José Luis Rodríguez Zapatero, fyrrverandi forsætisráðherra Spánar, er til rannsóknar fyrir meint skattalagabrot og smygl. Rannsóknin hófst eftir að dýrir skartgripir fundust í peningaskáp Zapateros.
Zapatero var forsætisráðherra Sósíalistaflokksins á árunum 2004 til 2011. Eftir að forsætisráðherratíð hans lauk hefur hann verið afar valdamikill í flokknum sem enn er við völd á Spáni.
Sagður hafa fengið greitt fyrir björgun flugfélags
Hann hefur verið til rannsóknar í tengslum við björgun spænska ríkisins á flugfélaginu Plus Ultra. Talið var að hann hefði beitt sér óeðlilega mikið fyrir því að ríkið bjargaði flugfélaginu á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru. Zapatero er sakaður um að hafa þegið greiðslu fyrir. Þeim ásökunum hefur hann ávallt neitað.
Í tengslum við rannsóknina réðust lögregluyfirvöld í húsleit á skrifstofu Zapateros í síðasta mánuði. Þar fundu þau hálsmen, armbönd, hringa og eyrnalokka að andvirði 1,2 milljóna evra, sem eru um 170 milljónir króna.
Vinir segja skartgripina erfðagóss
Rannsakendur segja Zapatero ekki hafa getað sýnt staðfestingu á greiðslu tolla af skartgripunum. Hann er því til rannsóknar fyrir meint skattalagabrot og smygl, líkt og áður segir. AFP hefur eftir vinum forsætisráðherrans fyrrverandi að skartgripirnir séu hluti af fjölskylduarfi.
Luis Arroyo, talsmaður Zapateros, segir hann eiga eftir að gefa skýringar á skartgripunum fyrir dómara. Hann mun bera vitni síðar í mánuðinum.