Rafha fagnar 90 árum með pönnu­kökum, af­mælis­til­boðum og fjöri - Vísir

Rafha fagnar 90 árum með pönnu­kökum, af­mælis­til­boðum og fjöri - Vísir

Rafha fagnar 90 árum með pönnu­kökum, af­mælis­til­boðum og fjöri - Vísir

„Við ætlum að gera okkur glaðan dag og bjóða alla velkomna í afmælisveisluna,“ segir Egill Jóhann Ingvason, framkvæmdastjóri Rafha. „Það verður heitt á könnunni alla helgina og Kristín Kristjánsdóttir, Íslandsmeistari í pönnukökubakstri, ætlar að baka ofan í gestina. Það ætti því enginn að þurfa að fara svangur heim.“

Afmælistilboðin verða ekki af verri endanum því yfir 500 vörur verða á sérstökum tilboðum sem gilda til 24. október og meðan birgðir endast. Þá fá fyrstu 50 viðskiptavinirnir sem versla fyrir 50.000 krónur eða meira veglega gjafapoka.

„Við verðum líka með léttan spurningaleik þar sem gestir geta freistað gæfunnar og unnið Dyson V8 skaftryksugu. Dregið verður úr réttum svörum 24. október. Við vonum auðvitað að sem flestir líti við, fái sér pönnuköku og fagni þessum tímamótum með okkur,“ segir Egill.

Eldavélin sem breytti íslenskum heimilum

Saga Rafha nær aftur til ársins 1936 þegar Ísland var að taka stór skref inn í nútímann. Rafvæðing landsins var komin á fullan skrið og rafmagnstæki, sem áður höfðu verið fágæt, voru smám saman að ryðja sér til rúms á íslenskum heimilum.

„Það er eiginlega ótrúlegt að hugsa til þess hversu mikið hefur breyst á þessum 90 árum. Þegar Rafha var stofnað var rafmagn enn tiltölulega nýtt á mörgum heimilum og það þótti mikil bylting að geta eldað mat á rafmagnseldavél,“ segir Egill.

Raftækjaverksmiðjan hf. var formlega stofnuð í Hafnarfirði 29. október 1936. Að stofnuninni stóðu íslenska ríkið og 22 einstaklingar sem höfðu trú á því að hægt væri að byggja upp öflugan íslenskan raftækjaiðnað.

Starfsemi verksmiðjunnar við Hamarskotslæk hófst árið eftir og um mánaðamótin ágúst og september 1937 leit fyrsta Rafha-eldavélin dagsins ljós. Hún bar framleiðslunúmerið eitt og markaði upphaf merkilegrar sögu.

„Rafha-eldavélarnar urðu fljótt mjög vinsælar og voru á ótal íslenskum heimilum. Þær voru ákveðið tákn framfara og aukinna þæginda. Ég held að margir Íslendingar, sérstaklega af eldri kynslóðinni, eigi enn minningar sem tengjast þessum eldavélum.“

Yfir 108 þúsund tæki á 25 árum

En Rafha framleiddi langt í frá eingöngu eldavélar. Á næstu áratugum bættust við bökunarofnar, helluborð, ryksugur, þvottavélar, kæliskápar, frystikistur, rafmagnsofnar og eldhúsviftur.

Árið 1952 hófst meðal annars framleiðsla á Rafha-ryksugum og þvottavélinni Mjöll, sem var framleidd í samstarfi við Vélsmiðjuna Héðinn. Rafha átti einnig samstarf við erlenda framleiðendur, þar á meðal sænska stórfyrirtækið Electrolux.

„Þetta var mikill frumkvöðlakraftur. Menn voru að byggja upp íslenska framleiðsluþekkingu á tímum þegar innflutningur var takmarkaður og gjaldeyrir af skornum skammti. Rafha sýndi að Íslendingar gátu framleitt tæki sem stóðust kröfur heimilanna.“

Þegar Rafha fagnaði 25 ára afmæli árið 1961 höfðu verið framleidd yfir 108 þúsund raftæki. Sú tala segir sitt um umfang starfseminnar og mikilvægi fyrirtækisins í íslenskri iðnaðarsögu.

Nýr kafli í sögu Rafha

Með auknum innflutningi og harðnandi samkeppni breyttust aðstæður á markaðnum. Á áttunda og níunda áratugnum hóf Rafha í auknum mæli að flytja inn erlend heimilistæki samhliða eigin framleiðslu. Einnig var reynt fyrir sér með útflutning, meðal annars á íslenskum eldhúsviftum.

Árið 1990 urðu síðan mikil tímamót þegar verksmiðjuframleiðslunni í Hafnarfirði var hætt.

„Þetta voru auðvitað gríðarlegar breytingar en um leið upphafið að nýjum kafla. Það var mikilvægt að halda Rafha-nafninu á lofti og byggja áfram á þeirri þekkingu og því trausti sem hafði skapast í gegnum áratugina,“ segir Egill.

Ingvi I. Ingason, þáverandi framkvæmdastjóri Rafha, keypti ásamt fjölskyldu sinni verslunarreksturinn, viðskiptasamböndin og réttinn til vörumerkisins. Þar með var framtíð Rafha tryggð sem verslunar- og þjónustufyrirtækis.

Árið 1996 flutti fyrirtækið í um 1.000 fermetra húsnæði að Suðurlandsbraut 16 í Reykjavík, þar sem það er enn til húsa.

Frá eldavélum til heildarlausna fyrir heimilið

Í dag er Rafha fjölskyldufyrirtæki sem hefur þróast töluvert frá tímum fyrstu eldavélanna. Fyrirtækið býður fjölbreytt úrval heimilistækja frá þekktum framleiðendum á borð við Electrolux, AEG, Bosch, Siemens og Domo.

Þá hefur samstarfið við danska eldhúsframleiðandann Kvik orðið mikilvægur hluti starfseminnar.

„Við erum ekki lengur bara að selja eldavélar og ísskápa. Í dag getum við boðið viðskiptavinum heildarlausnir fyrir eldhúsið, allt frá fyrstu hugmynd og hönnun til afhendingar og uppsetningar. Það hefur reynst mjög vel,“ segir Egill.

Viðskiptavinahópurinn er fjölbreyttur og nær bæði til einstaklinga, fyrirtækja, verktaka og byggingaraðila. Egill segir persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf áfram skipta miklu máli.

„Tæknin breytist stöðugt og fólk gerir sífellt meiri kröfur um gæði, hönnun, orkunýtni og verð. En það sem hefur ekki breyst er mikilvægi þess að geta treyst þeim sem maður verslar við.“

Rafha hefur jafnframt verið á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki samfellt frá árinu 2020 til 2025, sem Egill segir ánægjulega viðurkenningu á rekstri fyrirtækisins.

Níutíu ár eru bara byrjunin

Þótt 90 ára afmælið gefi tilefni til að líta um öxl segir Egill ekki síður mikilvægt að horfa fram á veginn. Netverslun, stafræn þjónusta, orkusparandi heimilistæki og ný tækni séu meðal þeirra þátta sem muni móta starfsemina á næstu árum.

„Við erum auðvitað stolt af þessari sögu en ætlum ekki að lifa eingöngu á fortíðinni. Markmiðið er að halda áfram að þróast og vera samkeppnishæfur valkostur fyrir íslensk heimili.“

Hann segir afmælið jafnframt gott tækifæri til að þakka starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir samfylgdina í gegnum tíðina.

„Það er ekki sjálfgefið að fyrirtæki nái 90 ára aldri. Við erum þakklát fyrir traustið sem okkur hefur verið sýnt og hlökkum til næstu ára. En fyrst ætlum við að halda almennilega upp á afmælið um helgina. Það verður nóg af pönnukökum og góðum tilboðum,“ segir Egill Jóhann að lokum.

#fagnar #með #pönnukökum #rafha #árum


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262946385d/rafha-fagnar-90-arum-med-ponnukokum-afmaelistilbodum-og-fjori

📰 Aðrar fréttir

Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
📅 10.10.2026 👁️ 1
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
The storm took direct aim at Florida and is expected to impact Alabama, Georgia, and Louisiana.
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
📅 10.10.2026 👁️ 1
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð í Panama í gær, um klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Skjálftinn átti upptök sín um tíu kílómetra frá litlum bæ, Pita...
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
📅 10.10.2026 👁️ 3
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300.000 tonnum af dísilolí...
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
Hasan, sem myrti þrettán manns í skotárás á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, á að verða tekinn af lífi af aftökusveit í desember. Vance ræddi málið vi...
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
📅 09.10.2026 👁️ 4
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
Several trains to Delhi have been cancelled and dozens of metro stations are shut to stop protesters from gathering.
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
📅 09.10.2026 👁️ 4
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
With sunshine and showers forecast for the weekend, next week could see a return to some warmer temperatures but there will be gales for some.
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna er ekki áhugasamur um fyrirhugaða aftöku á Nidal Malik Hasan sem myrti 13 manns í herstöðinni Fort Hood í Texas á...
Þekkir þú RÚV stefin?
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þekkir þú RÚV stefin?
Upphafsstef þáttanna sem sendir hafa verið út á rásum RÚV í gegnum tíðina eru sem greypt inn í minni þjóðarinnar.Trompetleikarinn Tumi Torfason hefur ...
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
📅 09.10.2026 👁️ 4
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
Episode four saw another contestant killed off, a ghoulish mission near a graveyard and a spooky twist.
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
Bergild Festival fór yfir fréttir vikunnar í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Ýmislegt bar á góma, til að mynda heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðh...
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
The US president hopes to ease his party's pain before next month's midterm elections, writes the BBC's North America correspondent.
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
📅 09.10.2026 👁️ 4
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega hvernig íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um umdeilda rannsókn á ...
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
📅 09.10.2026 👁️ 4
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
Forspjall: Skálanes, landið, fólkið og fuglarnir
Trump rýfur einangrun Rússlands
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump rýfur einangrun Rússlands
Trump rýfur einangrun Rússlands Banda­ríkja­for­seti af­nem­ur við­skipta­bann Vest­ur­landa á olíu frá Rússlandi, sem átti að þvinga Vla­dimír Pútín ...
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
📅 09.10.2026 👁️ 4
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
Foreldrar fjórtán ára stúlku í Indlandi hafa verið handteknir eftir hrottalegt kynferðisbrot gagnvart henni. Faðirinn nauðgaði stúlkunni á meðan móðir...
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna segist ekki ætla að horfa á aftöku Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, verði hún sýnd í beinni útsen...
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
Chris Bryant, Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, greindi frá ákvörðuninni í kvöld. Hún kemur í kjölfar nærri tveggja vikna átakastöð...
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
📅 09.10.2026 👁️ 4
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
Minkar og menn eru til umræðu á ráðstefnu sem er haldin í Norræna húsinu og er á vegum Samtaka um dýravelferð. Samtökin vilja Ísland án loðdýraræktar ...
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
📅 09.10.2026 👁️ 4
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
The bodies of Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were found at the bottom of a well.
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
📅 09.10.2026 👁️ 4
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
Forspjall: Selstaðavík, landið, hafsbotninn og byggðin:Áður en sjálf hamfarasviðsmyndin er rakin þarf að sjá staðinn fyrir sér sem eina heild. Selstað...
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
📅 09.10.2026 👁️ 4
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
Umboðsmaður alþingis telur ekki tilefni til að halda áfram meðferð kvörtunar sem maður nokkur lagði fram vegna andláts dóttur hans á sjúkrahúsi í ónef...
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
Bandaríkjastjórn hefur samhliða þessu slakað tímabundið á höftum á rússneskum orkufyrirtækjum svo olían komist á markað. Trump greindi frá samkomulagi...
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kallar eftir því að rússnesk stjórnvöld deili gögnum um andlát starfsmanns á rannsóknastofu. Grunur vaknaði um að hún hefð...
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
📅 09.10.2026 👁️ 4
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
Hægt væri að spara ríkissjóði 20 milljarða á ári með því að seinka vistun þúsund manns á hjúkrunarheimili um eitt ár.Þetta segir Janus Guðlaugsson íþr...
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
Í framsögu Magnúsar Þórs Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, á fundinum kom fram að skólakerfið verði ekki byggt með skyndilausnum frá einu k...
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
Fjölbragðaglímukappi í Mexíkó hefur verið handtekinn eftir að hafa tekið 75 ára gamlan dómara ólöglegu glímutaki. Dómarinn lést í kjölfarið.Miðillinn ...
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
📅 09.10.2026 👁️ 4
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, í morgun vegna gruns um að Ölgerðin hefði gerst sek um misnotkun á markaðsrá...
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
📅 09.10.2026 👁️ 4
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
The parade has led to a stand-off between Orangemen and nationalist residents of the Garvaghy Road in Portadown lasting almost two weeks.
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
Miklu púðri hefur að undanförnu verið varið í að ná til ungra bandarískra manna og hefur JD Vance varaforseti verið fenginn sérstaklega í það verkefni...
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sakar Navi Pillay, friðarverðlaunahafa Nóbels í ár, um gyðingafordóma. Pillay hefur kallað stríðsrekstur Í...
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 4
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
Ukraine's president said allowing Russia to sell petroleum products would prolong a war that must be ended.
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 3
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
Ukraine's president sharply criticised the move, calling it an "investment in war that must be ended, not prolonged".
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
📅 09.10.2026 👁️ 4
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
Arion banki hefur stefnt fyrirtæki, sem lítið fer fyrir og ekki virðast finnast merki um á skráðu heimilisfangi þess, til greiðslu um 83 milljóna krón...
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
📅 09.10.2026 👁️ 4
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
The conservative commentator currently works as a communications adviser at Trump Media & Technology Group.
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
Greint er frá því í dagbók lögreglunnar að þetta hafi gerst í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.  ...
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
📅 09.10.2026 👁️ 4
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
A man has been arrested in Adeje, south Tenerife, on suspicion of burning a dog alive, in a disturbing case that has also exposed wider concerns about...
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
The planned execution of Nidal Hasan by firing squad would be the first military execution in more than 60 years.
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, er látin 83 ára að aldri.Þetta kemur fram ...
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
Nytjamarkaðurinn lýsti eftir kaupandanum á samfélagsmiðlum í dag. Um rautt reiðhjól hafi verið að ræða sem selt hafi verið fyrir slysni enda nóg af öð...
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrum fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka lést í dag, 9. október. Sigurveig fæddist í Reyk...
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir...
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
📅 09.10.2026 👁️ 4
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
„Þau eru auðvitað stórkostleg og ég byrja á því að óska henni til hamingju,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, inntur ...
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
„Ég get staðfest að ég heyrði í nokkrum félögum úr verkalýðshreyfingunni um þetta og sömuleiðis að ég er ekki að fara fram,“ segir Katrín í skriflegu ...
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
Kareem M. M. Abufarah hefur hlotið fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ekið á mann á miklum hraða í bílakjallaranum við ...
Ert þú með puttann á púlsinum? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
📅 09.10.2026 👁️ 4
Ert þú með puttann á púlsinum? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvaða bandaríski ráðherra kom í heimsókn til Íslands, hvaða land ætlar ekki að taka þátt í Eurovisi...
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES
📅 09.10.2026 👁️ 4
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES
Það er alveg ljóst að bókun 35 tekur aðeins til jafnsettra laga, þ.e.
Hrafnhildur hafði ekki áhyggjur af fæðingarblettinum en svo kom annað í ljós
📅 09.10.2026 👁️ 4
Hrafnhildur hafði ekki áhyggjur af fæðingarblettinum en svo kom annað í ljós
„Ég var í rauninni bara mjög heppin,“ segir Hrafnhildur sem greindist með sortuæxli.
Bein út­sending: Af minkum og mönnum - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: Af minkum og mönnum - Vísir
Málþingið hefst klukkan 17 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. „Á dagskrá verða erindi íslenskra og erlendra sérfræð...
Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar - Vísir
Þátturinn hefst klukkan 19:20 á Sýn og Vísi. Það verður nóg um að vera í þættinum þar sem margar af ástsælustu sjónvarpsstjörnum landsins rifja upp gó...
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku
Nokkrir þingmenn Norðausturkjördæmis skelltu sér í sund eftir lokun í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku Alþingis í síðustu viku. Einn þeirra segir...