Lögreglan á Suðurlandi hefur hætt rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum.Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag.Tvær konur, sem störfuðu á hjúkrunarheimilinu, voru grunaðar um að hafa átt þátt í andlátinu og voru handteknar í febrúar en gæsluvarðhaldskröfu yfir þeim var þó hafnað.
Rannsókn á andláti í Vestmannaeyjum hætt – Tvær konur voru grunaðar um aðild