Vegna bilunar á háspennustreng hefur rafmagni slegið út í miðbæ Reykjavíkur.
Á vef Veitna segir að unnið sé að því að koma rafmagni aftur á. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Veitur munu uppfæra vefinn þegar rafmagn er komið á á ný.