Saksóknarar í Tyrklandi hófu rannsókn í dag á 95 ára gömlum milljarðamæringi og heiðursformanni Koc Holdings, stærstu samsteypu Tyrklands, vegna brandara um kúrdíska konu, sem hefur verið harðlega fordæmdur sem kynferðislegur og fordómafullur.
Rahmi Koc sagði brandarann við opnun sjúkrahúss í borginni Izmir í gær, en þegar myndefnið fór í dreifingu á netinu olli það miklu fjaðrafoki.
Brandarinn, sem snerist um misskilning milli kúrdískrar konu og læknis, vakti einnig reiði stjórnarandstöðuflokksins DEM, sem er hliðhollur Kúrdum, en flokkurinn sagðist hafa lagt fram kvörtun á hendur honum.
Akin Gurlek, dómsmálaráðherra Tyrklands, hratt rannsókninni af stað. Hann sagði á X að rannsóknin varðaði ummæli „sem talin eru beinast að konum og borgurum af ákveðnum þjóðernisuppruna“, þótt hann hafi ekki nefnt Koc opinberlega.
„Að láta slík orð falla undir yfirskini brandara eða kímni dregur ekki úr þeirri ókurteisi sem sýnd er konum okkar og ákveðnum hluta samfélagsins,“ skrifaði hann.
Baðst afsökunar
Einnig á X sagði DEM að flokkurinn hefði lagt fram sakamálakæru á hendur Koc „fyrir kynferðisleg ummæli um kúrdískar konur, á grundvelli ‚opinberrar hvatningar til haturs og fjandskapar‘, ‚móðgunar‘ og ‚haturs og mismununar‘.“
Til að bregðast við neikvæðum viðbrögðum gaf Koc út stutta afsökunarbeiðni sem Koc Holding birti á X, þar sem hann sagði að ummæli hans „hefðu ekki verið ætluð til að beinast að neinum sérstökum hópi“.
„Ég vil einlæglega lýsa yfir eftirsjá minni,“ skrifaði hann.