Raddir Evrópubúa: Tilfinning um tengsl varð sterkari
Íbúar í Evrópusambandsríkjum deila reynslu sinni af áhrifum aðildar á líf þeirra og samfélag.
Innan Evrópusambandsins býr um 5,5 prósent mannfjölda heimsins, alls um 450 milljón manns frá 27 ríkjum, sem þekja um 4 milljón ferkílómetra svæði. Hvert þessara ríkja hefur sín sérkenni og menningarleg fjölbreytni er mikil, en alls eru 24 opinber tungumál í Evrópusambandinu. Að sama skapi glíma þessar þjóðir við ólíkar áskoranir og eru misvel í stakk búnar til þess að mæta þeim.
Hér er leitað eftir sjónarmiðum íbúa Evrópusambandsríkja. Fólkið sem hér svarar var valið af handahófi og svaraði stöðluðum spurningum um áhrif aðildar á líf þeirra og samfélag. Svörin veita aðeins sýnishorn af viðhorfum íbúa Evrópusambandsins, en veita engu að síður einhverja innsýn í upplifun fólks af stöðu sinni innan sambandsins.
Sáttir við lífsgæðin
Nú í vor voru birtar niðurstöður Eurobarometer-könnunar um hvernig borgarar meta lífsgæði sín innan Evrópusambandsins. Niðurstöðurnar voru nokkuð afgerandi, en 83 prósent þátttakenda sögðust vera ánægð með lífsgæðin en 17 prósent ekki. Meirihlutinn, 62 prósent, …