Rauð hitaviðvörun hefur verið gefin út í 15 ítölskum borgum. Þeirra á meðal eru höfuðborgin Róm, Mílanó, Flórens og Feneyjar. Íbúum er ráðlagt að borða léttan mat, halda sig innandyra og spreyja á sig köldu vatni til að kæla sig niður. Ekkert lát er á hitabylgju sem gengur yfir Evrópu.
Í gær mældist meðalhiti á landsvísu í Frakklandi 29,2 gráður. Euronews segir þetta þriðja heitasta dag frá upphafi mælinga í landinu.
Slökktu á kjarnaofni vegna of heits vatns
Kjarnorkuver í Suðvestur-Frakklandi nærri Toulouse slökkti á kjarnaofni í gær vegna þess að vatn úr nærliggjandi á, sem notað er til kælingar í verinu, var orðið of heitt eða 28 gráður. 1.350 skólum var lokað í gær vegna hitabylgjunnar.
Samgöngukerfi landsins er undir miklu álagi, en lestarteinar þola ekki hita yfir 50 gráðum. Lestarfarþegum í París hefur því verið ráðlagt að fresta ferðum sínum ef þeir eiga þess kost og þau sem geta unnið heimavið eru beðin um að gera það.
Euronews greinir frá því að nú hafi 18 manns látist af völdum hitans í Frakklandi, þar af tvö börn sem létust eftir að hafa setið í bíl í miklum hita. Fimm eru látnir í Þýskalandi, en þó ekki vegna hita heldur drukknunar.
Yfirvöld í Belgíu gera ráð fyrir að hitabylgjan verði í viku þar og því er spáð að hitamet eigi eftir að falla. Bretar búa sig einnig undir hitabylgjuna. Breska veðurstofan hefur gefið út viðvaranir vegna hitabylgjunnar í mið- og suður Englandi en talið er að hitinn geti farið upp í allt að 40 gráður.