“ segir Gunnar Axel.

Vændissíðan City of Love gefur ákveðna mynd af umfanginu, þótt sala á vændi fari fram í gegnum fleiri vefsíður og samfélagsmiðla. Á síðunni eru tæplega sjö hundruð auglýsingar en ljóst er að sumar konur eru með fleiri en eina virka auglýsingu. Konurnar eru flestar erlendar, staddar í Reykjavík, en þó er framboð víða um land.

„Þetta er kynferðisbrot“

Jenný Kristín Valberg, teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð, segir að konur sem selji vændi geri það langoftast af neyð, til að mynda vegna neyslu eða fjárhagsvanda.

„Það er hugtak sem heitir „survival sex“ sem talar inn í þetta, kynlíf verður bjargráðið þitt í að lifa af.“

Drífa Snædal talskona Stígamóta tekur undir þetta. „Við erum með konur sem hafa haldið í fyrstu að þetta sé lausn við þeirra fjárhagslega vanda, að þetta sé ekkert vandamál. Síðar fara þær að upplifa þetta sem íþyngjandi vandamál, miklar afleiðingar og koma þá hingað.“

Viðmælendur Kveiks eru sammála um að langflestir kaupendur vændis hér á landi séu íslenskir karlmenn á öllum aldri, úr ólíkum stéttum og starfsgreinum.

„Maður hefur heyrt að menn séu að fara bara til og frá vinnu, keyra börn í leikskólann, eru að fara á erfiðan fund. Bara aðeins að droppa við þarna áður,“ segir Jenný.

„Það er eins og þeir líti á þessar konur eins og þetta sé sjálfsögð þjónusta, einhver aftöppunarþjónusta fyrir þá.“

Hér á landi er vændi sem slíkt ekki ólöglegt. Farin er svokölluð sænsk leið sem kveður á um að ólöglegt sé að kaupa vændi og hafa milligöngu um það. Afleiðingar fyrir vændiskaupendur eru þó ekki ýkja miklar, oftast sektir í kringum 200 þúsund krónur, en gefin er út ákæra ef viðkomandi gerist aftur uppvís að vændiskaupum.

„Ég held að mjög fáir kaupendur vændis geri sér grein fyrir því að þeir eru að brjóta kynferðisbrotalög almennra hegningarlaga. Af því að þetta er kynferðisbrot,“ segir Drífa.

Hélt að hún hefði stjórn á aðstæðunum

Ung íslensk kona, sem hefur reynslu af því að vera gerð út í vændi, ræddi við Kveik. Hún vill vernda börnin sín og vill því ekki láta nafns síns getið.

„Ég hugsaði að þetta gæti orðið redding í eitt, tvö skipti og ég þyrfti ekki einhvern veginn að láta neinn vita af þessu, ég þyrfti ekki að biðja neinn um hjálp og ég myndi halda sjálfstæðinu mínu. Ég hefði bara stjórn á þessu.”

Þarna var hún stödd í öðru landi, í námi, var ekki með atvinnuleyfi og átti erfitt með að sjá fyrir sér. Maður sem hún komst í kynni við þóttist eiga lausn við hennar vanda, lausn sem hann sjálfur hagnaðist á.

„Eftir fyrsta skipti voru mér bara lagðar línurnar,“ segir konan.

Hverjar voru þær?

„Ég þyrfti alltaf að borga 33 prósent af því sem ég fengi, ég fengi ekki að sjá um nein samskipti við neina aðila sjálf. Þegar ég maldaði í móinn að þetta væri ekki eitthvað sem ég ætlaði að gera var mér eiginlega bara gerð grein fyrir því að það væri svo sem ekkert val,” segir konan.

„Það var stöðugt verið að biðja mig um að fara eitthvert og gera eitthvað og í lengri tíma. Hann fór einhvern veginn að stjórna öllu sem ég gerði, mjög fljótlega. Ég held að ég hafi þá farið að missa svolítið stjórn á öllu.“

Þetta var ekki neysludrifið, eins og sést oft í svona málum?

„Nei, það átti ekki við um mig,“ segir konan sem var skyndilega orðin þolandi mansals.

„Vissi ég að ég myndi enda í mansali? Nei. Ég sá það ekki fyrir.“

Innilokaðar með vistir

Gunnar Axel hjá lögreglunni telur að einungis brotabrot af þolendum vændis leiti til Bjarkarhlíðar og Stígamóta. Tíu vændismansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar í fyrra. Þar af voru fimm íslenskir brotaþolar, tveir kínverskir, tveir frá Venesúela og einn frá Nígeríu. Níu þeirra eru konur og einn kynsegin.

Í sjö málanna voru gerendur annaðhvort makar, ættingjar eða kunningjar brotaþola. Í einu málanna kom fram að vændi hefði tengst vinnustað og gerandi verið yfirmaður. Gerendur í tveimur málanna tengdust brotaþolum með öðrum hætti.

Drífa Snædal hjá Stígamótum segir að mörkin á milli mansals og vændis séu ekki alltaf mjög ljós.

„Það getur verið að þú sért undir einhverjum þrýstingi að leiðast út í vændi, síðan getur verið að þú sért beinlínis gerð út. Það getur verið að þú byrjir með frjálsum vilja en farir síðan inn í net einhverra.“

Drífa bendir á að mansal geti líka haft mjög ólíkar birtingamyndir. „Við getum haft skipulagða glæpahringi sem ferja konur á milli landa til þess að gera þær út og selja þær eins og hverja aðra vöru. Við getum líka verið með það sem við sjáum meira hérna á Stígamótum, að það er maki að gera út eiginkonu eða kærustu.”

Lögreglan telur að flestar konur í vændi hér á landi séu þolendur mansals.

„Við teljum að þetta sé meirihlutinn skipulögð starfsemi, þó að þær segist vera hér af fúsum og frjálsum vilja þegar við ræðum við þær, þá grunar okkur að það sé ekki svoleiðis,“ segir Gunnar Axel. „Ég tel að engin kona sé tilbúin til að selja líkama sinn eins og gert er í þessum bransa.“

Jenný segir starfsfólk Bjarkarhlíðar líka verða vart við „þaulskipulagða” glæpastarfsemi þegar kemur að konum í vændi. „Þar sem konur eru að koma hingað, gagngert í þeim tilgangi að það er verið að gera þær út.“

Fulltrúar Bjarkahlíðar hitta þessar konur oft eftir aðgerðir lögreglu og bjóða þeim aðstoð. „Þetta eru konur sem eru kannski búnar að vera innilokaðar í heila viku og það eru bara vistir inni á herbergi sem eiga að duga og þær hafa á þessum vikutíma kannski bara farið út með ruslið.“

Til Bjarkarhlíðar kom nýlega kona sem hafði þjónustað áttatíu einstaklinga á þremur sólarhringum. Hún dvaldi á Einholt Apartments í september. Þar er engin afgreiðsla heldur aðeins kóði sem gestir fá til þess að komast inn, svokallað „self check-in“ hótel. Kaupendurnir mættust sumir í dyragættinni. Þeir náðust allir á upptöku hjá lögreglu. Lögreglan telur nær fullvíst að konan sé þolandi mansals og send landa á milli.

Vita oft ekki hverja þær eiga að hitta

Í þessum tilfellum, þegar um skipulagða brotastarfsemi er að ræða, er konan neðst í píramídanum og fær stundum ekki mikið meira en helminginn af því sem hún þénar. Fyrir ofan hana eru milliliðir á borð við þá sem sjá um auglýsingar og rafræn samskipti. Konurnar vita jafnvel ekki hvernig þeirra eigin auglýsingar líta út, hvaða þjónustu þær eiga að bjóða upp á eða hvaða menn þær eiga að hitta. Síðan er annar milliliður sem á í samskiptum við þá sem sjá um bókanir. Á toppnum situr höfuðpaurinn.

Þetta er ekki algilt en í þessum tilfellum eru konurnar fórnarlömb mansals.

„Oftast er þetta þriðji aðili sem sér um samskiptin, sem er oft staðsettur erlendis,“ segir Gunnar Axel. Samskiptin fara þá fram í gegnum svokölluð símaver.

Afmennska konurnar og beita þær ofbeldi

Konurnar hitta sem sagt gjarnan menn sem þær hafa ekki valið sjálfar að hitta og vita ekki hvernig þær eru auglýstar eða hvaða þjónustu þær eru sagðar bjóða upp á. Þær verða svo í mörgum tilvikum fyrir kynferðisofbeldi ofan á vændið.

„Það sem við sjáum hérna hjá Stígamótum er, þær sem eru að vinna úr afleiðingum vændis, það eru einhvern veginn ýktari afleiðingar, ýktara ofbeldi, það er allt ýktara heldur en aðrir brotaþolar sem við sjáum, samkvæmt okkar rannsóknum,“ segir Drífa Snædal.

„Yfirleitt eru þetta karlar sem kaupa konur, þeir líta á konur sem hluti eða kjötstykki eða eitthvað til þess að þjóna sér. Þegar þú hefur þannig viðhorf að þá – svona afmennskunarviðhorf – að undir slíkum kringumstæðum er ofbeldi algengara.“

Konan sem hætt er í vændi og Kveikur ræddi við lenti í þessu.

„Ég varð fyrir líkamlegu ofbeldi af mönnum sem ákváðu að kaupa mig. Ég held að það sé partur af því líka að maður verður ekki lengur manneskja,“ segir konan. „Ég vissi bara ekkert hver ég var orðin lengur. Bara í vítahring sem ég vissi í raun ekki að væri til fyrr en ég var komin inn í hann.“

Myndirðu treysta þér til að lýsa fyrir okkur hvað þessir menn gerðu þér?

„Já. Það var til dæmis einn maður sem fékk mest út úr því að rassskella mig það harkalega að ég marðist eða helst blæddi smá og síðan fékk hann út úr því eftir það að misþyrma mér kynferðislega.“

Stoppaðar á flugvellinum

Þó að íslenskir karlmenn séu meirihluti kaupenda vændis eru íslenskar konur í minnihluta þegar kemur að sölu vændis. Flestar erlendu kvennanna koma inn í gegnum Keflavíkurflugvöll, en þar kemur fjöldi mála upp í hverri viku sem tengist vændisstarfsemi.

Kveikur fór á staðinn sumarið 2024. Þá tók tollgæslan eftir óvenjulegum farangri ungrar konu við komuna til landsins og tilkynnti það til lögreglunnar á Suðurnesjum, sem kannaði málið frekar.

„Óvanalegt magn af nærfötum og mikið af smokkum,“ sagði lögreglumaður um farangur konunnar. „Eina sem hún veit er að hún er með einhvern „random“ gsm-síma sem hún á að hringja í þegar hún kemur. Svo gat hún ekki almennilega útskýrt hvað hún væri að fara að gera. Hver borgaði miðann, hverja er hún að koma að hitta, hvar ætlar hún að gista? Þá kemur upp þetta nafn, þessi gististaður sem er tengdur við fyrri vændismál.“

Heimilisfangið var í Bolholti. Þar er hótel úr sömu keðju og herbergi 214 sem nefnt var í upphafi.

Kveikur fylgdist með yfirheyrslunni yfir konunni.

„Þú ert komin aftur, af hverju?“ spurði lögreglumaður konuna.

„Af því að ég vil koma aftur,“ svaraði hún.

Konan hafði sem sagt áður komið til Íslands. Bókað hafði verið að grunur væri um að hún væri í mansali, hagnýtt kynferðislega.

„Hvað ætlarðu að gera á Íslandi?“ spurði lögreglumaðurinn.

„Ekkert, ég er hrifin af Íslandi,“ svaraði konan.

„Veistu hvers vegna þú varst stoppuð?“ spurði lögreglumaðurinn.

„Nei, ég veit það ekki,“ svaraði konan og bætti við: „Það er fólk sem kemst inn í landið sem hefur gert verri hluti en ég.“

„Við höfum átt þetta samtal áður.“

„ Já.“

„Er þetta glæpur í þínu landi?“ spurði lögreglumaðurinn. Konan svaraði ekki. „Þegar þú aflar þér peninga, greiðir þú skatt af þeim?“

„Ég var bara barn og kunni ekki að greiða skatta,“ svaraði konan.

Hún var tvítug þegar þessi yfirheyrsla fór fram en þrátt fyrir ungan aldur hafði hún komið til landsins fjórum sinnum áður. Lögreglan taldi að stjúpfaðir hennar hefði verið að gera hana og móður hennar út í vændi. Konan staðfesti eftir yfirheyrsluna að hún hefði í reynd komið hingað til lands til þess að stunda vændi. Henni var að lokum synjað um inngöngu til landsins þar sem tilgangur hennar til að heimsækja landið reyndist ekki réttnæmur.

„Við viljum helst ekki koma henni í hendurnar á manninum, sporna við því fyrst og fremst,“ sagði lögreglumaður við Kveik og vísaði til stjúpföður konunnar.

Lögreglan eltir peningana

Lögregla talaði á síðasta ári við vændiskonur á aldrinum 19-53 ára af tíu þjóðernum; flestar frá Rúmeníu og Kólumbíu en einnig frá Nígeríu, Kína, Venesúela, Malasíu, Spáni, Bretlandi, Ghana og Paragvæ.

Ísland tekur þátt í víðtæku, alþjóðlegu samstarfi gegn skipulagðri brotastarfsemi og mansali, meðal annars með Europol, Interpol og Frontex. Megináherslan er lögð á að ná þeim sem skipuleggur, segir Agnes Ósk Marzellíusardóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

„Við erum að leggja meiri og meiri og ríkari áherslu á það að elta peningana. Hvert eru þeir að fara? Hver er það sem hagnast á þessu? Þetta er það sem við erum almennt að gera í skipulagðri brotastarfsemi.“

Eruð þið að sjá háar fjárhæðir?

„Já, við erum að sjá mjög háar fjárhæðir.“

Menn streyma inn í herbergi 214

Við erum komin aftur fyrir utan herbergi 214. Áfram streyma menn þangað inn. Lögreglan bregst fljótt við upplýsingum um að þessir menn kunni að vera að kaupa sér vændi en til að staðfesta þann grun þarf hún líka að fylgjast með um stund. Dagana á undan höfum við orðið vör við sérkennilega umferð í næsta herbergi; við sáum sömu mennina fara inn og út, hvað eftir annað. Fíkniefnalögreglan rennur skyndilega í hlað og eltir uppi mann úr því herbergi, herbergi 212. Hann er handtekinn auk annars manns sem hafði keypt af honum fíkniefni nokkrum mínútum áður.

Þarna eru á ferðinni menn sem eiga sér sögu hjá lögreglu, menn sem eru ekki með dvalarleyfi hér á landi. Inni í herbergi 212 fundust ýmsar tegundir fíkniefna, meðal annars kókaín og kannabis.

Á meðan er vændiskaupandi inni í herbergi 214. Kona sem er þar með honum kíkir út fyrir, líklega til þess að kanna hvort lögreglan sé farin. Svo kemur vændiskaupandinn út. Lögreglan eltir hann uppi:

„Lögreglan, stoppaðu! Þú ert handtekinn, grunaður um kaup á vændi.“

Maðurinn virðist forviða.

„Hvað varstu að gera í Einholti 2, herbergi 214?“ spyr Gunnar Axel lögreglumaður.

„Ég var í nuddi,“ segir maðurinn. „Lagðist upp í rúm, á grúfu, og það var bara verið að nudda herðar og bakið... bara slappa af.“

„Hvar auglýsti hún þetta nudd?“ spyr lögreglukona.

„Bara á netinu,“ svarar maðurinn.

„Já, hvar á netinu?“ spyr lögreglukonan.

„Ég kýs að ekki tjá mig um það,“ svarar maðurinn.

„City of love?“ spyr lögreglukonan.

„Kýs ekki að tjá mig um það,“ svarar maðurinn.

Maðurinn ákvað á endanum að óska eftir verjanda og játaði síðan brot sitt. Hann fékk 200 þúsund króna sekt. Konunni í herbergi 214 var boðin viðeigandi aðstoð, líkt og öðrum konum í hennar stöðu. 

Kínversk kona grunuð um að skipuleggja vændi

Ítrekað hefur lögreglan orðið vör við vændi á hótelinu við Einholt og á öðrum hótelum úr sömu hótelkeðju, sem heitir Stay Apartments. Einnig eru þekktar staðsetningar í bænum þar sem vændisstarfsemi er það algeng að hægt væri að tala um vændishús, þó að lögreglan geti ekki orðað það sem svo – enda er vændishús ekki skilgreint í lögum.

„Við höfum þurft að hafa afskipti af einstaklingum í nokkur skipti í sama húsnæði í borginni,” segir Gunnar Axel.

Eitt slíkt húsnæði er kjallaraíbúð í Túnunum í Reykjavík, hús sem er í talsverðri niðurníðslu en hefur engu að síður verið notað til Airbnb-útleigu. Nágrannar hafa reynt að hrekja burt vændiskaupendur, sett miða á bílana, tekið af þeim myndir og varpað varnarorðum með skjávarpa á húsið, auk þess sem lögregla er þar tíður gestur.

Konurnar sem hafa verið þar innandyra eru kínverskar og taldar vera þolendur mansals. Þær eru fullorðnar en eru mjög unglegar í útliti og þjónusta þeirra er boðin á lægra verði en annars staðar.

„Svo náttúrlega varð breyting árið 2024, þá urðum við fyrst vör við konur frá Kína,“ segir Gunnar Axel og bætir því við að þær hafi verið að keyra niður verðskrána. „Margar koma frá Spáni, eru með dvalarleyfi á Spáni og koma hingað.“

Eru þær þá fyrst og fremst mansalsfórnarlömb? 

„Það er það sem okkur grunar helst.“

Kínversk kona er grunuð um að hafa rekið vændisstarfsemi í húsinu í Túnunum. Hún er nú búsett í Svíþjóð og var þar til rannsóknar árið 2024, grunuð um skipulagningu vændis. Sú rannsókn var á endanum felld niður. Hún var um tíma eftirlýst hér á landi en sætir nú endurkomubanni.

Komst út úr vændinu

Það getur reynst konum í mansali erfitt að komast út úr vændi. Íslensku konunni sem Kveikur ræddi við tókst það á endanum. Hún var þá orðin verulega einangruð og ræddi varla við nokkurn mann utan vændisheimsins en var nýlega komin aftur í samband við foreldra sína. Eftir að hafa verið misnotuð kynferðislega sendi hún þeim skilaboð þar sem hún óskaði eftir hjálp. Þau komu henni heim með aðstoð hins opinbera. Skilaboðin má sjá hér að neðan.

„Ég man þegar ég sé þau og ég labba út úr flughöfninni með ekki neitt, ég er bókstaflega með ekki neitt.  Ég man að fæturnir gáfu sig. Í fyrsta skipti stóð ég ekki í lappirnar og ég bara: ég lifði þetta af.“

Hún leitaði sér aðstoðar nokkru síðar, eftir að Brynhildur Björnsdóttir gaf út bókina Venjulegar konur. Í bókinni birtust viðtöl við konur sem höfðu verið í vændi.

„Þetta var í fyrsta skipti sem ég heyrði einhvern tala um þetta af virðingu og að þetta séu manneskjur.“

Hún setti sig í samband við Brynhildi og þakkaði henni fyrir bókina. Í kjölfarið var henni boðin aðstoð á vegum Stígamóta. Þar upplifði hún í fyrsta sinn að talað væri til hennar af virðingu. „Ég heyri bara: Það er leiðinlegt og ömurlegt að heyra að þetta kom fyrir þig.“

Á vafasömum toppi

Ísland er lítið land. Engu að síður er Ísland ofarlega á lista yfir flestar vændisauglýsingar á City of Love, er í áttunda sæti af 161, er langefst af Norðurlöndunum – og ef miðað er við höfðatölu er Ísland í fyrsta sæti á heimsvísu. Jenný segir að nauðsynlegt sé að færa ábyrgðina af þolendum vændis yfir á kaupendur og skipuleggjendur þess.

„Það er búið að reyna að setja ábyrgðina á þá, gerendurna, en það er ekki nóg vegna þess að það hefur ekki verið nægilegur fælingarmáttur,“ segir Jenný Kristín.

Drífa bendir á að mjög sjaldan sé refsað fyrir vændiskaup. „Það eru ofsalega fáir sem þurfa að taka afleiðingunum af því.“

Er staðan mögulega þannig að Ísland sé einhvers konar vændisparadís þegar afleiðingarnar eru svo gott sem engar?

„Ég held það megi leiða líkum að því að það sé mjög auðvelt að kaupa og selja vændi á Íslandi, mjög auðvelt.“

Jenný telur að margir hugsuðu sig tvisvar um ef þeir ættu á hættu að nafn þeirra yrði birt ef þeir væru gripnir við vændiskaup. Drífa tekur undir það:

„Ég myndi vilja sjá afnám nafnleysis kaupenda. Kaupendur þurfa að taka einhverjum afleiðingum af því að kaupa vændi.“

Drífa segist ekki hrifin af hugmyndum um að lögleiða vændi alfarið.

„Okkur finnst að sá skaði sem vændi veldur sem við sjáum hérna hjá Stígamótum, það þurfi einhver að bera ábyrgð á því. Þá eru það þeir sem hafa valið, sem eru kaupendurnir,og þeir sem gera konur út ef því er að skipta.“

Konan sem var í vændi segir ljóst að konur komi ekki óskaddaðar út úr reynslu eins og hennar, reynslu af því að vera í vændi. Hún vill stíga fram og ræða þessi mál til þess að hjálpa öðrum konum sem kunna að hafa lent í svipuðum aðstæðum og hún.

„Ég er á þeim stað að ég get barist fyrir aðra og þess vegna tala ég. Ég ætla að halda áfram að tala um þetta, þegar ég get og þar sem ég get því ég get það núna.“

#hverfi #rauða #reykjavíkur


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-28-rauda-hverfi-reykjavikur-473844

📰 Aðrar fréttir

Bandarískur sjóliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
📅 27.10.2026 👁️ 1
Bandarískur sjóliði ákærður fyrir morð á japanskri konu
Japanskir saksóknarar hafa ákært bandarískan sjóliða sem er grunaður um að hafa myrt japanska konu á Okinawa-eyju í Japan.Sjóliðinn Devin Jacob Ballar...
Flokkur Bolsonaro viðurkennir kosningaúrslitin
📅 27.10.2026 👁️ 3
Flokkur Bolsonaro viðurkennir kosningaúrslitin
Flokkur Flavio Bolsonaro forsetaframbjóðanda í Brasilíu, Frjálslyndi flokkurinn, viðurkennir úrslit kosninganna sem fram fóru þar á sunnudaginn. Þetta...
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðaþróun, segir aðalvandamálið við Loftbrúna ekki hvort ríkið niðurgreiði flugmiða um...
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
📅 26.10.2026 👁️ 3
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
From Brexit debates to North Sea oil, there is plenty getting the cabinet, the Labour Party and the country talking.
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
Lögreglan í El Salvador hefur handtekið fyrrverandi knattspyrnumann fyrir gróft dýraníð. Maðurinn lét lítinn hund dangla fram af svölum og tók það upp...
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseti tryggði sér fjórða kjörtímabilið í seinni umferð kosninganna í gær. Hann hlaut 51,79 prósent gildra atkvæða ...
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
📅 26.10.2026 👁️ 3
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
Harry Kane becomes the first English player to win the Ballon d'Or since Michael Owen in 2001 after being crowned the world's best player at a ceremon...
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 4
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Healey pledges cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 1
Healey pledges cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
📅 26.10.2026 👁️ 3
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
The guitarist says doctors had given him "a few years left to live", but is now recovering well.
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
Sigvaldi Einarsson, frumkvöðull og áhugamaður um alþjóðamál, veltir því fyrir sér í pólitískri ádeilu hvort staðan í heiminum væri öðruvísi hefði Evró...
Ex-FBI chief James Comey faces federal charges for third time
📅 26.10.2026 👁️ 1
Ex-FBI chief James Comey faces federal charges for third time
Comey's lawyers say the case stems from alleged disclosure of classified information to the New York Times in 2016.
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
Hvaða æfingar myndirðu velja ef þú mættir aðeins gera tíu það sem eftir væri ævinnar? Jeff Cavaliere, maðurinn á bak við ATHLEAN-X, hefur tekið saman ...
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
📅 26.10.2026 👁️ 3
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í...
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, u...
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamaður og upplýsingafulltrúi Wikileaks segist venjulega fara varlega í að hrósa stjórnmálamönnum en í ljósi góðrar reynslu ...
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkja...
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
📅 26.10.2026 👁️ 4
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Lei...
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi ...
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan u...
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
📅 26.10.2026 👁️ 4
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
The BBC says it did not uphold any of the allegations of antisemitism but accepted there were "shortcomings" in how it treated Lucie Kon.
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
📅 26.10.2026 👁️ 4
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en vi...
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
Pitsur hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn vinsælasti skyndibiti heims og njóta mikilla vinsælda á Íslandi, hvort sem hún er borðuð á veitingas...
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Gle...
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu ha...
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur ...
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
📅 26.10.2026 👁️ 4
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í ...
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir...
Trump administration illegally fired James Comey's daughter, judge rules
📅 26.10.2026 👁️ 1
Trump administration illegally fired James Comey's daughter, judge rules
Maurene Comey believes she was let go from her job as a federal prosecutor because her father is the former FBI director.
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
📅 26.10.2026 👁️ 4
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjö...
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
Tveir kaþólskir biskupar hafa beðist afsökunar á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Birt var ljósmynd af þeim að biðja með honum.Breska b...
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety.  „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur fl...
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna bilaðs bíls í skamma stund á sjöunda tímanum samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þau hafa verið opnuð á ný.
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver...
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
📅 26.10.2026 👁️ 4
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem her...
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ...
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
📅 26.10.2026 👁️ 5
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki e...
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
📅 26.10.2026 👁️ 4
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
Minnihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar fer fram á að í nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar verði tekið mið af hljóðvist og samfélagslegum áhrif f...
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
📅 26.10.2026 👁️ 5
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
Jón Gnarr þingmaður segir Viðreisn glíma við uppsafnaðan samskiptavanda, skipulagsleysi og pólitískar deilur. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina ...
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar n...
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
Myndband af bandarískum piltum stökkva ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Instagram.Skjálfandafljót er ...
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
📅 26.10.2026 👁️ 4
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
A pre-alert for calima has been activated across the Canary Islands after a deterioration in air quality was recorded at monitoring stations in Teneri...
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 5
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
📅 26.10.2026 👁️ 4
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er reiðbúin til að setjast niður með sitjandi fors...
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
Yfirvöld í Sádi Arabíu hafa tekið 29 ára mann að nafni Hassan Zaki al-Faraj af lífi. Hassan tók þátt í mótmælum þegar hann var 14 ára gamall en var sí...