Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.
Samkeppniseftirlitið hefur tilkynnt móðurfélagi Símans að það telji fyrirtækið hafa brotið samkeppnislög með skaðlegri undirverðlagningu á áskriftum að fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu.
Fimm eru látnir og 86 er saknað eftir að eldur kviknaði í ferju á vinsælum ferðamannastað á Filippseyjum.
Landlæknir lítur átök innan SÁÁ mjög alvarlegum augum en starfsemi samtakanna er nú undir skoðun embættisins. Mikilvægast sé að tryggja öryggi og gæði þjónustu að mati landlæknis sem telur uppsagnir áhyggjuefni.
Útför Steins Ármanns Magnússonar leikara verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, heimabæ leikarans, klukkan 13 í dag. Davíð Þór Jónsson, prestur og besti vinur Steins, jarðsyngur. Útförinni verður streymt á Vísi.
Í sportinu er það stórleikur í Mosfellsbæ, umspil um sæti í Bestu deildinni og Meistaradeild Evrópu.