Ræðismaðurinn Jóhanna Vigdís villti á sér heimildir

Hallur Hallsson skrifar:
Svo sem nærri má geta hafði Ivan Kaufmann svissneskur meirihluta eigandi Vélfags samband við svissneska ræðismanninn á Íslandi titlaður general consul; aðalræðismaður. Ræðismaðurinn bað Kaufmann að senda sér upplýsingar sem hann gerði þar á meðal trúnaðarupplýsingar og trúnaðarsamtöl. Kaufmann veitti konsúlnum allar upplýsingar. Kaufmann taldi ræðismanninn bundinn trúnaði við sig sem svissneskan ríkisborgara. Lítið vissi Kaufmann. Ræðismaðurinn bað um upplýsingar án þess að upplýsa um hagsmunaárekstra.
„Ríkisstjórn Íslands tryggi réttindi mín“
Ræðismaður Sviss á Íslandi er Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, ríkisstarfsmaður og fréttakona á Rúv. Hún villti á sér heimildir um stöðu sína. Hún skýrði ekki frá hagsmunaárekstrum heldur þvert á móti leitaði eftir upplýsingum. Ég treysti að hún væri bundin siðareglum og trúnaði við mig sem svissneskan ríkisborgara. Í ítarlegu tölvubréfi til Jóhönnu Vígdísar 11. ágúst 2025 skýrði Kaufmann frá því að verið væri að brjóta lög á sér sem svissneskum borgara.
“Með virðingu fer ég þess á leit við svissneska utanríkisráðuneytið að grípa inn í og taka málið upp við íslenska utanríkisráðuneytið og minni á að alþjóðalögum sé fylgt svo og að Ríkisstjórn Íslands tryggi réttindi mín sem svissneskur ríkisborgari,“ skrifaði Kaufmann sem jafnframt bað Jóhönnu Vigdísi að koma á fundum við Seðlabanka og Skattinn til þess að gæta hagsmuna sinna sem svissnesks ríkisborgara. Það eru tvær tegundir konsúla; aðalræðismaður general consul launaður embættismaður svissneska ríkisins annars vegar. Og hins vegar honorary consul; kjörræðismaður ólaunaður.
Trúnaður aðalræðismanns væri við mig
Kaufmann taldi sig vera í samskiptum við fulltrúa svissneska utanríkisráðuneytisins; aðalræðismann og samskiptum þeirra komið til embættismanna í Sviss en svo er ekki að sjá. Samskiptin áttu sér stað í ágúst fram í september 2025 þegar Kaufmann hafði áttað hvers kyns var. Hann spurði Jóhönnu 6:09.2025: “Góðan dag … Ég hef spurningu til þín. Er það rétt að þú sért fréttakona hjá ríkisfjölmiðlinum RUV?“ Jóhanna staðfestir að svo sé og hafi verið um þrjátíu ára skeið. Þar með lauk samskiptum þeirra. “Ég hafði augljóslega rangt fyrir mér. Ég hefði aldrei sent henni trúnaðarupplýsingar, ef ég hefði vitað að hún vann fyrir óvininn; works for the enemy,“ skrifar Kaufmann í netpósti 20. júlí sl. til greinarhöfunds. Kaufmann telur að öllum trúnaðarupplýsingum hafi verið komið til Þorgerðar Katrínar svo og áformum; varnartaktík fyrir dómstólum. Þetta hafi verið honum mikið áfall. Kaufmann kveðst aldrei í nokkru ríki orðið vitni að jafn mikilli spillingu og á Íslandi. Hann hafi farið víða um Afríku og latnesku Ameríku.
„Tíu sinnum fór ég fram á fund með Jóhönnu Vigdísi. Tíu sinnum fann hún afsökun til að hitta mig ekki,“ segir Kaufmann.