Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri sem lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Rannsókninni var hætt í kjölfar þess að endanleg krufningsskýrsla barst lögreglu í síðustu viku.
Þegar lögregla hafði farið yfir skýrsluna var niðurstaðan sú að ekki væri grundvöllur til að halda rannsókn áfram.
Starfsmaður hjúkrunarheimilisins tilkynnti andlát konunnar til lögreglu í janúar. Tvær konur sem störfuðu á hjúkrunarheimilinu höfðu réttarstöðu sakbornings. Þær hafa verið upplýstar um ákvörðun lögreglu. Réttargæslumaður fjölskyldu hinnar látnu hefur sömuleiðis verið upplýstur og komið upplýsingum til aðstandenda konunnar.
Kærufrestur vegna ákvörðunarinnar er ekki liðinn.